Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Blaðsíða 16

Verzlunartíðindi - 01.12.1984, Blaðsíða 16
VIÐIR í mjóddinni Stærsti matvörumarkaður landsins í mjóddinni Stærsti matvörumarkaður landsins var opnaður með glæsibrag miklum i Mjóddinni svonefndu milli Stekkjarbakka og Reykjanes- brautar þar sem hún liggur í Breiðholtshverfin. Það eru þeir Víðisbræður, Matthías og Eiríkur Sigurðssynir, sem standa fyrir stórvirki miklu á þessum nýja miðbæjarkjarna fjölmennustu íbúðarbyggðar landsins, en framhjá Mjódd- inni mun verða mesti álags- punktur umferðar á landinu, ekki síst eftir að Reykjanes- brautin hefur verið opnuð á næsta sumri. Þá mun mestöll umferð í Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð og á Suðurnesin fara um Reykjanesbrautina. En skoðum eilítið hvað þarna er í uppbyggingu. Jarðhæð nýja Víðis-Húss- ins er 2200 fermetrar, sem ætlaðir eru sem sölurými fyrir matvöru svo til eingöngu. Kjallarinn rúmar lager, kjöt- vinnslu, fiskvinnslu, vigtun og pökkun. Þessi aðstaða verður nýtt fyrir nýju verslunina og þær tvær búðir sem Víðir rek- ur í dag, þ.e. í Starmýri og í Austurstræti. Tvær hæðir til viðbótar verða byggðar síðar. Á ann- arri hæð verður ýmis vara önnur en matvara. Á þriðju hæðinni er ætlunin að komi alls konar þjónustugreinar, en allt enn óráðið hverjir munu veröa leigjendur á þessum tveim hæðum. Húsið allt mun vera um 8500 fermetrar að gólfflatar- máli, en 4300 fermetrar kom- ast í gagnið fyrir jólin. Þeir bræðursögðu að fitjað yrði upp á mörgum nýjungum í versluninni, en kváðust ekki reiðubúnir að Ijóstra neinu upp um hvað það yrði. Öll tæki og innréttingar hafa verið keypt. Sögðu þeir Matthías og Eiríkur að það val hefði verið tímafrekt og vandasamt. Útkoman varð sú að keypt var frá Þýskalandi, Danmörku og Englandi, en hönnun verslunarinnar var í höndum ensks arkitekts. Þá sögðu þeir bræður að þeir 16 opnun verslunarinnarí Mjóddinni. eins og sjá má voru margir Bræöurnir Matthías og Eiríkur við óþreyjufulliraö komastinn. hefðu þurft að ganga í gegn- um hinn myrka frumskóg söluskattsinnheimtunnar, sem fáum mönnum reynist unnt að botna í. Þannig er söluskattur innheimtur af tækjum til kjötiðnaðar, — ekki til fiskiðnaðar. Bakarofn er með söluskatti, — reykofn ekki. Þannig er atvinnuveg- um landsins mismunað. En lítum aðeins nánar á Mjóddina sem slíka. Þarna eru nokkur fyrirtæki þegar búin að koma sér fyrir. Broadway reið á vaðið fyrir nær 3 árum, síðan Bíóhöllin og Landsbankinn. Þarna eiga eftir að koma ótal mörg fyrir- tæki og þjónustustofnanir. Má þar nefna Pennann, Breiðholtsapótek, Bóka- verslun Sigfúsar Eymunds- sonar, Raftækni, Brauðbæ, Sparisjóð Reykjavíkur og ná- grennis, Fálkann, Einar Farestveit, Sportvöruversl- unin Aðal. Auk þess koma þarna opinberar stofnanir: ÁTVR með sölubúð, væntan- lega stærri og rúmbetri en þær sem nú þekkjast, heilsu- gæslustöð Breiðholts verður væntanleg þarna, kirkja er risin, og Póstur og sími verður með bækistöð í Mjóddinni með alla sína þjónustu. Þá mun Skiptistöð SVR verða gegnt bensínstöð Olís við Stekkjarbakkann, meiriháttar stöð ámóta Hlemmsskipti- stöðinni. Ljóst er því að Mjóddin kemur til með að verða meiriháttar verslunar- miðstöð. „Við vonum að verslunin okkar höfði mjög til nútímans. Miklar breytingar hafa orðið á í verslunarháttum á síöustu árum. Við teljum að sjálfsagt sé að fylgjast með þróuninni sem er að verða og leitum þá til annarra landa til að vera fullkomlega með á nótunum", sögðu þeir Eiríkur og Matt- hías við Verzlunartíðindi. „Þessi búð á að höfða til allra þjóðfélagshópa. Við vilj- um vera í stakk búnir að sinna öllum sérþörfum og vera samkeppnishæfir í verðlagn- ingu“, sögðu þeir Eiríkur og Matthías. Sögðust þeir leggja mikla áherslu á kjötvöruna sem fyrr, auk þess sem fisk- úrval kæmi til með að aukast mikið og yrði fiskurinn keypt- ur milliliðalaust úr bátum og unninn fvinnslustöð þeirra. VERZLUNARTÍÐINDI

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.