Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 81

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2022, Síða 81
 VIRK með langvinna verki geti gengist við vanda sínum og lært að bregðast við og endurmeta hugsanir sínar þegar ástæða er til. Meðal þjónustuaðila hjá VIRK eru sjúkra- þjálfarar og sálfræðingar sem bjóða upp á virka meðferð vegna langvinnra verkja. Til dæmis má nefna stoðkerfisfræðslu (einnig á pólsku), líkamlega uppbyggingu og námskeið til að gangast við þrálátum verkjum. Einnig gæti verið gagnlegt fyrir fólk með langvinna verki að efla sjálfsmat, setja mörk í lífi og starfi, bæta öndun og læra aðferðir til streitustjórnunar. Endurkoma til vinnu Að vera með langvinna verki er mjög krefjandi verkefni, hvort sem fólk er í vinnu eða ekki, en endurkoma til vinnu er eitt af aðalmarkmiðum starfsendurhæfingar. Orsakir verkja við vinnu eru oftast tengdar slæmum vinnuaðstæðum og of fáum léttitækjum auk álags tengt burði, lyftum og því að ýta og draga8. Lausnin er gjarnan að aðlaga betur vinnulag og vinnuaðstæður. Þrátt fyrir það eru margir áfram með verkjaupplifun sem mikilvægt er að viðu- rkenna og taka tillit til. Meðferðargildi atvinnuþátttöku er töluvert og getur hún verið hluti starfsendurhæfingar. Hjá VIRK er lögð áhersla á að við upphaf starfsendurhæfingar eru einstaklingar ekki í meira en 70% náms eða starfshlutfalli, með það að markmiði að auka getur til náms eða vinnu, til að hafa tök á að sækja ýmis úrræði í starfsendurhæfingunni. Ráðgjafar og atvinnulífstenglar VIRK styðja fólk til vinnu og fylgja þeim eftir í ákveðinn tíma þegar ákveðnum stöðugleika hefur verið náð m.t.t. starfshlutfalls. Það er gjarnan reynsla ráðgjafa og atvinnulífstengla VIRK auk heilbrigðisstarfsfólks að einstaklingur með langvinna stoðkerfisverki er stundum með efasemdir um getu sína þegar líður að endurkomu til vinnu. „Allt eða ekkert“ hugsanir eins og það að þurfa að vera alveg batnað, helst að verkirnir séu horfnir áður en farið er til vinnu á ný, eru eðlilegar. Óöryggi um hvernig endurkomu skuli háttað er oft hindrun9. Hér skiptir máli að hlusta á einstaklinginn, fara yfir bjargráð og bakslagsvarnir og viðhorf hans gagnvar endurkomu til vinnu. Meta þarf hvernig sambandið er við fyrri vinnustað eða hvort horfa þurfi til nýs starfsvettvangs, sem einstaklingur gæti ráðið betur við miðað við verkjaupplifun. Dæmi um bjargráð í vinnu fyrir fólk með langvinna verki • Taka stutt hlé reglulega; standa upp, breyta um setstöðu, ganga um, teygja sig. • Brjóta reglulega upp verkefnin, m.t.t. tímalengdar og álags. • Taka stutta slökun eða núvitundaræfingu. • Fara í röska gönguferð úti í 5-10 mínútur til að fá púlsinn aðeins upp og hormónin í gang (ef um slíkt er hægt að semja). • Hléæfingar 5-10 mínútur, einu sinni á dag; einstaklings eða hópæfingar. Misjafnt prógramm á milli daga; liðleikaæfingar, styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, úthaldsæfingar, teygjur og núvitundaræfingar. Þetta gæti eflt starfsandann. • Vinnustaðaúttekt iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara. • Fá fræðslu inn á vinnustað um langvinna verki, viðhorf til þeirra, mikilvægi hreyfingar, temprun álags og bjargráð. Fræðsluefni tengt langvinnum verkjum og endurkomu til vinnu • Prevent 4work – www. p4work.com er samstarfsverkefni sérfræðinga frá fjórum löndum; Bretlandi, Spáni, Ítalíu og Danmörku. Hér er að finna fjölmargar upplýsingar tengdar stoðkerfisverkjum og atvinnu sem nýst geta bæði einstaklingum, vinnustað og fagfólki. • 10 atriði sem þú vilt vita um bakið þitt: Félag sjúkraþjálfara, í samvinnu við sjúkraþjálfara á Reykjalundi, fékk leyfi til að þýða bækling sem upphaflega var gefinn út af breska sjúkraþjálfarafélaginu, The Chartered Society of Physiotherapists (CSP) árið 2017. Bæklinginn má finna hér: www.sjukrathjalfun. is/media/skjol-a-vef/Bakid-thitt-PDF-fyrir-vefinn.pdf. • Retrain pain: www.retrainpain.org á fjölmörgum tungumálum með stuttum glærusýningum sem útskýra ýmislegt tengt langvinnum verkjum ásamt andlegum og félagslegum þáttum og fleiru. • The key to understanding pain: www.painrevolution.org/factsheets - 10 punktar sem útskýra langvinna stoðkerfisverki og mikilvægi fræðslu og trú á eigin getu – á nokkrum tungumálum (undir hverjum punkti). • VELVIRK: www.velvirk.is/is upplýsingasíða tengt heilsu og atvinnuþátttöku • Heilsueflandi vinnustaður: vinnustadir.heilsueflandi.is. Heimildir 1. National Institute for health and care excellence. Chronic pain (primary and secondary) in over 16s: assessment of all chronic pain and management of chronic primary pain. NICE guideline Published: 7 April 2021 www.nice.org.uk/guidance/ ng193 2. Vigdís Hlíf Pálsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir og Guðmundur Kristján Óskarsson. Tengsl langvinnra verkja á fullorðinsárum og sálrænna áfalla í æsku. Læknablaðið 2023;109: 67-73. 3. Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz, Elín Broddadóttir, Sturla Brynjólfsson og fl. Tengsl þrálátra líkamlegra einkenna við þunglyndi og kvíða hjá þeim sem leituðu til heilsugæslu. Læknablaðið 2021;107: 67-73. 4. Gunnarsdottir S, Ward S, Serlin R. A population based study of the prevalence of pain in Iceland. Scand J Pain 2010; 1: 151-157. 5. Jonsdottir T, Aspelund T, Jonsdottir H, et. al. The relationship between chronic pain pattern, interference with life and health-related quality of life in a nationwide community sample. Pain Manag Nurs 2014;15: 641-51. Reynslan er sú að sá sem hefur tök á og vilja til að snúa með stigvaxandi endurkomu til vinnu er líklegri til að viðhalda starfsgetu þegar til lengri tíma er litið. Sá sem fer strax í fulla vinnu, gæti upplifað að úthald til fullrar vinnu er ekki nægilegt og hann búi ekki yfir nægum bjargráðum. Auk þess á hann e.t.v. erfitt með að standa á sínu á vinnustað, t.d. ef skilningi og góðu skipulagi er ábótavant. Samstarf starfsmanns, ráðgjafa einstaklings hjá VIRK og næsta yfirmanns á vinnustað er mjög mikilvægt þegar endurkoma til vinnu er skipulögð. Vinnustaðaúttekt getur verið viðeigandi sem og leiðbeiningar frá iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara varðandi skipulag, jafnvægi í daglegu lífi og bjargráð í vinnu. Stuðningsviðtöl við upphaf atvinnuþátttöku hafa einnig gefið góða raun. Vonandi fæst jákvæðari umræða innan heilbrigðiskerfisins um að gefa fólki með langvinna verki meiri von um betri heilsu og lífsgæði. Þó vandinn sé flókinn er hægt að takast á við hann á jákvæðan hátt. Sá sem er með verki þarf að vera virkur þátttakandi og leyfa sér að verða bílstjórinn í sínu lífi, í stað þess að vera farþegi og bíða eftir bata. Oft fylgir verkjaupplifun skömm og vanmáttur. Auk þess hefur einstaklingur með langvinna verki stundum litla trú á bata þar sem hann hefur ekki fengið viðeigandi upplýsingar, fræðslu um orsakir verkja og/eða meðferð í heilbrigðiskerfinu. Það er auðveldara um að tala en í að komast en með samstilltu átaki allra aðila má snúa sveifinni í jákvæða átt. Ef einstaklingur fer í endurhæfingu með þá vissu að hann verði ekki betri er viðbúið að sú verði raunin. En sem betur fer sýna fjölmörg dæmi í endurhæfingu og í starfsendurhæfingu hjá VIRK að með þrautseigju og viðeigandi stuðningi hefur fólk sem hafði litla trú í byrjun, komist aftur út á vinnumarkað með betri heilsu og lífsgæði. 6. National Institute for health and care excellence. Low back pain and sciatica in over 16s: assessment and management. NICE guideline Published: 30 November 2016 www.nice.org.uk/guidance/ng59 7. Beemster TT, van Velzen JM, van Bennekom CAM, Reneman MF, Fings- Dresen MHW: Usefulness and feasibility of comprehensive and less comprehensive vocational rehabilitation for patients with chronic musculoskeletal pain: perspectives from patients, professionals, and managers. Disabil rehabil 2022, 44(5), 754-767. 8. Januario LB, Mathiassen SE, Stevens ML, Holtermann A: Are residents in eldercare wards associated with musculuskeletal pain and sickness absence among the workers? A prospective study based on onsite observations. Scandinavian Journal of Work Environment & Health, 2021; 47(8), 609-618. 9. Svanholm F, Liedberg GM, Löfgren M, Björk M: Factors of importance for return to work, experienced by patients with chronic pain that have completed a multimodal rehabilitation program - a focus group study. Disabil Rehabil, 2022, 44(5): 736- 744. 80 81virk.is virk.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.