Heimili og skóli - 01.04.1953, Síða 5
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
12. árgangur Marz—Apríl 1953 2. hefti
Eru próf í barnaskólum nauðsynleg?
Fastheldni við próf er ákaflega mik-
il á íslandi. Þess vegna, meðal annars,
hefur lýðháskólahreyfingin átt svo erf-
itt uppdráttar hér. Þegar héraðsskól-
arnir voru stofnaðir, væntu margir
þess, að þarna væru að rísa upp
menntastofnanir, sem teldu sig hafa
ráð á að hafna prófum, eitthvað í lík-
ingu við lýðháskólana dönsku, sem
eru grundvöllur alþýðumenntunar-
innar þar í landi, en í reyndinni urðu
þetta venjulegir gagnfræðaskólar með
tilheyradi prófum, og með fræðslulög-
unum nýju, voru þeir reyrðir í enn þá
fastari fjötra prófa og einkunnagjafa.
Próf í einhverri mynd eru í fljótu
bragði eðlileg, og sums staðar eru þau
sjálfsögð. Bæði er það, að kennarar
vilja sjá árangur verka sinna, og svo
vilja skólayfirvöld og aðstandendur
nemenda einnig sjá árangur skóla-
kennslunnar. Prófin hafa vafalaust
átt, og eiga kannske enn, að vera að-
hald fyrir duglitla kennara. Þau eiga
að vera eins konar varúðarráðstöfun,
sem þjóðfélagið gerir, til þess að kenn-
ara hafi hæfilegt aðhald í starfi sínu.
Það er hugsanlegt, að þeir kennarar
séu til, sem þurfa á því at halda, en
ég efast þó um það. F.n á það má
benda, að þarna eru prófin svo óná-
kvæmur mælikvarði, að sé svo, að til
séu svikulir kennarar, geta þeir vissu-
lega á margan hátt farið í kringum
prófin til þess að gera hlut sinn betri.
Hins vegar hafa prófin svo marga
galla, og fela í sér svo margar liættur,
að það er fullkomin ástæða til að end-
urskoða tilverurétt þeirra í almenn-
um barnaskólum. En einhverja stærstu
hættuna tel ég þá, að þau séu gerð
að takmarki í stað þess að nota þau,
sem aðferð eða leið til að ná tak-
marki, og verður síðar komið að þessu
atriði. Þetta er hættuleg gildra, bæði
kennurum og nemendum, sem margir
falla þó í viljandi eða óviljandi. Því
segi ég: Því minna sem prófin eru
höfð í huga við kennsluna, því betra.
Þetta hljómar kannske eins og öf-
ugmæli nú á þessari miklu prófa- og
mælingaöld. En þetta er þó rétt. Próf-
in eru svipa, sem reidd er að hötði
nemendanna allan veturinn, og því
hærra er hún reidd sem nær líður
prófi. Prófið er sá mikli dómstóll, sem
dæmir nemendurna, kennarann og
skólann. Og er þá að undra, þótt skóla-
starfið sé sniðið eftir kröfum próf-
anna, sem oft eru í harla litlu sam-
ræmi við andlegar þarfir nemendanna
og óskir kennaranna. Enda nýtur góð-