Heimili og skóli - 01.12.1946, Síða 20
138
HEIMILI OG SKÓLl
Burt með sælgætið
— Eftir sœnskan lcekni. —
Hér er mikið um brjóst.sykursát
meðal barna. Oft má sjá þau í stórum
hópum utan við sælgætisbúðirnar.
Jafnvel mjög ung börn fá við og við
brjóstsykur eða annað sælgæti frá for-
eldrum sínum eða frændfólki. Sælgæt-
isátið er mög mikið útbreitt hér á
landi, ekki aðeins meðal barna, heldur
einnig meðal fullorðins fólks af öllum
stéttum. Og sælgætisát er ódýr nautn.
En nautnameðal verður það að teljast.
Og því miður er þetta nautnameðal
alls ekki eins saklaust, eins og almenn-
ingur álítur.
En sykur hefur þó næringargildi,
segja margir í mótmælaskyni. Það er
alveg rétt. Eiginleikar hans eru þeir,
að hann eyðir miklu af vökva munn-
vatnskirtlanna 0? dregur úr matai'-
lyst. Það er hægt að borða mikið af
sykri. Þess vegna þarf aðeins lítið af
honum til að sefa hungur. En full-
komin fæða er sykurinn ekki. Það
vantar í hann bæði steinefni og bæti-
efni, en bæði þessi efni eru nauðsyn-
leg hverjum hraustum líkama með
heilbrigðum tönnum.
Fi' menn hafa rétt blandaða fæðu,
þá fá menn nóg af bætiefnum og stein-
efnum í henni. Hyggilegt er þó að fá
bætiefnaskammt að vetrinum, eða gefa
börnunum þá þorskalýsi. Fyrir heil-
brigða tannmyndun þarf þó aðeins A
og C bætiefni.
Að borða sælgæti á milli máltíma
eða rétt á undan þeim, er alveg óhæft.
Þá spilla menn matarlystinni með
hinu steinefna- og bætiefnalausa sæl-
gæti. Svo geta menn ekki borðað hæfi-
lega mikið af matnum, sem hefur inni
að ihalda öll þau næringarefni, sem
nauðsynleg eru til að halda líkaman-
stjórastörfum nú aftur í 6 ár. Lét af
skólastjórn 1902, er Sig. Sigurðsson tók
við skólanum, en var eftir það fyrsti
kennari skólans allt til ársins 1934.
Æviatriða og margvíslegra opin-
berra starfa þessa gagnmerka kennara
og afburða starfsmanns verður annars
eigi unnt að geta í þessu litla riti. Að-
eins skal á það bent, hvílíka þýðingu
hann hefur haft fyrir starfshérað sitt
og land sem grundvallandi Hólaskóla,
sem frábær fræðari í hagnýtum búvís-
indum um hálfrar aldar skeið, sem af-
kastamikill starfsmaður í trúnaðar-
störfum margvíslegra þjóðfélagsmála,
og þá einnig sem hugheill, eldheitur
og tryggur málsvari bindindishugsjón-
arinnar.
Má óhikað segja, að með Jósef
Björnssyni sé til moldar genginn einn
af merkustu menningarfrömuðum
samtíðar vorrar. Hér sé því tjáð heil-
huga þökk fyrir langt og merkilegt
ævistarf hans fyrir land og þjóð.
Blessuð sé minning hans.