Heimili og skóli - 01.10.1948, Blaðsíða 16
112
HEIMILI OG SKOLI
fagnaði því af heilum liug, að íslenzku-
kennsla skyldi nú loks verða hafin í
Höfn, aðeins var hann í vafa um
hæfni sína til þess að takast kennsluna
á hendur, sá efi er þo algerlega ástæðu-
laus.
Þetta var útúrdúr frá frásögninni
um hátíðahöldin, en mér fannst til-
hlýðilegt að gera grein fyrir því, hvers
vegna ég segi frá þessu afmæli, öðr-
um dönskum afmælum fremur.
í miðju Bendix Hansen og Ólafur Gunnarsson. Til hliða fánaberar og trumbuslagari
Skátarnir ltöfðu ekki komið tóm-
hentir. Vinir Bendix í Ebekoft höfðu
samið lag og kvæði og sungu nú skát-
arnir og spiluðu hyllingaróðinn í
fyrsta sinn svo að hann heyrði.
Skátarnir héldu heim, en aðrir gest-
ir komu í þeirra stað. Klukkan 19
komu milli 50 og 60 gestir frá Ebel-
toft og sveitinni í kring um sumar-
búðina, og var þá setzt að snæðingi.
Rafmagnsleiðslan var eyðilögð, svo a’ð
við borðuðum við kertaljós.
Undir borðum voru haldnar marg-
ar ræður fyrir minni Bendix-hjón-
anna. Mun ég greina frá aðalefni
o o
þeirra, því að þær lýsa tilgangi sumar-
búðarinnar og hvernig Bendix hefur
náð settu marki.
Tilgangur sumarbúðanna er að
veita veikluðum börnum sex vikna
hressandi dvöl á fögrum stað fjarri
skarkala borgarinnar. Stefnuskráin
leggur aðaláherzluna á líkamlega vel-
ferð barnanna. Fyrir þeirri velferð er
vel séð á Alhage og því óþarft að ræða
hana frekar.
Hvernig eru nú drengirnir, þegar
þeir korna til Alhage? Upp og ofan
eins og gengur, en margir hverjir eru
illa uppaldir, fúsir til hrekkja og