Heimili og skóli - 01.10.1948, Síða 21

Heimili og skóli - 01.10.1948, Síða 21
HEIMILI OG SKÓLI 117 að ætla að taka allt of bókstaflega þá reglu, að börnin eigi að fara að borða með skeið 6 mánaða gömul. Það skipt- ir engu, livort það er einum mánuðin- um fyrr eða seinna. Móðirin á að reyna að gera máltíð- irnar að gleðistundum og koma breyt- ingunni á smátt og smátt. Hún á að- eins að gefa barninu lítið í hvert sinn, og hina nýju matartegund á hún að geía því á undan öðrum mat, þegar barnið er svangt. Það á aðeins að bjóða þ\ í nýja tegund, þegar það er í góðu skapi, og takið umfram allt ekki röð matartegundanna með allt of mikilli kreddufestu. Ef barnið verður þess vart, að það fær ekki það, sem það vill helzt, fyrr en það hefur borðað kar- töflurnar, verður því auðvitað illa við þær. Það er ekki skynsamlegt að bjóða barninu á hverjum degi þann mat, sem fyrirfram er vitað, að því geðjast ekki að, enda þótt það standi einhvers staðar í bókum, að þennan mat eigi það að borða á þessu aldursstigi og svo hinn matinn á öðru aldursstigi. Það er misskilinn lærdómur. Ef barnið vill sjálft halda á bollanum eða skeiðinni, þá lofið því að reyna það, jafnvel þótt eitthvað fari til spillis. Gefið því nægan tíma til að borða, hálf klukkustund ætti að vera nægi- legt. Takið svo leyfarnar frá því án þess að ávíta það, og jafnvel án þess að setja upp nokkum örvæntingarsvip. Börn eru miklu næmari á allt slíkt en við gerum okkur hugmynd um. Byrjið svo á næsta verkefni dagsins, eins og ekkert sé, jafnvel þótt hálfur súpu- diskur standi á borðinu fyrir framan barnið. Lítil atvik geta spillt matarlystinni, og ber þá að reyna að finna hver þau eru. Ef barnið er eitthvað æst, eftir gestakomu, leik, eða það er orðið þreytt, borðar það ekki eðlilega. Þá borðar það venjulega minna, og það er barninu hollast. Loks má ekki gleyma því, að skyndilegt lystarleysi getur verið merki um sjúkleika, t. d. ofkælingu, tanntöku, eða eitthvað annað. Sé barnið undir þessum kring- umstæðum þvingað til að borða, veld- ur það jafnan uppköstum. Margar mæður liafa óþarfa áhyggjur út af mataræði barna sinna. Langsam- lega flestir erfiðleikar í sambandi við það eru ekki eins alvarlegir og foreldr- arnir halda. Margir þeirra stafa bein- línis af of mikilli umhyggju þeirra ("og þá ekki síður afa og ömmu) fyrir því, að barnið borði sem mest. Það eru oft næsta einkennilegar hugmyndir, sem sumir gera sér um það, hvað barnið þurfi mikið að borða. Ef læknir, sem hefur venjulega mikla reynslu í þess- um efnunr, fullyrðir, að ekkert sé að barninu, þá hættið að liafa áhyggjur út af lystarleysi þess. Það er fyrsta sporið til að allt komist í gott lag. Svefninn. Önnur algeng umkvörtun er þetta: „Barnið mitt sefur ekki nóg.“ Þegar um hvítvoðung er að ræða, er óhætt að gefa þetta svar: Þér er óhætt að láta barnið sjálft um það. Það seíur sem sé nákvæmlega þann tíma, sem það þarf að sofa. Öðru máli gegnir, þegar barn- ið er orðið tveggja ára. Úr því getum við ekki látið barnið sjálft ákveða svefntíma sinn, því að þar kemur margt annað til greina, kvo sem ótti við einveru, ótti við myrkrið. martröð,

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.