Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Page 81
VIRK
með langvinna verki geti gengist við vanda
sínum og lært að bregðast við og endurmeta
hugsanir sínar þegar ástæða er til.
Meðal þjónustuaðila hjá VIRK eru sjúkra-
þjálfarar og sálfræðingar sem bjóða upp
á virka meðferð vegna langvinnra verkja.
Til dæmis má nefna stoðkerfisfræðslu
(einnig á pólsku), líkamlega uppbyggingu
og námskeið til að gangast við þrálátum
verkjum. Einnig gæti verið gagnlegt fyrir fólk
með langvinna verki að efla sjálfsmat, setja
mörk í lífi og starfi, bæta öndun og læra
aðferðir til streitustjórnunar.
Endurkoma til vinnu
Að vera með langvinna verki er mjög
krefjandi verkefni, hvort sem fólk er í vinnu
eða ekki, en endurkoma til vinnu er eitt af
aðalmarkmiðum starfsendurhæfingar.
Orsakir verkja við vinnu eru oftast tengdar
slæmum vinnuaðstæðum og of fáum
léttitækjum auk álags tengt burði, lyftum og
því að ýta og draga8. Lausnin er gjarnan að
aðlaga betur vinnulag og vinnuaðstæður.
Þrátt fyrir það eru margir áfram með
verkjaupplifun sem mikilvægt er að viðu-
rkenna og taka tillit til. Meðferðargildi
atvinnuþátttöku er töluvert og getur
hún verið hluti starfsendurhæfingar.
Hjá VIRK er lögð áhersla á að við upphaf
starfsendurhæfingar eru einstaklingar ekki í
meira en 70% náms eða starfshlutfalli, með
það að markmiði að auka getur til náms
eða vinnu, til að hafa tök á að sækja ýmis
úrræði í starfsendurhæfingunni.
Ráðgjafar og atvinnulífstenglar VIRK
styðja fólk til vinnu og fylgja þeim
eftir í ákveðinn tíma þegar ákveðnum
stöðugleika hefur verið náð m.t.t.
starfshlutfalls. Það er gjarnan reynsla
ráðgjafa og atvinnulífstengla VIRK auk
heilbrigðisstarfsfólks að einstaklingur
með langvinna stoðkerfisverki er stundum
með efasemdir um getu sína þegar líður
að endurkomu til vinnu. „Allt eða ekkert“
hugsanir eins og það að þurfa að vera
alveg batnað, helst að verkirnir séu horfnir
áður en farið er til vinnu á ný, eru eðlilegar.
Óöryggi um hvernig endurkomu skuli
háttað er oft hindrun9. Hér skiptir máli að
hlusta á einstaklinginn, fara yfir bjargráð
og bakslagsvarnir og viðhorf hans gagnvar
endurkomu til vinnu. Meta þarf hvernig
sambandið er við fyrri vinnustað eða hvort
horfa þurfi til nýs starfsvettvangs, sem
einstaklingur gæti ráðið betur við miðað við
verkjaupplifun.
Dæmi um bjargráð í vinnu fyrir fólk með langvinna verki
• Taka stutt hlé reglulega; standa upp, breyta um setstöðu, ganga um, teygja sig.
• Brjóta reglulega upp verkefnin, m.t.t. tímalengdar og álags.
• Taka stutta slökun eða núvitundaræfingu.
• Fara í röska gönguferð úti í 5-10 mínútur til að fá púlsinn aðeins upp og
hormónin í gang (ef um slíkt er hægt að semja).
• Hléæfingar 5-10 mínútur, einu sinni á dag; einstaklings eða hópæfingar. Misjafnt
prógramm á milli daga; liðleikaæfingar, styrktaræfingar, jafnvægisæfingar,
úthaldsæfingar, teygjur og núvitundaræfingar. Þetta gæti eflt starfsandann.
• Vinnustaðaúttekt iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara.
• Fá fræðslu inn á vinnustað um langvinna verki, viðhorf til þeirra, mikilvægi
hreyfingar, temprun álags og bjargráð.
Fræðsluefni tengt langvinnum verkjum og endurkomu til vinnu
• Prevent 4work – www. p4work.com er samstarfsverkefni sérfræðinga frá
fjórum löndum; Bretlandi, Spáni, Ítalíu og Danmörku. Hér er að finna fjölmargar
upplýsingar tengdar stoðkerfisverkjum og atvinnu sem nýst geta bæði
einstaklingum, vinnustað og fagfólki.
• 10 atriði sem þú vilt vita um bakið þitt: Félag sjúkraþjálfara, í samvinnu við
sjúkraþjálfara á Reykjalundi, fékk leyfi til að þýða bækling sem upphaflega
var gefinn út af breska sjúkraþjálfarafélaginu, The Chartered Society of
Physiotherapists (CSP) árið 2017. Bæklinginn má finna hér: www.sjukrathjalfun.
is/media/skjol-a-vef/Bakid-thitt-PDF-fyrir-vefinn.pdf.
• Retrain pain: www.retrainpain.org á fjölmörgum tungumálum með stuttum
glærusýningum sem útskýra ýmislegt tengt langvinnum verkjum ásamt
andlegum og félagslegum þáttum og fleiru.
• The key to understanding pain: www.painrevolution.org/factsheets - 10 punktar
sem útskýra langvinna stoðkerfisverki og mikilvægi fræðslu og trú á eigin getu –
á nokkrum tungumálum (undir hverjum punkti).
• VELVIRK: www.velvirk.is/is upplýsingasíða tengt heilsu og atvinnuþátttöku
• Heilsueflandi vinnustaður: vinnustadir.heilsueflandi.is.
Heimildir
1. National Institute for health and care
excellence. Chronic pain (primary and
secondary) in over 16s: assessment of all
chronic pain and management of chronic
primary pain. NICE guideline Published:
7 April 2021 www.nice.org.uk/guidance/
ng193
2. Vigdís Hlíf Pálsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir
og Guðmundur Kristján Óskarsson. Tengsl
langvinnra verkja á fullorðinsárum og
sálrænna áfalla í æsku. Læknablaðið
2023;109: 67-73.
3. Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz, Elín
Broddadóttir, Sturla Brynjólfsson og fl.
Tengsl þrálátra líkamlegra einkenna við
þunglyndi og kvíða hjá þeim sem leituðu
til heilsugæslu. Læknablaðið 2021;107:
67-73.
4. Gunnarsdottir S, Ward S, Serlin R. A
population based study of the prevalence
of pain in Iceland. Scand J Pain 2010; 1:
151-157.
5. Jonsdottir T, Aspelund T, Jonsdottir H,
et. al. The relationship between chronic
pain pattern, interference with life and
health-related quality of life in a nationwide
community sample. Pain Manag Nurs
2014;15: 641-51.
Reynslan er sú að sá sem hefur tök á og
vilja til að snúa með stigvaxandi endurkomu
til vinnu er líklegri til að viðhalda starfsgetu
þegar til lengri tíma er litið. Sá sem fer
strax í fulla vinnu, gæti upplifað að úthald
til fullrar vinnu er ekki nægilegt og hann
búi ekki yfir nægum bjargráðum. Auk þess
á hann e.t.v. erfitt með að standa á sínu á
vinnustað, t.d. ef skilningi og góðu skipulagi
er ábótavant. Samstarf starfsmanns,
ráðgjafa einstaklings hjá VIRK og næsta
yfirmanns á vinnustað er mjög mikilvægt
þegar endurkoma til vinnu er skipulögð.
Vinnustaðaúttekt getur verið viðeigandi
sem og leiðbeiningar frá iðjuþjálfa
eða sjúkraþjálfara varðandi skipulag,
jafnvægi í daglegu lífi og bjargráð í vinnu.
Stuðningsviðtöl við upphaf atvinnuþátttöku
hafa einnig gefið góða raun.
Vonandi fæst jákvæðari umræða innan
heilbrigðiskerfisins um að gefa fólki með
langvinna verki meiri von um betri heilsu og
lífsgæði. Þó vandinn sé flókinn er hægt að
takast á við hann á jákvæðan hátt. Sá sem
er með verki þarf að vera virkur þátttakandi
og leyfa sér að verða bílstjórinn í sínu lífi,
í stað þess að vera farþegi og bíða eftir
bata. Oft fylgir verkjaupplifun skömm og
vanmáttur. Auk þess hefur einstaklingur
með langvinna verki stundum litla trú
á bata þar sem hann hefur ekki fengið
viðeigandi upplýsingar, fræðslu um orsakir
verkja og/eða meðferð í heilbrigðiskerfinu.
Það er auðveldara um að tala en í að
komast en með samstilltu átaki allra
aðila má snúa sveifinni í jákvæða átt. Ef
einstaklingur fer í endurhæfingu með þá
vissu að hann verði ekki betri er viðbúið
að sú verði raunin. En sem betur fer
sýna fjölmörg dæmi í endurhæfingu og
í starfsendurhæfingu hjá VIRK að með
þrautseigju og viðeigandi stuðningi hefur
fólk sem hafði litla trú í byrjun, komist
aftur út á vinnumarkað með betri heilsu og
lífsgæði.
6. National Institute for health and care
excellence. Low back pain and sciatica in
over 16s: assessment and management.
NICE guideline Published: 30 November
2016 www.nice.org.uk/guidance/ng59
7. Beemster TT, van Velzen JM, van
Bennekom CAM, Reneman MF, Fings-
Dresen MHW: Usefulness and feasibility of
comprehensive and less comprehensive
vocational rehabilitation for patients with
chronic musculoskeletal pain: perspectives
from patients, professionals, and managers.
Disabil rehabil 2022, 44(5), 754-767.
8. Januario LB, Mathiassen SE, Stevens ML,
Holtermann A: Are residents in eldercare
wards associated with musculuskeletal
pain and sickness absence among the
workers? A prospective study based on
onsite observations. Scandinavian Journal
of Work Environment & Health, 2021;
47(8), 609-618.
9. Svanholm F, Liedberg GM, Löfgren M, Björk
M: Factors of importance for return to
work, experienced by patients with chronic
pain that have completed a multimodal
rehabilitation program - a focus group
study. Disabil Rehabil, 2022, 44(5): 736-
744.
80 81virk.is virk.is