Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 1

Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 1
Bænavikulestrar 1958 Lestur hvíldardagsins 22. nóvember 1958. Forréttincli álijrgft |ie§s, nH vera ^jöunda-da^ AAveiiti§ti EFTIR R. R. FTGUHR „Hjarta yðar mun fagna, og enginn mun taka fögnuð yðar frá yður.“ Jóh. 16, 22. Þannig hughreysti Jesús fylgjendur sína. Þótt hinn kristni mæti oft reynslum og mót- læti í lífinu, þekkir hann samt djúpa og varan- lega gleði, og ekkert getur firrt hann þeirri gleði. „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð“, (Lúk. 2, 10.) sagði engillinn viö hina skelfdu fjárhirða, er hann boðaði þeim fæðingu frelsarans. Gleðitíðindin voru þessi: „Því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs.“ — Fylgjendur Krists hafa næga ástæðu til að gleðjast. Frelsari er kominn í þennan myrka heim með ljós lífs og ódauðleika. Fullur trúar- trausts söng Sálmaskáldið einnig um þessa fullvissu. „En sál mín skal kætast yfir Drottni, gleðjast yfir hjálpræði hans.“ Sálm. 35, 9. „En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs og kætast stórum.“ Sálm. 68, 3. Þannig á líf sannkristins manns að vera. „Kristnir menn og konur ættu að vera glaðasta og hamingju- samasta fólkið, sem til er.“ — My Life Today, bls. 177. „Bjarta og gleðilega hlið trúarbragðanna kemur fram í lífi þeirra, sem helga sig Guði daglega. Við ættum ekki að vanvirða Guð með því að kvarta og kveina undan armæðu lífsins. Allar þær reynslur, sem við trúum að eigi að vera okkur til lærdóms, eru gleðiefni. Trúarlífið í heild mun uppbyggjast og göfg- ast og verða þrungiö góðum verkum og orð- um.“ — Testimonies, 6. b. bls. 365, 366. Þar sem fagnaðarerindið' er boðað og við því tekið, ríkir ávallt gleði. „En Filippus fór norður til borgarinnar í Samaríu og prédikaði þeim Krist. .. . Og mikill fögnuður varð í þeirri borg.“ Post. 8, 5. 8. Ibúarnir í Samaríu höfðu verið hryggir og erfiðleikar lífsins íþyngt þeim, en nú vörpuðu þeir áhyggjunum frá sér og glöddust. Þeir hlutu „fagnaðarolíu í stað hryggðar, skartklæði í stað hugarvíls." (Jes. 61, 3.) Andlitsdrættir þeirra, markaðir af kvíða og áhyggjum, mýktust og ljómuðu af von. Vonin fyllti hjörtu þeirra og úthýsti sorg og kvíða. Gleði hinna kristnu í Samaríu yfir- gnæfði alla örðugleika lífsins. Gleðitíðindin gerðu þá frjálsa og losuðu þá við stöðugt sam- vizkubit. Líf þeirra varð gleöilegt. Sjálfsagt höfðu margir lifað í synd eins og konan við brunninn, sem Jesús talaði við, en þegar þeir kynntust sendiboðum Guðs og veittu Kristi viðtöku sem persónulegum frelsara, varð líf þeirra hreint og helgað. Frásögnin hermir: „Og mikill fögnuður varð í þeirri borg.“ Þessi orð tjá réttilega hverju fagnaðarerindið kem- ur til vegar. Ritstjóri veraldlegs dagblaðs fól einum LANOSEMASAFN 222563 ÍSLAfJDS

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.