Heimili og skóli - 01.10.1948, Side 9

Heimili og skóli - 01.10.1948, Side 9
HEIMILI OG SKÓLI 105 ÓLAFUR GUNNARSSON FRÁ VÍK í LÓNI: Skólamál K a u p m a n n a h af n a r Sálarfræðiskrifstofa skólanna í greinum, sem ég hef skrifað í Heimili og skóla, um skólamál Kaup- mannahafnar, lief ég lauslega minnzt á sálarfræðiskrifstofu skólanna, en mun liafa kallað liana barnasálarfræði- skrifstofu. Þar eð starfsemi skrifstof- unnar nær einnig til unglinga, er rétt- ara að nota heitið Sálarfræðiskrifstofa skólanna, enda réttari þýðing á orð- unum: Skolepsykologisk Kontor. Eðlilegt er, að lesendur spyrji: Hvert er starfssvið þessarar skrifstofu? Starfssvið hennar er að rannsaka börn þau og unglinga, sem kennarar eða foreldrar telja, að nauðsynlegt sé að sálfræðingar athugi. Að rannsóknum loknum ber sálarfræðingunum að gefa skólum ráð, og íylgjast þeir síðan með ferli barnanna eða unglinganna, með- an þess er talin þörf. Hvers konar börn og unglinga má senda til athugunar á sálarfræðiskrif- stofu skólanna? 1. Börnu, sem haga sér þannig í skólunum, að framkoma þeirra trufli kennsluna og annað eðlilegt skólalíf, meira en góðu hófi gegni. 2. Taugaveikluð börn, t.d. hræðslu- gjörn, ókyrr, þau, sem naga neglur sínar, geta ekki lialdið þvagi o. s. frv. 3. Börn, sem ekki geta fylgst með í venjulegu skólanámi t. d. móðurmáli og reikningi. 4. Börn, sem virðast vera meðal- greind, en haf samt ekki gagn af kennslu. 5. Börn, sem kennarar telja, að setja beri í hjálparbekki, sökum greindar- skorts. 6. Börn, sem talin eru fávitar. Sé um slík börn að ræða, kemur einnig til kasta sálsýkisfræðinga, lækna o. fl. Sé málfæri, sjón eða heyrn barn- anna gölluð, eru þau ekki send til sál- fræðiskrifstofunnar, heldur í sérskóla, sem rannsaka börn, sem þjást af þess- um göllum. Þjáist börnin einnig af áðurnefndum orsökum, má senda þau til skrifstofunnar. í hverjum skóla eru til sérstök eyðublöð með ýmsum spurningum, sem kennari sá, er óskar eftir aðstoð skrifstofunnar svarar. Eyðublaðið er sent skrifstofunni, og er sálfræðingur- inn hefur kynnt sér nákvæmlega þær upplýsingar, sem kennarinn lætur í té, kemur hann í heimsókn til skólans. Fyrsta verk sálfræðingsins, er í skólann kemur, er að tala við bekkjar- kennarann eða skólastjórann, stund- um báða. Reynir sálfræðingurinn þá að afla sér nánari upplýsinga um barn það, er prófa skal. Að þessum sam- tölum loknum nær sálfræðingurinn í barnið og ríður rnikið á, að liann vinni hylli þess þegar í stað. Oft er barnið andvígt skólanum og lætur þess getið, að kennarinn sé fáviti og skólastjórinn blábjáni. Slíkum mannlýsingum tek-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.