Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Qupperneq 4
VIRK
LÓA BIRNA BIRGISDÓTTIR formaður stjórnar VIRK 2022-2023
Fyrir um 15 árum kölluðu aðstæður í samfélaginu á aukna þjónustu á sviði
starfsendurhæfingar og þá var samið við stéttarfélög eða samtök stéttarfélaga um
allt land um þjónustu sérhæfðra ráðgjafa í starfsendurhæfingu þar sem markmiðið
var að grípa fólk og koma því sem fyrst aftur inn á vinnumarkað. Áskorunin er að
einhverju leyti önnur nú en fyrir 15 árum þegar VIRK var stofnað en þörfin er jafnvel brýnni
nú en áður.
Samfélagið og vinnumarkaðurinn eru á mikilli hraðferð og margvíslegar breytingar
dynja stöðugt á okkur. Fjórða iðnbyltingin er ekki lengur handan við hornið heldur hefur
hafið innreið sína af fullum krafti með breyttum störfum, stafrænni vegferð, aukinni
samfélagsmiðlanotkun og auknum hraða samfélagsins í ýmsum öðrum þáttum. Má meðal
annars sjá merki þessara breytinga í aukningu andlegra veikinda og fjölda einstaklinga
sem leita til VIRK þar sem þeir upplifa kulnun í starfi en 58% þeirra sem sækja um þjónustu
til VIRK rekja heilsubrest sinn til kulnunar. Við nánari skimun er það í 6,1% tilfella þar sem
er að finna vísbendingar um kulnun í starfi.
skoða hvernig hægt er að tryggja að
einstaklingar fái viðeigandi þjónustu á
réttum tíma og almennt að dýpka þekkingu
á málefninu.
Mikilvægt verður að fylgja þróunar-
verkefninu eftir en niðurstöðum rannsókna
sem fyrirhugaðar eru í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík er ætlað að stuðla
að uppbyggingu og auka við almenna
þekkingu á kulnun og starfsendurhæfingu.
Samhliða rannsóknum er þörf á öflugri
vitundarvakningu um álag, streitu og
kulnun í starfi en ekki síður örmögnun
í einkalífi. Þegar við horfum til þeirrar
staðreyndar að konur eru 2/3 þeirra sem
leita til VIRK tel ég mikilvægt að staðið verði
að vitundarvakningu um kulnun í starfi
og örmögnun í einkalífi hjá konum, enda
ljóst að mikið álag tengt starfi og einkalífi
samtímis felur í sér aukna áhættu fyrir þær.
Ávinningur, árangur, ánægja og
áfram gakk
Heildarúttekt á þjónustu VIRK Starfsendur-
hæfingarsjóðs lauk í lok árs 2022.
Meðal ábendinga nefndarinnar sem
vann úttektina er að móta þurfi betur
heildarsýn á viðfangsefni atvinnutengdr-
ar starfsendurhæfingar og sameiginlegan
skilning á markmiðum og þeim leiðum
sem fara þurfi. Í skýrslu nefndarinnar
kemur sömuleiðis fram að samkvæmt
úrtaksrannsókn Félagsvísindastofnunar HÍ
var afstaða þátttakenda til þeirrar starfs-
endurhæfingar sem þeir fengu á vegum
VIRK mjög jákvæð. Þannig voru 78%
svarenda til að mynda frekar eða mjög
sammála því að úrræðin sem voru valin hafi
verið í samræmi við þarfir þeirra og markmið
og 72% sögðu að starfsendurhæfingin hafi
nýst vel í heild sinni.
Ávinningur af starfsemi VIRK hefur líka
verið metinn árlega á undanförnum 10
árum og sýna tölurnar stöðugt aukinn
samfélagslegan árangur af starfseminni.
Einnig sýna tölur mikla ánægju með
þjónustu VIRK og svöruðu 90% þeirra
sem fengu þjónustu á árinu 2022 því til að
vera að öllu leyti, mjög eða frekar ánægðir
með þjónustuna. Síðast en ekki síst er
niðurstaðan sú að 79% einstaklinga sem
hafa útskrifast frá VIRK frá upphafi eru
að öllu eða einhverju leyti virkir í vinnu,
atvinnuleit eða námi. Fór þetta hlutfall í
85% á síðasta ári. Með VIRK höfum við því
kerfi sem grípur og gætir að því að veita
rétta stuðninginn og endurhæfinguna
þannig að einstaklingurinn hafi kost á
endurkomu á vinnumarkaðinn.
Tölurnar tala sínu máli og staðfesta að VIRK
er að ná árangri. Árangri sem skiptir hvern
einstakling máli en ekki síður samfélagið.
Mikilvægt er samt sem áður að skoða
heildarkerfið og að standa saman um
skilvirkt kerfi þar sem allir hlutaðeigandi
leitist jafnframt við að skilgreina og sinna
hlutverkum sínum með þeim hætti að
sem flestir eigi þess kost að vera virkir á
vinnumarkaði.
VIRK er til staðar og þarf að fá að þróast
áfram til að geta veitt einstaklingum áfram
öflugan stuðning og aðstoð við að efla
starfsgetu og bæta lífsgæði. VIRK hefur
undanfarin 15 ára þjónað á þann hátt
að starfsendurhæfingarsjóðurinn hefur
áunnið sér virðingu og traust samfélagsins.
Þannig að áfram gakk og gaman verður
að fylgjast með unglingnum þroskast
og dafna á komandi árum, takast á við
áskoranir í síbreytilegu samfélagi og vera
hluti af heildstæðu kerfi endurhæfingar
sem stuðlar að endurkomu einstaklinga á
vinnumarkað.
Hún bognaði en brotnaði ekki
Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hag-
stofunnar er áætlað að um 209.400
manns hafi verið starfandi á vinnumarkaði
árið 2022. Áætlað er að af öllum starfandi
hafi konur verið að jafnaði um 97.100
(47%) og karlar um 112.400 (53%). Í
dag eru konur um 69% af einstaklingum
hjá VIRK og karlar 31% þeirra sem
þangað leita og fá þjónustu. Konur eru
því í miklum meirihluta þeirra sem fá
þjónustu hjá VIRK sem er ekki í samræmi
við hlutfallslega fjöldaskiptingu kynjanna
á vinnumarkaði.
Flest þekkjum við þá staðreynd að
mikill meirihluti starfsfólks í uppeldis-
og umönnunarstörfum eru konur á
meðan karlar eru í meirihluta í verk- og
tæknigreinum. Uppræting hins kyn-
skipta vinnumarkaðar er eitt af stóru
verkefnunum í baráttunni fyrir jafnri stöðu
og jöfnum möguleika kvenna og karla.
Skipulag vinnumarkaðar og samfélagsins
skilar neikvæðum áhrifum á fjárhag en
ekki síður á heilsu og líðan kvenna. Álag
er almennt meira á vinnustöðum þar
sem konur eru í meirihluta og megin
þorri kvenna er útivinnandi en bera um
leið meginábyrgð á börnum, öldruðum,
veikum ættingjum og heimili. Konur eru
þannig oft sérstaklega duglegar að hlúa
að öðrum en gleyma gjarnan að setja
sig sjálfar í forgang. Rannsóknir sýna þó
að ekki er munur á körlum og konum
þegar kemur að kulnun, þrátt fyrir að
mun hærra hlutfall kvenna finni fyrir
einkennum hennar. Það hvort fólk finni
fyrir kulnun snýst ekki um kyn út af fyrir
sig heldur störfin, stjórnun og aðstæður
á vinnustað og ekki má gleyma því
álagi sem getur fylgt þriðju vaktinni og
samspili kulnunar í starfi og örmögnunar
í einkalífi.
Þó kona bogni um stund þá er mikilvægt
að það sé til staðar kerfi sem grípur
inn í og kemur í veg fyrir að hún brotni
heldur aðstoði við að hún rétti úr og
þegar aðstoð sleppir sé hún jafnbein og
sterkari en fyrr.
Horfum fram á veginn
Eitt af einkennum VIRK er frumkvæði
í að leita nýrra leiða og aðferða sem
virka í starfsendurhæfingu. Starfsfólk
VIRK hefur gífurlegan metnað í að þróa
starfsemi starfsendurhæfingarsjóðsins
Tölurnar
tala sínu máli
og staðfesta að VIRK
er að ná árangri.
Árangri sem skiptir
hvern einstakling
máli en ekki síður
samfélagið.
UNGLINGURINN
ER AÐ NÁ MARKVERÐUM ÁRANGRI
þannig að hann sé ávallt að veita þeim
einstaklingum sem þangað leita sem besta
þjónustu.
Rannsóknir á bata þeirra sem greinst hafa
með kulnun sýna að erfitt getur reynst að
ná fullum bata. Til að reyna að koma í veg
fyrir að ástandið versni og fleiri finni fyrir
einkennum kulnunar þarf að rýna tölfræði,
sinna rannsóknum og forvörnum. VIRK
hefur verið með í gangi þróunarverkefni
um kulnun sl. 2 ár og í því er verið að móta
farveg þessara mála í starfsendurhæfingu,
4 5virk.is virk.is