Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 30

Bænavikan - 22.11.1958, Blaðsíða 30
— 30 — samkvæm, bíður meira en jarðneskt endur- gjald. Fyrir þá er undirbúin borg ,á traustum grundvelli, þeirrar sem Guð er smiður að og byggingarmeistari1. Heb. 11, 10. Stræti henn- ar eru gulli lögð. í henni er Paradís Guðs, sem lífsíljótið rennur um og á upptök sín við há- sætið. Á miðju strætinu, beggja vegna móð- unnar, er lífsins tré, sem ber ávexti á mánuði hverjum; ,og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum'. Foreldrar, kennarar og nemendur, minnizt þess, að þið eruð að byggja fyrir eilífðina. Gætið þess að grundvöllurinn sé traustur; byggið síðan með einbeitni og þolgæði en jafnframt með blíðu, auðmýkt og kærleika, þá mun hús ykkar standa óhagganlegt, ekki að- eins þegar stormar freistinganna bylja á því, heldur þegar steypiflóð reiði Guðs skella á heiminum.“ — Counsels to Teachers, bls. 62,63. Lestur hvíldardagsins 29. nóvember 1958. ICriiiiir |»iiii^ainiA|a haðskaparinw EFTIR E. G. WHITE Boðskapur þriðja engilsins felur í sér kall um að halda hvíldardag fjórða boðorðsins heilagan, og þetta sannleiksatriði verður heimurinn að fá vitneskju um; en þungamiðja þess alls, Jesús Kristur, má ekki verða undan- skilin í boðskap þriðja engilsins. Margir, sem ráðnir hafa verið í starfið á okkar dögum, hafa gert Krist að aukalið, en kennisetningar og röksemdir að aðallið. Dýrð Guðs, eins og Móse sá hana, hefur ekki verið haldið á lofti. Drottinn sagði við Móse: „Ég vil láta allan minn Ijóma líða fram hjá þér.“ „Síðan gekk Drottinn fram hjá honum og kallaði: Drottinn, Drottinn, miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður og gæzkuríkur og harla trúfastur, sem auðsýnir gæzku þúsundum og fyrirgefur misgjörðir, afbrot og syndir, en lætur þær þó eigi með öllu óhegndar.“ 2. Mós. 33, 19; 34, 6. Það lítur út fyrir að hula hafi verið fyrir augum margra, sem starfað hafa fyrir mál- efni Guðs, þannig að þegar þeir töluðu um lögmálið, hafi þeir ekki komið auga á Jesúm eða lagt áherzlu á þá staðreynd, að þar sem syndin jókst, þar flóði náðin yfir enn meir. Á krossinum á Golgata mættust miskunn og sannleikur og réttlæti og friður kysstust. Verkamenn í víngarði Drottins ættu að boða réttlæti Krists, ekki eins og nýtt ljós heldur eins og dýrmætt Ijós, sem mennirnir hafa um langt skeið misst sjónar á. Við eigum að taka á móti Kristi sem persónulegum frels- ara, og hann mun tileinka okkur réttlæti Guðs í Kristi. Við ættum að cndurtaka þessi sann- indi, sem Jóhannes setti fram, og halda þeim á lofti: „í þessu er kærleikurinn: ekki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar.“ í kærleika Guðs hefur opnazt undursamlegt svið dýrmæts sannleika, og fjárhirzlur náðar Krists hafa opnazt upp á gátt fyrir söfnuðin- um og heiminum. „Því að svo elskaði Guö heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Hvílíkur kærleikur, undraverður og órannsakanlegur kærleikur, sem kom Kristi til að deyja fyrir okkur meðan við enn vorum í syndum okkar. Hvílíkt tjón er það ekki fyrir þann mann, sem skilur strangar kröfur lögmálsins, að geta samt ekki skilið, að náð Krists flóir enn meira yfir. Það er rétt, að lögmál Guðs opinberar kærleika Guðs, þegar það er boðað sem sannleikur í Kristi; því að megináherzla skyldi jafnan lögð

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.