Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Page 63
VIRK
HORFT TIL FRAMTÍÐAR
STAÐA RANNSÓKNA HJÁ VIRK
Annað flækjustig er varðar starfsendurhæfingu er
staða vinnumarkaðar á hverjum tíma fyrir sig. Örar
tæknibreytingar síðustu áratuga flýta óneitanlega
fyrir úreldingu þekkingar og færni sem – eðli málsins
samkvæmt – hefur víðtæk áhrif á þær manneskjur sem þar starfa1.
Við þessum aðstæðum hefur starfsendurhæfing þurft að bregðast
við og taka mið af. Framboð á úrræðum í starfsendurhæfingu
hefur einnig áhrif á framgang hennar. Framboðið er mismikið
eftir aðstæðum hverju sinni og í sumum tilvikum hefur VIRK tekið
þátt í þróun nýrra úrræða sem eftirspurn er eftir.
Af þessum sökum hefur VIRK ákveðið að blása til sóknar í
rannsóknum og auka umfang þeirra í starfseminni. Sérstaklega
verður lögð áhersla á aukið rannsóknasamstarf við hina ýmsu
úrræðaaðila, ýmist um árangursmælingar á úrræðum sem þeir bjóða
upp á, þróun nýrra úrræða til að mæta nýrri eftirspurn eða nánari
greiningu á því hvort úrræði séu viðeigandi fyrir alla eða hvort þau
henti einstaklingum misvel eftir heilsufarsþáttum eða bakgrunni. Í
ÞAÐ ER ÓUMDEILT AÐ RANNSÓKNIR
– SEM BYGGJA Á GAGNREYNDUM
RANNSÓKNARAÐFERÐUM – ERU
GRUNDVÖLLUR AÐ FRAMÞRÓUN
ÞEKKINGAR. ÞETTA Á SÉRSTAKLEGA
VIÐ UM HIÐ ÞVERFAGLEGA EÐLI
STARFSENDURHÆFINGAR EN ÞAR
REYNIR Á AÐKOMU OG SAMVINNU
ÓLÍKRA FAGSTÉTTA.
SVANDÍS NÍNA JÓNSDÓTTIR verkefnastjóri hjá VIRK
Rannsóknaráð VIRK
Sitjandi frá vinstri: Svandís Nína Jónsdóttir, Jónína Waagfjörð, María Þóra Þorgeirsdóttir.
Standandi frá vinstri: Guðrún Rakel Eiríksdóttir, Þórey Edda Heiðarsdóttir, Berglind Stefánsdóttir.
þessu eru fólgin tækifæri fyrir þá aðila sem
vilja þróa úrræðin betur og jafnvel eiga kost
á að fá rannsóknaniðurstöður sínar birtar í
fagtímaritum.
Rannsóknastefna VIRK
Eðli málsins samkvæmt þurfa rannsóknir
hjá VIRK að uppfylla skilyrði nýlegrar
rannsóknastefnu sem samþykkt var af
framkvæmdastjórn VIRK 26. nóvember
2020. Stefnan markaði ákveðin tímamót í
starfsemi VIRK, þá sérstaklega með tilliti til
aukinna krafa á hendur þeirra sem sinna
rannsóknum í samstarfi við sjóðinn.
þ.e. að þjónustuþegar fái nauðsynlegt næði
til að ljúka starfsendurhæfingu án mikilla
truflana. Það sem einnig skiptir máli hér –
og rannsakendur þurfa að taka tillit til – er
að fólk í starfsendurhæfingu er misjafnlega
veikt og þola sumir lítið sem ekkert rask
á endurhæfingartímabilinu. Þátttaka í
rannsóknarverkefnum hentar því alls ekki
öllum og þurfa þarfir þjónustuþega ætíð að
vera í fyrirrúmi.
Í þessu tilliti er mikilvægt að spyrja sig
nokkurra spurninga áður en haldið er af
stað í þróun nýrra úrræða eða árangurs-
mælinga þar sem gert er ráð fyrir þátttöku
lýsingar eru grundvöllur þess að hægt sé
að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og
leggja jafnframt grunninn að rannsóknum
til uppbyggingar í starfsendurhæfingu.
Um þessar mundir vinna sérfræðingar
VIRK hörðum höndum að því að aðlaga
gögnin, búa til tímalínur og gera þau þannig
úr garði gerð að þau henti til notk-unar
í vísindarannsóknum. Vonast er til að í
ársbyrjun 2024 verði hægt að fara í rann-
sóknasamstarf við vísindafólk á grundvelli
gagnanna.
Rannsóknaráð VIRK
Til að fylgja rannsóknastefnunni úr hlaði
var Rannsóknaráði VIRK komið á laggirnar.
Í því sitja að jafnaði 6-7 sérfræðingar
VIRK ásamt persónuverndarfulltrúa.
Framkvæmdastjóri VIRK er ábyrgðarmaður
ráðsins en tölfræðingur VIRK - sem
jafnframt er verkefnastjóri rannsókna
og greininga - leiðir ráðið og heldur
utan um starfsemi þess. Helstu hlutverk
Rannsóknaráðs er að taka á móti
umsóknum um rannsóknasamstarf frá
ytri aðilum, meta forsendur þeirra og
vísindalegt gildi og liðsinna við gagnaöflun,
ef umsóknir eru samþykktar. Ef af samstarfi
verður er það þó ætíð háð gildandi lögum
og reglum um persónuvernd og samþykki
Vísindasiðanefndar, ef við á. Aðrar
nauðsynlegar forsendur fyrir samstarfi eru
m.a. eftirfarandi:
• Að rannsóknarefnið sé á vettvangi
starfsendurhæfingar
• Að tilgangur og markmið rannsóknar-
innar sé að bæta gæði úrræða og/
eða auka fjölbreytileika þeirra í
starfsendurhæfingu
• Að rannsóknin sé mikilvæg í sam-
félagslegu tilliti
• Að rannsóknarferlið og birting niður-
staðna brjóti hvergi á mannhelgi og
reisn þjónustuþega VIRK
• Að markmið rannsóknaverkefna sé
ekki þróun á markaðsefni, s.s. gerð
markpósta og/eða kynninga á vörum
eða þjónustu á almennum markaði.
Rannsóknastefnan er í heild sinni birt á
vefsíðu VIRK og þar má lesa nánar um þessi
atriði og aðra áhersluþætti.
Rannsóknir innanhúss hjá VIRK
Heilt á litið er VIRK í stöðugri þekkingaröflun
í starfsemi sinni. Meðal annars var nýverið
sett á laggirnar þekkingarsetur um kulnun
undir stjórn Berglindar Stefánsdóttur og
Rannsóknastefnunni má skipta í nokkur
höfuðatriði en hér verður fjallað um þrjú
þeirra:
• Mannhelgi og reisn einstaklinga
og hópa
• Aðgát og hófsemi
• Vandaðar upplýsingaskrár
Mannhelgi og reisn einstaklinga og hópa
Eitt af skilyrðum rannsókna hjá VIRK er
að leitast sé við að vernda einstaklinga og
hópa í þjónustu sjóðsins. Mannleg reisn
er lykilatriði í velsæld einstaklinga og
hefur áhrif á bataferli og framtíðarhorfur
á vinnumarkaði. Því leggur VIRK sérstaka
áherslu á að niðurstöður rannsókna vegi
aldrei að ímynd og heiðri einstaklinga út á
við með vísun í hópa sem þeir tilheyra.
Þar af leiðandi er brýnt að rannsóknir
á vegum VIRK séu gagnlegar og
uppbyggjandi, að þær miði ætíð að því að
bæta líf einstaklinga með heilsubrest og
leiti leiða til að brúa bilið á milli fólks með
skerta starfsgetu og vinnumarkaðar.
Aðgát og hófsemi
Þegar um er að ræða einstaklinga sem enn
eru í þjónustu VIRK þarf að gæta hófsemi,
einstaklinga sem hafa ekki lokið þjónustu
hjá VIRK:
• Er úrræðið/meðferðin sem ætlunin er
að þróa, viðeigandi fyrir einstaklinga í
starfsendurhæfingu? Fellur hún vel að
þörfum þeirra?
• Þarf ef til vill að sérsníða úrræðið/
meðferðina með tilliti til bakgrunns
þjónustuþega eða aðstæðna?
• Ef um árangursmælingar er að ræða,
hversu oft og við hvaða aðstæður
er gert ráð fyrir að mælingar eigi sér
stað? Eru mælitækin viðurkennd og
gagnreynd?
Áreiðanlegar upplýsingaskrár sem fylgja
ströngustu gæðakröfum
Grundvöllur góðra rannsókna eru rétt-
mætar og áreiðanlegar upplýsingaskrár
sem eru yfirfarnar reglulega og fylgja
lögum um persónuvernd og vinnslu
persónuupplýsinga í hvívetna. Til að sinna
einstaklingum í þjónustu sem best –
og jafnframt uppfylla lagalegar skyldur
sínar gagnvart hinu opinbera - safnar
VIRK tölulegum upplýsingum um stöðu
einstaklinga í upphafi og lok þjónustu
ásamt því að meta reglulega framvindu
starfsendurhæfingarinnar. Þessar upp-
62 63virk.is virk.is
Árangur
VIRK
Áreiðanleg
gögn
Miðlun
Mannhelgi
og reisn
Vísindi