Bókatíðindi - 01.12.2003, Side 48
íslensk skáldverk
1374 bls.
Ormstunga
ISBN 9979-63-042-6
Leiðb.verð: 10.875 kr.
LJÓÐ OG LAUST MÁL
Gísli Brynjúlfsson
Umsjón: Sveinn Yngvi
Egilsson
Bókin Ljóð og laust mál
eftir Gísla Brynjúlfsson
geymir m.a. úrval af ljóð-
um hans, ritgerðir og sög-
ur, auk valdra kafla úr
frægri dagbók Gísla í
Kaupmannahöfn 1848.
Umsjónarmaður er Sveinn
Yngvi Egilsson sem ritar
inngang og skýringar. Rit-
stjóri ritraðarinnar Islensk
rit er Guðni Elísson.
354 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-9011-8-7
Leiðb.verð: 5.490 kr.
LINDA VILHJÁLMSDÓTTIR
LYGASAGA
Linda Vilhjálmsdóttir
Þetta er sönn saga um lygi.
Hún segir frá lífi í skugga
ótta, þráhyggju og hægslít-
andi drykkju sem bætir
blekkingu ofan á blekk-
ingu þangað til lífið er
orðið ein samfelld lyga-
saga. Linda Vilhjálmsdótt-
ir hefur um árabil verið
eitt okkar fremstu ljóð-
skálda. Nú sýnir hún á sér
nýja hlið sem prósahöf-
undur í verki þar sem
dregin er upp sterk mynd
af annarlegu hugar-
ástandi. Með húmor, inn-
sæi og stílgáfu gengur hún
á hólm við sjálfa sig og
lygi lífs síns og segir í leið-
inni sannleikann og lyg-
ina um mannlegt eðli.
164 bls.
Forlagið
ISBN 9979-53-461-3
Leiðb.verð: 3.990 kr.
MYNDIN AF
HEIMINUM
Pétur Gunnarsson
Sköpun heimsins, íslands,
mannsins - þetta eru yrk-
isefni Péturs Gunnarsson-
ar í skáldsögu sem er hin
fyrsta í flokki sem hann
kallar Skáldsaga íslands.
Hér er staldrað við áfanga
í sögu lands og þjóðar,
staði og stundir sem skipt
hafa sköpum. Spennandi
og einstaklega gefandi
saga, skrifuð af þeirri
fyndni, dýpt og mannlegu
hlýju sem einkenna skrif
Péturs.
Myndin af hejminum
var tilnefnd til íslensku
bókmenntaverðlaunanna
árið 2000.
182 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2360-4
Leiðb.verð: 1.599 kr.
Kilja
NÁÐARKRAFTUR
Guðmundur Andri
Thorsson
Náðarkraftur er fjöl-
skyldusaga. Sonurinn á
heimilinu hefur sent lag í
Evróvisjon-keppnina -
sem hann veit að mun
hryggja foreldra hans - og
dóttirin þarf að gera upp
hug sinn um það hvort
hún eigi að yfirgefa
mannsefni sitt, ungan og
efnilegan Evrópusinna,
fyrir sænskan blúsara
sem hún veit ekki að er
sennilega erfingi að mikl-
um auði. Móðirin er
prestur sem glímir við
það að skyggnigáfan úr
bernsku tekur sig upp, en
faðirinn er fyrrverandi
þingmaður sósíalista sem
nú stundar garðrækt og
ritstörf. Þau eru síðustu
sósíalistarnir, hugsjónir
Sá sem ekki lifir i skáldskap
lifir ekki af hér á jörðinni.
Halldór Laxness
Eymundsson
BÓKSALI FRÁ 1872
Austurstræti / Kringlan / Smáralind
Hafnarfjörður/Akureyri
46