Heimili og skóli - 01.10.1948, Qupperneq 12
108
HEIMILI OG SKÓLI
Sextugur:
Friðrik Hjartar
skólastjóri
Þann 15. sept. síðastliðinn varð
Friðrik Hjartar, skólastjóri á Akra-
nesi, sextugur, þótt ótrúlegt sé.
Friðrik er fæddur 15. sept árið 1888
í Arnkötludal í Steingrímsfirði. For-
eldrar hans voru Hjörtur Bjarnason
og Steinunn Guðlaugsdóttir, en ung-
ur að aldri fluttist hann til frænda
síns og nafna, Friðriks Bjarnasonar
hreppstjóra að Mýrum í Dýrafirði,
og ólst hann þar upp.
Friðrik Hjartar stundaði fyrst nám
við gagnfræðaskólann í Flensborg, en
seinna í Kennaraskóla íslands, og
lauk prófi frá báðum þeim skólum.
Að afloknu námi gerðist Friðrik
skólastjóri á Suðureyri í Súgandafirði
og gegndi því starfi til ársins 1932, en
þá varð hann skólastjóri við Barna-
skóla Siglufjarðar, og var það í nokk-
ur ár. Þá var hann námsstjóri á Norð-
urlandi eitt ár, en gerðist síðan skóla-
stjóri á Akranesi og hefur verið það
síðan.
Friðrik Hjartar er að mörgu leyti
óvenjulegur maður. Og það, sem fyrst
vekur á honum athygli, er hið ósvikna
glaðlyndi hans og lífsfjör, sem frá
honum streymir, hvar sem hann fer.
Hann er því hinn mesti aufúsugestur
á öllum mannamótum, og svo söng-
elskur er hann og söngvinn, að hann
getur komið öllum til að syngja, þótt
þeir hafi aldrei gert það áður. Þetta
hvort tveggja eru gullvægir kennara-
eiginleikar.
Ég kynntist Friðriki Hjartar ekki
fyrr en hann kom til Siglufjarðar, en
allvel eftir það, og þá aðeins að góðu.
Hann er góður félagi, hlýr í viðmóti
og alltaf fylgir honum hressandi gust-
ur. Hann hefur jafnan reynzt ágætur
félagi og liðsmaður í kennarasamtök-
um okkar hér nyrðra og ekki aðeins
lagt þar til gleði og söng, heldur góð
ráð og leiðbeiningar, og þá einkum
við hina vandasömu móðurmáls-
kennslu. Höfum við saknað þessa góða
og glaða drengs, eftir að hann flutti
sig sunnar á hnöttinn.
Friðrik Hjartar er einn af þeim
mönnum, sem afsannar það, að menn