Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 17

Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 17
— 17 — höfum rætt um mikilvægi lofts, Ijóss, vatns, hvíldar og líkamsþjálfunar og hólfsemi í mat- aræSi, en hvað um traust á guðlegum mætti? Kristur sjálfur er upphafsmaður þessarar leiðar til heilsuverndar. Hann segir við þá, sem hlaðnir eru áhyggjum og kvíða hins dag- lega lífs: ,,Komið til mín, allir þér, sem erfið- ið og þunga eru hlaðnir, og ég mun veita yð- ur hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá skuluð þér finna sálum yðar hvíld; því að mitt ok er indælt og byrði mín létt.“ — Matt. 11, 28—30. Það er e. t. v. kvíðinn og byrð- arnar, — óvissan og óttinn í lífinu, — sem fremur nokkru öðru orsaka sjúkleika nútíma- mannsins. „Hjarta yðar skelfist ekki; trúið á Guð og trúið á mig.“ Og aftur hughreystir hann okkur með þessum orðum: „Frið læt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður; ekki gef ég yður, eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist." Jóh. 14, 1. 27. Pétur postuli segir þeim, sem vænta komu Drottins: „Varpið allri áhyggju yðar upp á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður.“ 1. Pét. 5, 7. E. t. v. felst bezta hjálpin, sem hinn kristni getur hlotið, í því að vera sífellt önnum kaf- inn við að vinna fyrir aðra, þá, sem eru í neyð. Jesaja 58. kap. minnir okkur á, að það sé verulegur lækningamáttur í því að létta byrð- ar annarra. „Nei, sú fasta, sem mér líkar, er að leysa fjötra rangsleitninnar, láta rakna bönd oksins, gefa frjálsa hina hrjáðu og sund- urbrjóta sérhvert o'k; það er að þú miðlir hin- um hungruðu af brauði þínu, hýsir bágstadda, hælislausa menn, — ef þú sér klæðlausan mann, að þú þá klæðir hann og firrist eigi þann, sem er hold þitt og blóð.“ Og loforðið hljóðar þannig: „Þá munt þú hljóta skjótan bata.“ (Ensk þýð.) („og sár þín gróa bráð- lega.“ ísl. þýð.) Jes. 58, 6—8. Við munum ekki kynnast fullkominni heilsu, fyrr en við komum í ríki Guðs. Við lesum um hina Nýju Jerúsalem: „Á miðju stræti borg- arinnar, og beggja vegna móðunnar, var lífs- ins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt, á mánuði hverjum gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum.“ Op. 22, 2. — í sambandi við þennan lækningamátt meðal barna Guðs er okkur gefið þetta fyrirheit: „Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra, og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein, né kvöl er framar til; hið fyrra er farið.“ Op. 21, 4.

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.