Bókatíðindi - 01.12.2003, Blaðsíða 129
Fræði og bækur almenns efnis
HHI
SKÍRNIR
TlMARlT
HINS ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAGS
SKÍRNIR
Vor og haust 2003,
177. árgangur
Ritstj.: Svavar Hrafn
Svavarsson og Sveinn
Yngvi Egilsson
Fjölbreytt og vandað efni
m.a. um íslenskar bók-
menntir, náttúru, sögu og
þjóðerni, heimspeki, vís-
indi, myndlist og önnur
fræði í sögu og samtíð.
Elsta og eitt allra vandað-
asta fræðatímarit Islend-
inga. Nýir áskrifendur
velkomnir.
219 bls. + 215 bls.
Hið ísl. bókmenntafélag
ISSN 0256-8446
í * 1 A » * í i t 4 * A A ' Í * u * / 2 * ‘A * A u , A í a * ! l’dll Si.Hurósson
SI<Æ .ÐADRÍFA
, •* , * » A * A »* u U á * '1 * A * í » A u
SKÆÐADRÍFA
Páll Sigurðsson
Bókin hefur að geyma
safn sjötíu stuttra greina
um magvísleg málefni,
sem höfundur hefur látið
sig varða á liðnum árum.
Allar eru greinarnar
nýlegar og þær fjalla marg-
ar um miklivæg menning-
armál og önnur þjóðmál,
sem skoðanir eru skiptar
um, og bera sumar með
sér harða gagnrýni eða
ádeilu. Öðrum er einkum
ætlað að vera fræðandi og
vekjandi. Ekki er um að
ræða eiginlegar fræði-
greinar heldur eru þær
flestar pólitískar, í víðtæk-
um skilningi, þ.e. bera
með sér skoðanir höfund-
arins, stefnumið, tillögur
og áeggjan. Enda þótt
flestar greinarnar fjalli,
með sínum hætti um lög
og samfélag eiga þær ekki
síður erindi til alls
almennings, sem lætur sig
þjóðmál varða, heldur en
til lögfræðinga og annarra
háskólamanna.
334 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-543-7
Leiðb.verð: 3.900 kr.
SNORRA-EDDA
Snorri Sturluson
Ritstj.: Heimir Pálsson
Allur texti Eddu í hand-
hægri útgáfu: Prologus,
Gylfaginning, Skáldskap-
armál, Háttatal og nafna-
þulur. Inngangsorð að
hverjum hluta ásamt ítar-
legum orða- og vísna-
skýringum leiða nýja les-
endur um heillandi heim
Eddu. Nafnaskrá og skrá
yfir kenningar og heiti
eru fengur fyrir alla
áhugamenn um norræna
goðafræði og fornan kveð-
skap.
308 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2425-2
Leiðb.verð: 1.799 kr.
Kilja
Valdimar Kridóferuon fri Skjaldartröð
Sólstafir og
svikagiennur
Bundii m*l og óbundiA. munltf og tugnir undir Jökli
SÓLSTAFIR OG
SVIKAGLENNUR
Valdimar Kristófersson
Á aldarafmæli Valdimars
Kristóferssonar (1903
-1969), alþýðuskálds,
bónda og fræðimanns frá
Skjaldartröð undir Jökli,
hafa börn hans gefið út
úrval ritsmíða sem eftir
hann liggja. Valdimar
kemur víða við, yrkir um
alvarleg sem rómantísk
hugðarefni en var þekkt-
astur á sínum heimaslóð-
um fyrir fjölda tækifæris-
ljóða sem flutt voru á
mannamótum. Þau bera
ríku skopskyni hans gott
vitni og hvarvetna blasir
við góð tök og virðing fyr-
ir móðurmálinu. Hér er
einnig að finna forvitnileg
minningabrot; þætti um á
annan tug merkra Breið-
víkinga á síðustu öld;
hrakningasögur, munn-
127