Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 3

Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 3
3 sögum sínum: „Líkt er himnaríki fjársjóði, er fólginn var í akri, en maður nokkur fann og faldi, og í gleði sinni fer hann burt og selur allt sem hann á, og kaupir akur þennan.“ — Matt. 13, 44. Hinn kristni öðlast beinlínis eitthvað óend- anlega verðmikið. 1 samanburði við jarðneska hluti verður það ómetanlegt. „1 dæmisögunni táknar akurinn, sem fjársjóðurinn var falinn í, Heilaga Ritingu, og fagnaðarerindið er fjár- sjóðurinn. Jörðin sjálf er ekki eins full af gullæðum og verömætum og orð Guðs.“ — Christ’s Object Lessons, 104. Það var þegar maðurinn í dæmisögunni gerði sér ljós verð- mæti fjársjóðsins í akrinum, að hann seldi allar eigur sínar, til þess að geta öðlazt akur- inn. Hann var ákveðinn í að öðlast fjársjóðinn, sem í honum fólst. Þannig er það með þá, sem uppgötva gildi himneskra verðmæta. Öllu er fórnað, frægð og eignum, og fangelsun, bar- smíð og smán er tekið með fúsu geði í skiptum fyrir gleðina, sem f jársjóðurinn veitir. Leynd- ardómur gleði hins kristna felst í því, að hann gerir sér grein fyrir gildi þess sannleika, sem orð Guðs inniheldur og tileinkar sér hann. Hinn síðasti söfnuður, sem væntir bráðrar endurkomu Drottins, hefur meiri ástæðu en nokkrir aðrir til að gleðjast. Endurkoma Krists til jarðarinnar og endanleg endurlausn fylgjenda hans er uppfylling frelsunaráforms- ins. Fullvissan um það, að þjáningar þessa tíma séu ekkert í samanburði við þá dýrð, sem á okkur muni opinberast, veitir fylgjendum hans styrk til að standast reynslur og mót- læti. Þó að börn Guðs séu ofsótt og aðþrengd, líta þau fram til þess dags, er þau munu segja: „Sjá, þessi er vor Guð; vér vonuðum á hann, að hann mundi frelsa oss ... fögnum og gleðjumst yfir hjálpræði hans.“ Jes. 25, 9. Það fer eftir því hve innilega hinn kristni þráir skjóta endurkomu Drottins, hve djúp og einlæg gleði hans er. Það hefði ekki verið hægt að hughreysta lærisveinana með neinu betra, þegar Jesús varð uppnuminn frá þeim til himins, en að segja þeim, að hann mundi koma aftur. Söfnuður Guðs nú á dögum gleðst yfir þeirri fullvissu, að Jesús muni brátt koma aftur. Þrátt fyrir mótlæti, ofsóknir og ást- vinamissi, „hugga þeir hver annan með þess- um orðum.“ Frumherjar Aðventhreyfingarinnar tjáðu oft gleði sína vegna tilhugsunarinnar um end- urkomu Krists í söng. „Ó, sú huggun, ó, sú gleði, að vér skulum bráðum fá syngja Móse söng og lambsins, sælu dýrðarlandi á.“ Sálm. og Lofs. nr. 164. „Ó, blessuð stund, er ljóss í sölum ljómar Guðs ljósið skært og hinzta er stigið fet; og söngur skær hjá himinsveitum hljómar, og hryggð ei mæðir neinn, sem áður grét.“ Sama bók nr. 169. Þótt hinn kristni gleðjist, vegna þess að brátt mun von hans rætast, gleymir hann ekki ábyrgðinni, sem hann ber gagnvart með- bræðrum sínum. Hann verður að gera þá einnig hluttakendur þeirrar vonar, er hann elur með sér. Heimurinn þarfnast þessarar vonar. Það er engin önnur lausn á vandamál- um heimsins en að ríki þessa heims verði að ríki Guðs, sem mun standa að eilífu. Á máli spámannsins er jörðin orðin eins og útslitið fat. Án fullvissunnar um endurkomu Krists, er framtíðin myrk og vonlaus. „Drottinn kem- ur, og ekki dvelst honum,“ segir Sálmaskáld- ið. „Lítið upp, því að lausn yðar er í nánd.“ Þannig talar Guð til hinna bíðandi barna sinna, sem lifa á hinum síðustu og örðugu tímum. Það er aðeins hægt að beina vonar- augum sínum „upp“, þar sem Guð heldur enn í taumana og vakir yfir velferð barna sinna. Hvernig getur hinn kristni bezt sýnt trú sína og gegnt ábyrgðarstarfi sínu sem vottur Guðs nú á dögum? Á það að vera munnlegur vitnisburður formlegrar trúar? Um líf Meist- arans sjálfs á jörðunni er sagt: „Og lífið var ljós mannanna." Kristið líferni er enn þann dag í dag áhrifaríkasti vitnisburðurinn. „Við eigum ekki aðeins að vitna um Guð með því að prédika sannleikann eða útbreiða bókmenntir. Minnumst þess jafnan, að kristi- legt líferni er öflugasta röksemdafærslan kristindóminum í vil, og að auvirðilegt hátt- erni kristins manns vinnur meira tjón í heim- inum en hátterni veraldlegs manns. Allar bækur samanlagt geta ekki komið í staðinn fyrir helgað líferni. Menn munu trúa því, sem söfnuðurinn lifir, en ekki því, sem prédikar- inn segir í ræðustólnum. Lifandi prédikun

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.