Bænavikan - 22.11.1958, Side 28

Bænavikan - 22.11.1958, Side 28
erni hans. Fram að þeim tíma hafði enginn þeirra manna, sem til hans komu, verið eins efnilegir og þessi maður. Hvílíkir möguleikar biðu hans ekki! Vissulega bjó þessi vel gefni maður yfir hæfileikum til að verða forvígis- maður réttlætisins. Til þess að beina lífi hans í auðugri farveg, stakk Jesús upp á því, að hann fórnaði einhverju. Hann langaði til þess að gera unga manninum skiljanlegt, að það að halda boðorðin, þó að það væri lofsvert og nauðsynlegt, væri í sjálfu sér ekki nóg. Ungi maðurinn fór hryggur í burtu, með því að hann var ekki fús til að færa þá fórn, sem krafizt var af honum. Þó að hann vissi það ekki, hafði hann glatað bezta tækifæri lífs síns. Hann hélt fast utan um auðævi sín, en glataði eilífum verðmætum. í stað þess að verða mikill leiðtogi í starfi Guðs og ábyrgjast fé hins frumkristna safnaðar, er ekki minnst á hann framar. Það eina, sem eftir verður, er frásögnin um hve hryggilega hann brást. Aðeins Heilagur andi getur skapað kristi- legt lunderni og áhrifaríkt vitni. Það er ekki eiginlegt mannlegu eðli að vera góður, kær- leiksríkur, fullur gleði og friðar, til þess þarf kraftaverkamátt Guðs anda. Guð talar til þín, æskumaður nútímans, gegnum anda sinn. Þeg- ar hann horfir á þig, fer honum að þykja vænt um þig. „Son minn, gef mér hjarta þitt,“ segir hann við hvern ungan mann, og við hverja unga konu segir hann: „Komið til mín. Takið á yður ok mitt og lærið af mér.“ Peningar eða háar stöður hafa engin áhrif á hann. Hann fann Davíð, þar sem hann gætti kinda; Gídeon, þar sem hann var að þreskja hveiti í vínþröng; Pál á leiðinni til Damaskus. Plann fann Amos, sem var hjarðmaöur og ræktaði mórber; hann var fátækastur allra. Þó tók Drottinn hann frá hjarðmennskunni og sagði við hann: „Far þú og spá hjá lýð mínum Israel.“ í hans augum hefur staða eða stétt ekkert að segja, heldur fúsleiki til að hlusta og hlýða. Ef þið gefizt honum, munuð þið verða talin með hinum útvöldu Guðs,ogþað munveitaykk- ur víðtæka möguleika auðugs og gleðilegs sam- félags við hann og þjónustu með honum. Þið munuð verða eitthvað langtum meira en þið hefðuð nokkru sinni getað orðið án hans. Unga fólkið verður að láta sér skiljast, að hjálp- ræði fæst fyrir trú, og að tilfinningin ein er tilviljanakennd og hverful. Þér má ekki verða það glappaskot á að miða andlegt líf þitt við reynslu annarra, heldur gera þér ljóst, að trú- arbrögð hvers og eins bera svip af persónu- legri afstöðu hans til Krists. Þú getur verið þess fullviss, að ef þú leyfir Kristi að ríkja í hjarta þínu, mun hann móta kristilegt lund- erni þitt í samræmi við vilja sinn. Það lítur út fyrir að stundum finnist fólki andlegu mál- in vera mikilvæg, vegna þess að einhverjum utanaðkomandi finnst þau vera það, eða vegna þess að tilfinningum þess er þannig varið í svipinn, og stundum finnst því andlegu málin vera tiltölulega lítilvæg ýmissa ástæðna vegna, sem setja svip á líf þess eða einhvers, sem er því nákominn. Þar með er andlegum megin- reglum varpað fyrir borð, en hentugleikarnir látnir ráða. Staðfesta í skoðunum er skilyrðið fyrir því að lifa andlegu lífi. Ungu vinir, þið verðið að leitast við að stuðla að stöðugum andlegum vexti og þroska hið innra með ykkur. Það er hægt að gera það með reglulegri og nákvæmri rannsókn á Biblí- unni og einlægri íhugun og bæn, sem er hvort tveggja í senn að tala við Guð og hlýða með athygli á hann. Unga fólkið verður að bera virðingu fyrir kirkjunni sem húsi Guðs, þar sem tilbeiðsla og sálnavinnandi starf fer fram. Þið megið aldrei láta það eftir ykkur að van- helga hana með léttúð eða nokkurs konar hegð- un, sem er ósæmandi á helgum stað. Sama máli gegnir um allt, sem heilagt er. Þið ættuð aldrei að láta tal ykkar bera gáleysi vott, þeg- ar um trúmál er að ræða, eins og algengt er meðal ungs fólks nú á dögum. Kristilegt lund- erni ykkar mun einnig birtast í því, að þið heiðrið foreldra ykkar, auðsýnið þeim kær- leika og berið tilhlýðilega virðingu fyrir öllum yfirboðurum ykkar. Unga fólkð getur aðeins aukið áhuga sinn og hæfileika í starfinu fyrir Guð með virkri þátt- töku og trúarlegri viðleitni. Þið ættuð þess vegna að leitast við að uppgötva sérhæfni ykk- ar og helga ykkur þeim starfsgreinum af heil- um hug, þar sem hún getur notið sín bezt. Ungu vinir, gefið aldrei neinum tilefni til að álíta, að þið skammizt ykkar fyrir trú ykkar. Verið þvert á móti svo hreykin af hugsjónum hennar markmiðum, að þið upphefjið þann Krist, er þið þjónið, í augum þeirra, sem þið umgangizt. Þið munuð komast að raun um, að ef þið látið alltaf og alls staðar bera mest á

x

Bænavikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.