Heimili og skóli - 01.04.1953, Blaðsíða 10

Heimili og skóli - 01.04.1953, Blaðsíða 10
I 30 HEIMILI OG SKÓLI ALBERT JÓHANNSSON: Sitt af hverju tagi frá Kaupmannahöfn Allt er breytingum undirorpið og það, sem talin er góð latína í dag, er dæmt óhæft á morgum Þannig er tíminn. Ef við reynum ekki að fylgj- ast með, drögumst við aftur úr áður en varir. — Verðum gamaldags, eins og það er kallað. Þetta á ekki hvað sízt við um okkur kennarana og okk- ar starf. Kröfur tímans breytast og við verðum að reyna að fylgja þeim. Þess vegna þurfum við stöðugt að hafa vakandi athygli á því, sem er nýtt og eftirbreytnisvert hjá starfsbræðrum okkar. Vaninn getur orðið okkur hættulegur, ef hann gerir starf okkar dautt og vélrænt. í eftirfarandi köflum er skýrt frá ýmsu, sem borið hefur fyrir augu mín og eyru í kennslufræðinámi mínu í vetur við Kennaraháskólann í Kaup- mannahöfn. Mér hefur þótt þetta at- hyglisvert og skrifa þetta niður af því, að ég gæti hugsað mér, að einhver íslenzkur starfsbróðir, sem þessar lín- ur les, sæi þar e. t. v. eitthvað, sem gæti orðið honum að liði, eða vakið hjá honum hugmyndir um eitthvað nýtt og gott. Skreyting skólastofunnar. Ef þið hafið milli handa einhverja mynd, sem prýtt gæti skólastofuna, þá er hér auðveld aðferð til að „inn- ramma“ hana á ódýran hátt. Takið krossviðarspjald jafnstórt myndinni og límið hana þar á. Kantarnir eru síðan heflaðir og slípaðir með sand- pappír, og því næst litaðir með vatns- lit, dekstrin-lit eða hvað það nú er, sem maður hefur við hendina. Litur- inn á að vera sá sami og á myndinni, svo að kantarnir verði ekki áberandi ljósir. Að því loknu er mvndin lökk- uð með cellolose lakki. Bezt er að geta sprautað því á, en þó er hægt að nota góðan pensil, án þess að ójöfnur komi á flötinn. Þá er myndin tilbúin og hér þurfti engan ramma og ekkert gler. Auk þess var þetta mjög fljót- gert og ódýrt, og myndin er laus við þann leiða galla, sem allar myndir í glerramma hafa, þ. e. að endurspegla ljósið. Litmyndir úr erlendum tímaritum, myndir úr landafræði, sögu, náttúru- fræði o. fl. eru ágætlega vel til falln- ar að nota í þessum tilgangi. Og ef þið viljið hengja myndina upp, þá er þannig hægt að búa til einfaldan hanka: Finnið þann stað aftan á kross- viðarspjaldinu, þar sem venjulegt er að festa hankann. Gerið þar dálitla rauf með mjóu sporjárni eða hnífs- oddi og heftið sinkli úr heftivél yfir raufina. Nemendur geta auðveldlega hjálpað til að innramma myndir á jrennan hátt, og þær er einnig hægt að nota til að skreyta ganga og for- stofur skólans með. Smámyndir, sem klipptar eru út í hvítan pappír og límdar á svartan grunn, eru líka ágætlega \el fallnar

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.