Heimili og skóli - 01.04.1953, Side 9
HEIMILI OG SKÓLI
29
Gagnkvæmur skilningur kennara og
foreldra er grundvöllur að góðum
árangri af uppeldis- og kennslustarfi
skólanna.
Lað eru til mörg góð rit á íslenzku
um uppeldismál, en þau eru, því mið-
ur, lesin af tiltölulega fáum. Bækur
eru dýrar og áhugi almennings á upp-
eldismálunr ekki nægilega vakandi.
Æskilegast væri, að bækur um upp-
eldismál væru til á hverju heimili í
landinu. Bókmenntafélögin ættu að
minnast þess, þegar þau velja útgáfu-
bækur sínar. En það er hægt að leita
fleiri ráða. Hér hafa blöðin verk að
vinna. Þau eiga að birta skipulega
greinar um uppeldis- og skólamál. Þau
gætu birt orðrétta kafla úr viður-
kenndum uppeldisritum og tímarit-
um. Á þann hátt er hægt að vekja
áhuga almennings og veita hagkvæma
fræðslu og þekkingu.
Útvarp og blöð hafa sterk og mikil
áhrif á hugsunarhátt og siðferðismat
þjóðarinnar á hverjum tíma. Það velt-
ur því á miklu, að þessir aðiljar flytji
þann boðskap, sem til mannbóta horf-
ir. Hver og einn getur gert upp við
sjálfan sig, hvernig blöðin rækja það
hlutverk. Það er annars furðanlegt, að
í dálkum blaðanna skuli varla sjást
lína um uppeldismál. Blöðin eru þó
vettvangur, þar sem uppeldisfræðing-
ar, og aðrir. leiðsögumenn í uppeldis-
og skólamálum, geta náð til fólksins.
Ef fólkið kemur ekki til þeirra, þá
verða þeir að koma til fólksins. Það
er ekki nægilegt að hlusta stöku sinn-
um á erindi um uppeldismál í útvarpi.
Það þarf að lesa þau og lesa þau oft.
Eru það blöðin, sem ekki sækjast eftir
greinum um uppeldismál, eða fá þau
ekki efni hjá þeim, sem getu hafa og
þekkingu. Allir foreldrar ættu að
kaupa tímaritin Heimili og skóla og
Menntamál. í þeim ritum er margt
góðra greina um uppeldis- og skóla-
mál. Þau fjalla um mesta vandamálið,
uppeldi æskunnar.
Margir foreldrar eiga dýrmæta
reynslu. Uppeldisfræðin á að hjálpa
þeim til þess að draga réttar ályktanir
af þeirri reynslu.
Hér skulu nefndar nokkrar ágætar
bækur um uppeldis- og barnasálar-
fræði:
Þroskaleiðir eftir dr. Símon Jóh.
Ágústsson, próf.
Leikir og leikföng eftir sama.
Athöfn og uppeldi eftir dr.Matthías
Jónasson.
Mannbætur eftir Steingrím Ara-
son, kennara.
Barn á virkum degi eftir Áse Grude
Skard, þýdd af frú Valborgu Sigurð-
ardóttur, skólastjóra.
Uppeldið eftir Bertrand Russel,
þýdd af Ármanni Elalldórssyni, skóla-
stjóra.
Hagnýt barnasálarfræði eftir Char-
lotte Biihler, þýdd af Ármanni Hall-
dórssyni, skólastjóra.
Foreldrar og uppeldi eftir Th.
Bögelund, þýdd af Jóni N. Jónassyni,
kennara.
Frá vöggu til skóla eftir Susan
oo
Isaaks, þýdd af dr. Símoni Jóh. Ágústs-
syni, próf.
Drengurinn þinn eftir Frithjof
Dahlby, þýdd af Freysteini Gunnars-
syni, skólastjóra.