Bókatíðindi - 01.12.2003, Side 116
Fræði og bækur almenns efnis
KYNNING
Á
LÖGMÁLI G UÐS
Ur ræðum og rítvm
SUN MYUNG MOON
KYNNING Á LÖGMÁLI
GUÐS
Dr. séra Sun Myung
Moon
Þýð.: Þormar Jónsson
Efni þessar bókar útskýrir
m.a. Lögmál Sköpunar-
innar, Syndafallið, Endur-
reisnaforsjá Guðs, hina
táknrænu merkingu Biblí-
unar þ.á.m. um hina „síð-
ustu daga“ o.s.frv.
Þekking þessi: Lögmál
Guðs (The Divine Princi-
ple) er byggð á uppgötv-
unum og andlegum opin-
berunum Séra Moon og
einnig samtölum hans við
Jesús í hinum andlega
heimi.
Ótrúleg þekking fyrir
allt andlega leitandi fólk.
Pöntunarsímar:
552-5808, 660-7748.
180 bls.
Bókaútgáfan Framtíðin
ISBN 9979-9611-0-4
Leiðb.verð: 2.880 kr.
LANDAURAVERÐ Á
ÍSLANDI 1817-1962
Þróun og landshluta-
dreifing á verðlagi
búfjár, innlendra
afurða og launa
samkvæmt árlegum
verðlagsskrám
Magnús S. Magnússon
Bókin er undirstöðurit
um verðlag þeirra nauð-
synja sem kölluðust
„landaurar" frá tímum
gamla bændasamfélags-
ins íslenska. I bókinni er
Magnús S. Magnússon
Landauraverð á Islandi
1817-1962
Þróun og landshlutadreiling á verðlagi búljár.
innlcndra al'urða og launa samkvæmt árlcgum
verðlagsskrám
M 1S
greint á aðgengilegan hátt
frá verðlagi 43 landaura
(búfé, ull, prjónavörur,
fiskur, lýsi, skinnavörur,
laun o.fl). Bókin veitir
einnig upplýsingar um
verðlagsmál almennt á
19. öldinni sem tengjast
verðmun innanlands og
efnahagsmálum Islend-
inga. Lýst er því hvernig
innlendir og erlendir
verslunarhættir þessara
tíma geta veitt fróðlega og
oft óvænta innsýn í
íslenskt samfélag og um
viðskiptin við umheim-
inn. Bókin skiptist annars
vegar í ítarlega umfjöllun
um vörutegundir, verð-
þróun og verðhlutföll í
máli og myndum, þróun
peningamála, verðmun
innanlands og skoðana-
skipti alþingismanna um
verðlag, verðlagsskrár og
einnig skattamál. Hins
vegar birta ítarlegir töflu-
og myndaviðaukar ná-
kvæmt verð einstakra
landaura og verðmismun
innanlands öll þau 146 ár
sem árlegar verðlagsskrár
voru við lýði.
280 bls. '
Hagstofa Islands
ISBN 9979-770-20-1
Leiðb.verð: 3.900 kr.
LANDFRÆÐISSAGA
ÍSLANDS I
Hugmyndir manna um
ísland, náttúruskoðun
og rannsóknir fyrr og
síðar
Þorvaldur Thoroddsen
Landfræðissaga Islands er
undirstöðurit um könnun
landsins og fjallar jafn-
framt um ýmsa aðra þætti
íslenskrar menningar-
sögu. Þetta 1. bindi af 4
hefst með frásögnum af
siglingum Forn-Grikkja í
norðurhöfum og nær fram
yfir aldamótin 1600. Virt-
ir fræðimenn koma að
verkinu og rita sérstaka
skýringarkafla í lokabind-
inu. Fjölmargar myndir
eru í þessari glæsilegu
endurútgáfu einhvers
merkasta fræðirits ís-
lenskra bókmennta sem
lesendur hafa rómað í
heila öld fyrir lipra og
skemmtilega frásögn.
208 bls.
Ormstunga
ISBN 9979-63-043-4
Leiðb.verð: 6.840 kr.
INGI.MUNDUR GAMLI &
MADAMA TOBBA
LEIÐAVÍSIR í
ÁSTAMÁLUM
Ingimundur gamli
Madama Tobba
Vaxandi borgarsamfélag á
20. öld kallaði á nýjar
leikreglur í samskiptum
kynjanna. Ekki var sjálf-
gefið hvernig karlmaður
átti að heilsa þeim ótal
konum sem hann hitti á
degi hverjum eða hvernig
kona átti að kalla fram
fallegt bros án þess að
mynda hið svonefnda
„reykvíska veiðibros".
Þessi bók er samsteypa
fjögurra smárita sem
komu út árin 1922 til
1923, eftir höfundana
Ingimund gamla og
madömu Tobbu, og var
ætlað að veita hagnýt ráð
í ástamálum. I bókinni er
einnig fjöldi forskrifta að
ástabréfum.
72 bls.
SÖGUSPEKINGASTIFTI
Dreifing: Háskólaútgáfan
ISBN 9979-9231-7-2
Leiðb.verð: 1.860 kr.
114