Heimili og skóli - 01.12.1946, Blaðsíða 10

Heimili og skóli - 01.12.1946, Blaðsíða 10
128 HEIMILI OG SKÖLl in, sem falla af augum móðurinnar, hressa og endurnæra hjarta hennar, sem orðið er þreytt og kvalið, og það fær þrótt og hugrekki á ný. Annars mundi það visna af sorg og and- streymi, því að börnin eru ekki alltaf eins góð og móðurhjartað óskar og vonar. Þegar Drottinn hafði skapað börn- in, breyttist allt. Mennirnir gengu nú ekki lengur um í Paradís kaldir á svip og kærulausir. Það varð brátt allt of þröngt fyrir alla þá, sem uxu upp, svo að þeir urðu að flytja sig í önnur lönd, sem ekki voru jafn góð. Nú hófst bar- áttan við hungur og kulda, sem menn- irnir heyja síðan stöðugt. Og um leið komu áhyggjurnar og óttinn, samfara umhyggjunni fyrir börnunum. Nú má oft sjá skugga þreytu og hugarangurs hylja andlit foreldranna, en þegar þeim verður litið á börnin sín kæru, hverfa sorgarskýin og geislar gleði og hamingju ljóma þar í staðinn, því að allir foreldrar vona, að börnin öðlist þá hamingju, sem þeir ekki hlutu. Síðan þetta gerðist eru stöðugar svipbreytingar á ásjónum mannanna. Þar má ýmist sjá gleði, hryggð, sárs- auka eða frið hvern dag. Og þótt það virðist ótrúlegt, þá er það þó áreiðan- lega satt, að fyrir það eru þeir orðnir bæði fegurri og miklu hamingjusam- ari. Eiríkur Stefánsson þýddi. GLEÐILEG JÓL! GOTT OG FASÆLT KOMANDl ÁR! Varnarræða Fjörutíu ára gömul varnarræða kom mér í hug í dag af sérstökum ástæðum. Hún er frönsk að uppruna. Frakkar höfðu þá tekið burt kristindóms- fræðslu úr skólum sínum. Oar er ungl- ingur einn hafði gerzt sekur um morð, hélt verjandi hans eftirfarandi ræðu fyrir réttinum: „Herrar mínir, ég hef hér lítið að gjöra. Drengurinn hefur meðgengið. Hann verður því ekki Varinn. Samt verð ég að bæta við nokkrum orðum. Ég sé hér fyrir framan mig mynd af frelsaranum. Hún hangir hér í við- hafnarstofu yðar, þar sem þér kveðið upp dóma yfir sakkmönnum. En hví heyrist ekkert um hann í skólum yðar, sem þér sendið börnin yðar í? Hví fær glæpamaðurinn fyrst að sjá hann hér, þegar hann er orðinn brotlegur við lögin? Ef honum hefði verið sýndur hann meðan hann sat á skólábekkn- um, hver veit nema þér hefðuð þá orð- ið lausir við að sjá hann hér á saka- mannabekknum? Það eruð þér, sem ég ákæri. Þér, sem þykist af menntun yð- ar, en farið villur vegar, þér, sem breiðið út vantrú og munaðarsýki meðal fólksins og látið yður svo furða á því, þó að það svari yður aftur með siðleysi og glæpum. Dæmið þér dreng- inn. Þér hafið rétt til þess. En ég ákæri yður. Það er skylda mín.“ Og það er rétt að minnast þess nú, að það var einmitt munaðarsýkin, sem olli því, að drengurinn vann glæpinn. Hann myrti til fjár. (Úr gömlu Skólablaði). Sn. S.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.