Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 9

Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 9
9 Lestur mánudagsins 24. nóvember 1958. Kriwíilegur fullþroski F.FTIR REUBEN G. MANALAYSAY Kristna lífið hefst, þegar maöurinn fæðist í fjölskyldu Krists. Þegar maðurinn snýr sér til Krists, er hann eins og nýfætt barn, sem á að vaxa upp ásamt öllum þeim, sem játa nafn Krists, og ná vaxtartakmarki Krists-fyllingar- innar. Str. White vekur athygli á því, að margir, sem þekkja sannleikann, vaxi ekki og þrosk- ist eins og vera ber. Hún segir: „Þeir bera ekki ferskan vitnisburð persónulegrar reynslu í hinu kristna lífi; þeir segja ekki frá neinum nýjum sigurvinningum í hinu heilaga stríði, þess í stað verður aðeins vart við gamlar venjur, — orðalag bæna þeirra og áminninga er alltaf eins. Bænir þeirra taka aldrei á sig nýjan svip; þeir sýna engan aukinn skilning á hinu guðlega eða aukna lifandi trú. Slíkir eru ekki lifandi jurtir í garði Drottins, sem skjóta nýjum frjóöngum og gefa frá sér ilm heilags lífs. Þeir eru ekki í vexti.“ Hún segir ennfremur: „Andlega stöðnunin, sem er ríkj- andi, er ógurleg." Síðan varpar hún þessari spurningu fram: „Bræður, viljið þið að kristi- legur vöxtur ykkar sé kyrkingslegur, eða vilj- ið þið að andlegt líf ykkar taki heilbrigðum framförum?" Testimonies, 5. b. bls. 265. Sem svar við þessari spurningu ætti hver sann- kristinn maður eða kona að segja: „Guð, hjálpa þú mér að ná vaxtartakmarki Krists- fyllingarinnar." Það er vel viðeigandi að líkja upphafi hins andlega lífs við sæði, sem skýtur frjóöngum og nær fullum þroska. En fyrst verður að vera líf í sæðinu, og það gildir einnig um þann, sem vill vera barn Guðs. Jurtir og dýr eru lífs, vegna þess að Guð gaf þeim lífið. Þegar hið skapaða hefur öðlazt þetta líf, vex það og þroskast. Á sama hátt og jurtin festir rætur í jörðinni eigum við að festa rætur í Kristi. „Jurtin hlýtur annað hvort að vaxa eða deyja. Eins og vöxtur hennar er hljóður og ósýni- legur en framhaldandi er þroska hins kristna lífs farið. Líf okkar getur verið fullkomið á hvaða þroskastigi sem er, en ef tilgangur Guðs með okkur á að nást, verður stöðug framför að eiga sér stað.“ Christ’s Object Lessons, bls. 65. Hversu þýðingarmikið er það því ekki, að við komum greinilega auga á tilgang Guðs með okkur. Því að „um leið og tækifæri okkar aukast, eykst reynsla okkar og þekking. Við munum öðlast styrk til að taka okkur ábyrgð á herðar, og þroski okkar mun verða í hlut- falli við forréttindi okkar.“ Sama bók, bls. 65, 66. Á sama hátt og jurtin nærist á því, sem Guð hefur fyrirbúið til að viðhalda lífinu, „á hinn kristni að nærast á því að samstarfa með guðlegum máttarvöldum ... “ Líkamlegur þroski mannsins er háður fæðu, lofti, ljósi, hreyfingu og hvíld. Þannig er einnig kristi- legum vexti og þroska varið. Líf hins kristna þarf á næringu að halda. Sál mannsins upp- byggist á því, sem hún nærist á. „Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman, heldur á sér- hverju orði, sem fram gengur af Guðs munni.“ Matt. 4, 4. Orð Guðs er brauð frá himni. „Kæmu orð frá þér, gleypti ég við þeim; og orð þín voru mér unun og fögnuður hjarta míns, því að ég er nefndur eftir nafni þínu, Drottinn, Guð hersveitanna." Jer. 15, 16. Orð Guðs verður að komast inn í manninn og sam- lagast honum, „svo að það verði driffjöður lífsins." Nærumst við reglulega á orði Guðs? Kristur sagði: „Ef þér etið ekki hold manns- sonarins, ... hafið þér ekki líf í yður ... því að hold mitt er sönn fæða. Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð rnitt, sá er í mér og ég í honum; eins og hinn lifandi faðir sendi mig, og ég lifi fyrir föðurinn, eins mun sá lifa fyrir mig, sem mig etur. Orðin, sem ég hefi talað

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.