Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Side 71
VIÐTAL
Ég minni á að við eigum alltaf val í lífinu.
Ég kenni fólki að vera meðvitað um að við
höfum alltaf val hvernig við bregðumst
við og hvað við gerum. Núvitund er
grundvöllur fyrir þessu öllu.
Ég held að rannsóknir skipti miklu máli
fyrir starfsendurhæfingu og styrki fólk á
marga vegu. Vinnan okkar er ansi stór
hluti af lífi okkar og allt sem styrkir okkur
almennt í lífinu styrkir okkur þar líka. Margir
sem koma hingað frá VIRK hafa yfirkeyrt
sig. Þetta námskeið kennir fólki að þekkja
merki ef slíkt er í aðsigi og einnig að setja
sjálfum sér og öðrum skýrari mörk. Þetta
er stundum kallað „að vera arkitekt í eigin
lífi“. Láta ekki aðra stjórna í of miklum mæli
og láta heldur ekki undan öllum sínum
dyntum. Lesa í aðstæður. Fólk heldur
gjarnan að lífið eigi að vera frábært en hjá
öllum kemur eitthvað uppá. Lífið er ströggl.
Ég reyni að kenna fólki leiðir til að takast á
við þetta strögl og styrkja sig gagnvart því.
Á hverju námskeiði heyri ég af lífskreppum
sem einstaklingar komast í.“
Hvernig gengur fólki í hópnum að
blanda geði?
„Þegar ég var að fara af stað með þessi
námskeið kveið ég mest hinum yfir-
gnæfandi aðila sem er í öllum hópum.
Slíkum aðila þarf að setja mörk en
hlédræga einstaklinginn þarf að virkja.
Þetta þarf maður að gera jafnframt því að
sýna fólkinu virðingu. Ég segi: „Ég mun
ganga að ykkur en þið hafið líka heimild
til að segja pass ef þið viljið ekki svara
einhverju eða gera eitthvað.“. Þetta hafa
allir samþykkt.“
Mesta ógnin er alltaf að vera
hafnað
Hvað viltu segja um samstarf þitt við VIRK?
„Ég hef allt gott um það að segja. Töluverð
vinna fer í að ganga frá mati á einstaklingum
til ráðgjafans. Það er gleðilegt ef maður getur
sagt að fólk hafi tekið miklum framförum,
leiðinlegra ef það hefur staðið í stað. Heilt
yfir beina ráðgjafarnir til mín fólki sem þeir
telja að geti nýtt sér það sem ég hef fram
að færa. Ég vil fá fólk á námskeiðið sem er
tilbúið til að taka við og gera breytingar –
þegar fólk vinnur verkefnin og deilir reynslu
sinni með hópnum þá gerist eitthvað.“
Hvert stefnum við sem manneskjur og
samfélag?
„Manneskjan hefur aldrei í mannkyns-
sögunni haft það eins og gott og hún hefur
það núna. En þrátt fyrir það ber á vaxandi
einmanaleika, fíkn, kvíða og lyfjanotkun
eykst. Fólki virðist ekki líða neitt betur en
áður og maður veltir fyrir sér hvers vegna.
Við komum frá því að þurfa bara að lifa af
í náttúrunni með öllum ráðum. Það er í
eðli manneskjunnar að vilja sanka að sér,
það skapar öryggi. Fólk fær aldrei nógu
há laun, það á aldrei nóg af dóti, á aldrei
nógu stór hús. Eina sem hægt er að gera
gagnvart slíkri tilfinningu er að reyna að
skilja. Ég ræði þetta á námskeiðinu og líka
hversu mikilvægt það er að tilheyra hóp.
Við skiptum þar með okkur hlutverkum,
mesta ógnin er alltaf að vera hafnað,
rekinn úr hópnum. Höfnun er einmitt það
sem fólk í lífskreppu er oft að takast á við.
Það er höfnun að missa vinnu af hvaða
ástæðu sem er. Þá tilheyrir maður ekki
lengur hjörðinni, ef svo má segja. Þetta er
upprunalegur og gamall ótti í mannverunni.
Maður sér töluvert af fólki sem er með
gigtar- og sjálfsofnæmissjúkdóma og kemst
ekki hjá því að velta fyrir sér hvort ekki sé
verið að ofhlaða fólk, taugakerfið fái aldrei
frið. Þegar fólk kemur heim frá vinnu sest
það gjarnan við tölvuna og verður fyrir alls
konar áreiti þar. Í gamla daga þegar fólk
kom heim þá fór sefkerfið aftur á móti
af stað, róandi kerfið okkar. Manneskjan
hefur aldrei haft eins mikla þörf á því eins
og núna að læra inn á sitt grunneðli. Það er
eina leiðin til þess að hægt sé að lifa með
nútímanum – að skilja okkur sjálf.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Ljósmynd: Lárus Karl Ingason
Ég held að
rannsóknir skipti
miklu máli fyrir
starfsendurhæfingu
og styrki fólk á
marga vegu.
RANNSÓKNIR LYKILATRIÐI
Í ENDURHÆFINGU
TÓMAS KRISTJÁNSSON sálfræðingur
STUNDVÍSLEGA KLUKKAN NÍU AÐ MORGNI MÆTUM
VIÐ Á NÝJA GARÐ TIL ÞESS AÐ HITTA ÞAR AÐ MÁLI
TÓMAS KRISTJÁNSSON, AÐJÚNKT Í SÁLFRÆÐI VIÐ
HÁSKÓLA ÍSLANDS OG STARFANDI SÁLFRÆÐING
Á KVÍÐAMEÐFERÐARSTÖÐINNI. TILEFNIÐ ER AÐ
SPYRJA HANN ÚT Í RANNSÓKN SEM HANN OG FLEIRI
HAFA GERT Á NÁMSKEIÐINU SIGRUM STREITUNA,
MEÐFERÐARÚRRÆÐI SEM PRIMAL ICELAND BÝÐUR UPP
Á OG MARGIR ÞJÓNUSTUÞEGAR VIRK HAFA SÓTT.
Þetta námskeið vakti áhuga minn
af því að skjólstæðingar á Kvíða-
meðferðarstöðinni tóku allt í einu stökk
í meðferðarárangri eftir að hafa verið á
námskeiðinu Sigrum streituna. Bróðir minn
sem er í meistaranámi í sjúkraþjálfun og er
einkaþjálfari starfaði um tíma hjá Primal
Iceland og sagði mér nokkrar atvikasögur,
það er sögur einstaklinga, sem höfðu
fengið mikla bót á umræddu námskeiði.
Hann sagði Einari Carli Axelssyni hjá Primal
frá áhuga mínum. Þetta leiddi skömmu
síðar til fundar þar sem ég viðraði þá
hugmynd mína að gera rannsókn á hvað
skilaði þessum góða árangri,“ segir Tómas
Kristjánsson.
70 71virk.is virk.is