Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Qupperneq 24
VIÐTAL
VIRK Atvinnutenging er samstarf
VIRK við fyrirtæki og stofnanir í
tengslum við ráðningar starfs-
fólks. Markmiðið er að ljúka starfs-
endurhæfingu hjá VIRK á farsælan hátt
með því að útvega einstaklingum störf við
hæfi og fyrirtækjum gott starfsfólk ásamt
því að halda uppi virkri atvinnuþátttöku á
Íslandi og stuðla að heilbrigðu samfélagi.
Atvinnutenging VIRK er í samstarfi við
hundruð fyrirtækja og stofnana varðandi
aðkomu einstaklinga sem eru að ljúka
starfsendurhæfingu og stíga skrefin aftur út
á vinnumarkaðinn. Samstarf við fyrirtæki og
stofnanir hefur gengið vel og viðtökur verið
góðar og dýrmæt tækifæri skapast þannig
fyrir einstaklinga í atvinnutengingu.
Ríflega fimmtán hundruð fyrirtæki eru
skráð inni í upplýsingakerfi VIRK og stór
hluti þeirra hefur undirritað sérstaka
samstarfssamninga við VIRK. Hundruðir
einstaklinga hafa fengið vinnu með aðstoð
atvinnulífstengla VIRK.
VIRK leitar stöðugt eftir samstarfi við ný
fyrirtæki og stofnanir. Hægt er að hafa
samband við atvinnulífstengla VIRK og fá
nánari upplýsingar.
Gott samstarf grundvöllur
atvinnutengingar
Gott samstarf við fyrirtæki er grundvöllur
farsællar atvinnutengingar. Atvinnulífs-
tenglar VIRK gegna lykilhlutverki í því
að tengja einstaklinga við fyrirtæki eða
stofnanir út frá óskum beggja og aðstoða
einstaklinginn, en ekki síður vinnustaðinn,
við aðlögun og endurkomu til vinnu.
Hugmyndir hafa verið uppi hjá atvinnu-
lífstenglum VIRK um að veita þeim
fyrirtækjum og stofnunum sem sinna
samstarfinu sérlega vel og sýna sam-
félagslega ábyrgð, sérstaka viðurkenningu
og hvetja þannig önnur fyrirtæki til góðra
verka.
Nú er þessi hugmynd orðin að veruleika
og viðurkenningin VIRKt fyrirtæki veitt
í fyrsta sinn og stefnt er að því að gera
það árlega. Viðurkenning er veitt til þeirra
fyrirtækja sem skara fram úr í samstarfinu
við atvinnutengingu og VIRK.
Að þessu sinni hlutu 13 fyrirtæki og
stofnanir tilnefningu og á ársfundi VIRK var
Össuri og Vista verkfræðistofu veitt viður-
kenning sem VIRKt fyrirtæki 2023.
TILNEFND SEM
VIRKT FYRIRTÆKI 2023
• A4
• BL
• Heilbrigðisstofnun Norðurlands -
Húsavík
• Heilbrigðisstofnun Suðurlands -
Selfossi
• Heilsuvernd hjúkrunarheimili ehf. -
Akureyri
• Hrafnista - Sléttuvegi/Laugarási/
Reykjanesbæ
• iClean
• Símstöðin
• Torg
• Veðurstofa Íslands
• Vista verkfræðistofa
• Þjónustukjarninn Suðurgötu,
Reykjanesbær
• Össur
SVO GOTT FYRIR
HJARTAÐ
ANNA DÓRA GUNNÞÓRSDÓTTIR mannauðsfulltrúi hjá Össur Iceland
DAGBJÖRT JÓNASDÓTTIR launafulltrúi hjá Össur Iceland
„ÞAÐ ER HÚSIÐ NÆR ÖLGERÐINNI,“
SAGÐI ANNA DÓRA GUNNÞÓRSDÓTTIR,
MANNAUÐSFULLTRÚI, TIL LEIÐBEIN-
INGAR ÞEGAR HIÐ UMFANGSMIKLA
STOÐTÆKJAFYRIRTÆKI ÖSSUR ER
SÓTT HEIM EN ÞAÐ ER EITT ÞEIRRA
FYRIRTÆKJA SEM FÆR VIÐURKENN-
INGU SEM VIRKT FYRIRTÆKI 2023.
Á annarri hæð að Grjóthálsi 5 í Reykjavík hittum við Önnu
Dóru og Dagbjörtu Jónasdóttur, launafulltrúa, hjá Össuri
Iceland ehf. til þess að ræða um reynslu fyrirtækisins af
því að ráða til starfa þjónustuþega frá VIRK.
„Það hefur líklegast verið milli 2015 og 2018 sem atvinnulífstengill
leitaði til fyrirtækisins og spurðist fyrir um hvort fyrirtækið vildi vera
í atvinnutengingu við VIRK. Tekið var jákvætt í þessa fyrirspurn og
við erum enn að ráða fólk til starfa sem kemur úr þjónustu frá VIRK,“
segir Anna Dóra, mannauðsfulltrúi.
VIRKT
FYRIRTÆKI
2023
24 25virk.is virk.is