Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 16

Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 16
— 16 — þau væru megnug. Án þess að bíða lengur, sprautuðum við rúmlega tveimur lítrum af vökva inn í æðar hans, og til þess að fá sótt- hitann niður, lögðum við á hann heita bakstra, auk þess komum við hreyfingu á loftið með því að hreyfa blævæng körftuglega yfir höfði hans. Þessar aðfarir vöktu undrun og andúð hinnar syrgjandi fjölskyldu. Þessi róttæka lækningaðaferð, að sprauta vatni beint inn í blóð hans, og að nota vatn til að kæla sóttheit- an líkama hans, samfara innilegri bæn allra viðstaddra, varð til þess að sjúklingurinn fékk meðvitund, áður en þrjár stundir voru liðnar Stuttu síðar fékk hann skýra hugsun og var úr allri hættu. Hann lifði mörg ár eftir þennan merkilega afturbata. Vatnið var eina iæknis- lyf okkar. Notum við, sem höfum nóg heitt og kalt vatn í húsum okkar, þennan lífgefandi möguleika til fulls? Það er leitt að þurfa að tala um hve fólk virð- ist vera hrætt við hreint loft. Það er ekki langt síðan fólk talaði um hvað næturloft væri hættulegt. Fólkið í Indlandi og Afríku er enn þann dag í dag hrætt við næturloft. Af loftill- um heimilum, já, og líka kirkjum og skólum og fundarsölum, gæti manni dottið í hug, að enn væru þeir til, sem hræddust hreint loft. Hreint loft er ódýrasta og um leið eitt hinna áhrifamestu lyfja til heilsuverndar. Það er vel viðeigandi að minnast á sólar- ljósið um leið og hreint loft. Sólskinið er hlunnindi, sem hægt er að njóta mestan hluta ársins í mörgum löndum. Hve fáir fara ekki út í þeim tilgangi að njóta sólarljóssins! Jafn- vel í þeim löndum og á þeim stöðum, sem sólar nýtur, hafa nútíma lifnaðarhættir okkar hrif- ið okkur úr sólskininu, sem þó stendur okkur til boða. Ein bezta hjálpin til að viðhalda góðri heilsu, og e. t. v. það, sem við vanrækjum mest, er heilnæm líkamsþjálfun og skemmtun. Marg- ir virðast líta á líkamsþjálfun sem fyrirhafn- armikinn munað, sem þeir hafa naumast tíma til. Gífurlegur hraði nútima lífs hefur einmitt orðið til þess, að svifta kynslóð okkar allri líkamsþjálfun. Þeim, sem vinna mikið sitjandi, í skrifstofunni, í skólanum og í hvers konar innilokunar-vinnu, er sér í lagi brýn þörf á líkamsþjálfun, sem þeir fá hvorki tíma né tækifæri til að iðka. Margir, sem þannig eru bundnir innandyra, vanrækja eina raunveru- lega tækifærið, sem þeir hafa til líkamsþjálf- unar. í stað þess að ganga jafnvel stutta vegalengd, aka þeir í bifreið og ræna sjálfa sig þar með beztu og hollustu líkamshreyfing- unni, sem til er. Langar gönguferðir á degi hverjum myndi bæta heilsuna, lengja lífið og auka hamingju manna. Þeir, sem stunda vinnu, er felst í langvinn- um innisetum og vanrækja jafnframt líkams- þjálfun og langar gönguferöir, svo að blóð- rásin í heild kemst aldrei á verulega hreyf- ingu.vöðvar né önnur líffæri líkamans,gera svo oftsinnis illt verra með því að gæta engrar hófsemi í mat. Afleiðingar þessarar hræðilegu vanrækslu eru ósjaldan hjartabilun eða slag. Við tökum ekki of djúpt í árinni í sambandi við þennan þátt heilsuverndar. Við lesum eftir- farandi í ritum Str. White: „Þeir, sem eru veikbyggðir og daufgerðir, ættu ekki að láta eftir sér að aðhafast ekkert og með því svifta sjálfa sig útilofti og dagsbirtu, heldur ættu þeir að iðka líkamsæfingar utandyra með þyí að ganga eða vinna að garðyrkju. ... Athafna- leysi veikir líffærin, sem ekki eru þjálfuð, og þegar þessi líffæri eru svo tekin í notkun, veldur það þreytu og sársauka, vegna þess að vöðvarnir hafa linazt. ... Gönguferðir, hvar sem þeim verður við komið, eru bezta læknis- lyfið fyrir veika líkami, vegna þess að öll líf- færi líkamans eru tekin í notkun, þegar gengið er ... Engin líkamsþjálfun getur komið í stað gönguferða." — Testimonies, 3. b. bls. 78. Við lesum ennfremur: „Þegar veður leyfir, ættu allir, sem mögulega geta, að ganga sér til hressingar undir berum himni á hverjum degi, jafnt vetur sem sumar.“ Counsels on Health, bls. 52. — Einn af mestu sérfræðing- um Bandaríkjanna í hjartasjúkdómum, var ný- lega spurður að eftirfarandi: „Hvað álítið þér að sé bezta ráðið til að verjast hjartabilun, næst á eftir hófsemi í mat?“ Svar hans var í stuttu máli á þessa leið: „Næst á eftir hóf- sömu mataræði, er hagnýtasta ráðið til að hindra hjartabilun, að temja sér langar göngu- ferðir á degi hverjum." Viðvíkjandi þessum náttúrulyfjum, sem við höfum þegar rætt um, lesum við í „Ministry af Healing" bls. 127: „Hreint loft, sól, bind- indissemi, hvíld, líkamsæfingar, hófsamt mat- aræði, notkun vatns og traust á guðlegum mætti, — þetta eru sönn læknislyf." — Við

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.