Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Page 74
VIRK
ÚRRÆÐI - MARKVISS
ENDURKOMA TIL VINNU
Þróun, samvinna og nýsköpun úrræða í takt við þarfir þjónustuþega
ÁSTA SÖLVADÓTTIR sviðsstjóri hjá VIRK
Hlutverk úrræðasviðs VIRK er að hafa umsjón með þeirri þjónustu
sem VIRK kaupir, sinna eftirliti með þjónustukaupum og tryggja
upplýsingastreymi varðandi úrræði til þjónustuaðila, ráðgjafa,
atvinnulífstengla og sérfræðinga VIRK. Þá er þróunar- og umbótastarf
fyrirferðarmikið á sviðinu.
Framboð og þróun úrræða
VIRK kaupir einungis þjónustu sem flokkast getur sem hluti af formlegri starfs-
endurhæfingu og veitt er af fagaðilum með tilskilin réttindi enda er um viðkvæma
þjónustu að ræða. Starfsfólk úrræðasviðs VIRK fer reglulega yfir þau úrræði sem
eru í boði og metur hvort þörf sé á nýjum úrræðum. Árangursrík starfsendurhæfing
er samvinnuverkefni margra aðila. Þróun úrræða fer fram í nánu samstarfi við sér-
fræðinga á starfsendurhæfingarsviði, ráðgjafa og þjónustuaðila. Þróunin tekur
ávallt mið af þörfum einstaklinga í þjónustu VIRK.
Á UNDANFÖRNUM ÁRUM
HEFUR ÖFLUGT ÞRÓUNAR-
STARF OG SAMSTARF VIÐ
FAGAÐILA Á SVIÐI STARFS-
ENDURHÆFINGAR SKILAÐ
SÉR Í SÍFELLT MARKVISSARI
STARFSENDURHÆFINGU
HJÁ VIRK. ÞÁ SETJA ÞARFIR
ÞJÓNUSTUÞEGA MARK SITT Á
STARFSEMI VIRK HVERJU SINNI.
Þeir aðilar sem óska eftir að gerast þjónustu-
aðilar hjá VIRK senda inn umsókn ásamt
fylgiskjölum í gegnum upplýsingakerfi VIRK.
Starfsfólk úrræðasviðs fer yfir umsóknir
reglulega og jafnóðum og þær berast ef
þörf er á því. Allar upplýsingar um samstarf,
viðmið þjónustuaðila og leiðbeiningar um
upplýsingakerfi VIRK má finna á ytri vef
VIRK ásamt fleiri gagnlegum upplýsingum
fyrir þjónustuaðila. Samstarf er á milli
úrræðasviðs og sérfræðinga VIRK ef þörf er
á að meta sérfræðiþekkingu þjónustuaðila
sérstaklega.
Sé úrræði samþykkt þarf að vera nákvæm
lýsing á því hver þjónustan er, hver gildis-
tími hennar sé, hvaða daga hún er veitt,
klukkan hvað, hvar úrræðið fer fram og verð.
Þjónustuaðilar geta sent inn breytingar á
upplýsingum úrræðis og verði en við það
sendist breytingarumsókn til úrræðasviðs
sem ber ábyrgð á því að yfirfara og sam-
þykkja eða hafna breytingum. Þessar
upplýsingar eru vistaðar jafnóðum í upp-
lýsingakerfi VIRK.
Ef gera þarf breytingar á fyrirliggjandi úr-
ræðum setjast þjónustuaðilar og starfsfólk
VIRK gjarnan niður og fara yfir árangur
núverandi úrræða og koma með tillögur um
endurbætur á núverandi úrræðum eða ný
úrræði eru þróuð eftir slík samtöl.
Stundum bætist við ný þekking eða aðferðir
sem sýnt hefur verið fram á að skili góðum
árangri og þá er úrræðum breytt eða þeim
bætt í úrræðaflóruna. Þegar sýnt er fram
á góðan árangur í tilteknum úrræðum
eykst gjarnan eftirspurn eftir úrræðinu og
þá þarf stundum að kalla eftir því að fleiri
þjónustuaðilar bjóði upp á sambærileg
úrræði eða að þjónustan verði einnig í boði
sem fjarúrræði. Það sem ræður mestu um
hvort úrræði verði eftirsótt eða vinsælt, er
hvort þörf sé til staðar fyrir úrræðið, orðspor
þjónustuaðilans og hvort úrræðið uppfylli
væntingar og þarfir einstaklinga.
Góð samskipti og eftirfylgni
Margir framúrskarandi fagaðilar á sviði
starfsendurhæfingar eru í samstarfi við
VIRK. Starfsemi VIRK snýst um einstaklinga
í þjónustu og því er stöðugt leitað leiða til að
þjónustan sé í takt við þarfir þjónustuþega.
Það sem einkennir árangursríka starfs-
endurhæfingu er góð samvinna ráðgjafa,
einstaklings og fagaðila.
Sérfræðingar VIRK rýna mál einstaklinga
eftir þörfum og þá skiptir endurgjöf frá
þjónustuaðilum til ráðgjafa miklu máli svo
hægt sé að taka afstöðu til næstu skrefa með
tilliti til framgangs í starfsendurhæfingunni.
Þegar kallað er eftir greinargerðum er
mikilvægt að fagaðilar skili þeim af sér
tímanlega. Þjónustuaðilar eru oft beðnir
um að skila lokaskýrslu til VIRK í kjölfar
námskeiða og hópmeðferða og eru
upplýsingar um mætingar, niðurstöður
matlista og tillögur að næstu skrefum í
starfsendurhæfingu nýttar til að meta hvort
færni til atvinnuþátttöku sé að aukast eða
hvort grípa þurfi inn í og breyta áætlun
einstaklings.
Úrræði sem taka mið af færni
Hvað þarf til þess að árangur náist í starfs-
endurhæfingu og hvers vegna skiptir
máli að taka mið af færni og hindrunum
til atvinnuþátttöku við val á úrræðum? Í
upphafi starfsendurhæfingar gera ráðgjafi
og þjónustuþegi áætlun um endurkomu til
vinnu. Sérfræðingar VIRK eru ráðgjöfum
og einstaklingum innan handar við mat á
þörfum fyrir þjónustu og við kortlagningu
á færni og hindrunum til atvinnuþátttöku í
upphafi þjónustu.
Lagt er upp með að tryggja einstaklingum
markvissa þjónustu á réttum tíma sem
tekur mið af færni og hindrunum hvers og
eins hverju sinni. Engir tveir eru eins og hver
og einn hefur sína sérstöku hæfileika. Því
gegnir fjölbreytt úrræðaflóra lykilhlutverki
við að efla færni ólíkra einstaklinga til
vinnu eða náms. Þá er einnig tekið mið af
styrkleikum hvers og eins og áhugasviði.
Fjöldi þjónustuaðila helst stöðugur
VIRK átti í góðu samstarfi við tæplega 500
1.800
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Útgjöld í
millj. kr.
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 Ár
Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum
um allt land 2010-2022 á föstu verðlagi
Mynd 1
Sálfræðiþjónusta + hópsálfræði
Sjálfsefling
Sjúkraþjálfun + hópstoðkerfisröskun
Sérhæfð starfsendurhæfingarúrræði
Nám og námskeið
Heilsuefling / líkamsrækt
Atvinnutengd úrræði
Önnur ráðgjöf og þjónusta
Túlkaþjónusta
24%
6%
4%
52%
7%2%
1%1%%3%
Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2022
vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum
Mynd 2
74 75virk.is virk.is