Bókaskrá Bóksalafélags Íslands - 01.12.1970, Síða 37
/■---------------------------------—-------—-----------N
Sígildar bækur
Eddukvæði
Ný útgáfa Eddukvæða með nútíma stafsetningu og skýringum
torskilinna orða og hugtaka á sömu síðu og meginmálið. Eru
þessir gimsteinar íslenzkra bókmennta nú í fyrsta sinn þannig
búnir í hendur lesenda, að sérhver, sem þess óskar, getur haft
full not af lestri kvæðanna. — Ólafur Briem mag. art. annaðist
útgáfuna.
Fornir dansar
Islenzku þjóðkvæðin í útgáfu Ólafs Briem, fagurlega mynd-
skreytt af Jóhanni Briem listmálara. Fegursta útgáfa þjóðkvæð-
anna, sem gerð hefur verið.
„Aldirnar44
Lifandi saga liðinna athurða í máli og myndum. Komin eru út
sjö bindi. Eitt þeirra fæst ekki eins og sakir standa, en ný útgáfa
er í undirbúningi.
Úr fylgsnum fyrri aldar I—II
Hið stórmerka ævisagnarit sr. FriSriks Eggerz, búið til prent-
unar af sr. Jóni Guðnasyni.
Islenzkt mannlíf I—IV
Nokkur sett af þessu eftirsótta ritverki Jóns Helgasonar fást enn.
Vér íslands börn I—III
Nýtt ritverk Jóns Helgasonar, búið sömu góðu kostunum og öll
hans verk.
Heimdragi I—III
Margvíslegur íslenzkur fróðleikur, gamall og nýr, eftir ýmsa
höfunda víðs vegar af landinu.
IÐUXX - HLAÐBIJÐ - SKÁLIIOLT
Skeggjagötu 1 — Simi 12923 — Pósthólf 5176 — Reykjavík.
V
J