Heimili og skóli - 01.10.1948, Blaðsíða 14
110
HEIMILI OG SKOLI
Ólafur Gunnarsson:
Tuttugu ára afmæli
surnarbúðarinnar Alhage
Hínn 18. sept s. I. átti ein merkasta
nppeldisstofnun Dana tuttugu ára af-
mæli. Ýmsir láta sér eflaust detta í hug
háreista byggingu og sæg starfsfólks,
er minnzt er á uppeldisstofnun, en
hvorugu er til að dreifa í þessu sam-
bandi.
Uppeldisstofnunin, sem hér er um
að ræða, er sumarbúð handa veikluð-
um börnum, ein af mörgum, en þó
á hún engan sinn líka.
Sumarbúðin Alhage stendur í ná-
grenni lítils bæjar, sem heitir Ebel-
toft. Ebeltoft er einn allra elzti bær
Danmerkur. Arið 1301 veitti Erik
Menved konungur honum kaupstaða-
réttindi. Næsta nágrenni Ebeltoft er
hið fræga Molbúaland, sem allir
þekkja úr skrýtlum og gamansögum,
en fæstir íslendingar munu liafa heim-
sótt þennan unaðsfagra stað., sem á fáa
sína líka innan vébanda Danmerkur.
Að morgni hins 18. sept. kom ég
með næturlestinni frá Kaupmanna-
höfn til Ebeltoft til þess að taka þátt
í hátíðahöldunum og hylla stjórnanda
Alhagebúðarinnar, Bendix Hansen
vin minn.
Sumarbúðin í Alhage