Heimili og skóli - 01.10.1948, Síða 23
HEIMILI OG SKÓLI
119
og siðgæðisgrundvöllur — Mótbárur og efnis-
hyggja — Guðstrúin — Tvær guðsmyndir —
Eilífðartrúin — Mannlífshugsjón kristindóms-
ins — Siðgæðisliugsjón kristindómsins.
Þetta er hollur lestur hverjum hugsandi manni
sem vill átta sig á rökum lífsins og tilgangi,
hvort sem hann vill standa á sjónarhóli efnis-
hyggjunnar eða Guðstrúarinnar. En valið á ekki
að vera erfitt eftir þá rannsókn. Það er óhætt
að mæla með þessari bók, og liafi höfundurinn,
Dr. Árni la'knir Amason, þókk fyrir liana.
Dick Douglas:
SKÁTAFÖR TIL ALASKA.
Eirikur Sigurðsson kennari þýddi.
Útgefandi Bókaforlag Æskunnar.
Fyrir þremur árum kom út bók eftir þennan
höfund, sem vakti viða athygli, og það því
fremur sem höfundurinn var þá barn að aldri,
aðeins 13 ára gamall. Bók sú nefndist Grænlands-
för mín. Nú hefur þessi sami höfundur sent
frá sér nýja bók, eða þá, sem að ofan getur.
Bók þessi er, eins og nafnið bcndir til, eins-
konar ferðasaga til Alaska og um Alaska, þetta
lítt þekkta og fjarlæga land. Hún er full af ævin-
týrum og skemmtilegum frásögum, sem íslenzkir
drengir munu hafa gaman af að lesa. Bókin
skiptist í þessa kafla og gefa fyrirsagnir þeirra
nokkra hugmynd um efnið:
Óvæntur atburður — í Klettafjöllum Kanada
— Ég læri að „rekja spor“ — Haida Indiá'nar —
Gullnemarnir — Kodiakeyjan — Hræðilegur
dagur — Skógarbjörn verður manni að bana —
Bjarndýrsspor — Georg særði skógarbjörn — Ljós-
myndir af skógarbjörnum — Strandaðir á Eyðiey
— Hvalveiðar — Hvalirnir skutlaðir.
Það er óhætt að mæla með þessari bók við
börn og unglinga, eins og venjulegt er með
bækur þær, sem Æskan gefur út.
Björn Daníelsson og Steingrimur
Bernharðsson:
LESTUR OG TEIKNING
títg.: Bókaforl. Þorsteins M. Jónssonar
Þetta er bók, sem ætluð er til lestrarkennslu
og átthagafræði. Hún skiptist í 60 stutta kafla
og fylgir mynd hverjum kafla. Efni kaflanna
er valið úr daglega lífinu til sjávar og sveita
og gefur tilefni til athugana og samtala við börn-
in um ýmis átthagafræðileg efni, og er það mikill
kostur. En höfuðkostur bókarinnar er þó sá, að
hún er rituð á léttu máli, þó ekki neinu barna-
máli, og er því mjög hentug til notkunar við
lestrarkennslu, þcgar börnin eru orðin nokkuð
stautandi. Kaflarnir eru mátulega langir, svo
að börnunum óar ekkert að byrja á einum
kafla, og vegna þess, hvað þeir eru léttir og
samansettir af algengum orðum, fá börnin traust
á getu sinni og verða örugg og áhugasöm. Slíkar
bækur eru alltaf kærkomnar.
Myndirnar lífga efnið mjög upp, en hefðu
annars þurft að vera betri.
Höfundarnir hugsa sér að láta koma út fleiri
heíti af þessari lestrarbók, og mætti þá laga ýmsa
smágalla, sem kynnu að koma í ljós á þessari,
þegar hún hefur verið tekin í notkun.
H.J.M.
ÖLLU ÓHÆTT.
Jens kemur þjótandi inn til mömmu sinnar
og biður hana að lána sér skæri.
„Hvað ætlar þú að gera við þau?“ spyr móðir
hans.
„Gera með?“ étur Jens eftir. „Við erum að
leika Indíána og við ætlum að fletta höfuðleðr-
inu af Stjána."
„Eruð þið alveg orðnir band-vitlausir?“ segir
móðirin.
„Nei, mamma. Við ætlum ekki beinlínis að
taka af honum höfuðleðrið, við ætlum bara að
klippa af honum hárið."
ÞAÐ VAR UNDARLEGT.
I’étur: „Hvers vegna rignir, pabbi?"
Pabbi: „Til þess að trén og blómin geti vax-
ið.“
Pétur: „En hvers vegna rignir þá á gang
stéttina?"
MUNIÐ AÐ GREIÐA
Heimili og skóla fyrir næstu áramót