Heimili og skóli - 01.04.1953, Síða 23

Heimili og skóli - 01.04.1953, Síða 23
HEIMILI OG SKÓLI 43 öðru lagi væri unnt að lesa orð, þótt bókstafirnir væru svo smáir, að ein- stakir bókstafir greindust -ekki. í þriðja lagi mætti lesa orð úr svo mik- illi fjarlægð, að einstakir bókstafir greindust ekki. I fjórða lagi bentu þeir á, að auðveldast væri að þekkja orð, þar sem formið væri einkennandi. Rannsóknir þessar sýna, að áríðandi er að kenna börnunum að þekkja orð- in og ekki aðeins stafina, þar eð lest- urinn byggist á orða- en lítið á stafa- þekkingu hjá lrinum æfða lesanda. Þetta má ekki skilja á þann veg, að ekki sé nauðsynlegt að börnin læri vel og vandlega að þekkja alla bók- stafina, mun ég gera nánar grein fyrir því síðar. Við eru nú komin svo langt, að við höfum gert okkur ljóst, að lestur £er þannig fram, að augað hreyfist í smá- stökkum og stöðvast 4—5 sinnum í venjulegri línu, hjá æfðum lesanda, sem skynjar lestrarefnið í orða- og jafnvel setningaheildum. Hins vegar vitum við enn lítið um, hvernig úr- vinnsla heilans fer fram, eins og ég gat um áður. Enn höfum við aðeins athugað til- gang lestrar og hvernig sá, sem kann að lesa, fer að því, við komum nú að því, hvernig þetta lærist og er þá eðli- legt að staldra ögn við þá spurningu, livenær heppilegt muni vera, að lestr- arnám hefjist. Þess er þá fyrst að geta, að öllum börnum hentar ekki að hefja lestrar- nám á sama aldri. Hér á landi er lestrarnámið látið hefjast, þegar börn eru sjö ára, og mörgum börnum hent- ar vafalaust vel að læra að lesa, þegar þau eru á þeim aldri, en þetta er alls ekki algild regla. Sum börn geta sér að skaðlausu hafið lestrarnám fyrr, en flestum hentar þó betur að hefja það síðar. Amerískir sálfræðingar hallast að þeirri skoðun, að lestur eigi ekki að kenna í opinberum skólum, fyrr en börnin séu orðin átta ára, og rök- styðja þeir þá kenningu sína, meðal annars með því, að augu barnanna hafi ekki náð nægilegum þroska fyrr. í öðru lagi gera þeir ráð fyrir, »ð börn- in verði að minnsta kosti að hafa náð, 6.5 til 7 ára vitaldri áður en lestrar- nám hefst, en helmingur 7 ára barna, nær ekki sjö ára vitaldri, fvrr en eftir sjö ára aldur. Þá hafa rannsóknir einnig leitt í ljós, að jafnvel þótt barnið hafi áskil- inn vitaldur, þá er það ekki alltaf nóg, til þess að heppilegt sé að hefja lestr- arkennslu, þar kemur einnig til greina málþroski, orðáforði, alhliða skyn- færaþroski, félagsþroski og ef til vill, ekki sízt, þroski tilfinninganna. í því sambandi er rétt að minnast á eitt mikilsvert atriði í öllu skólastarfi, og það er að skapa þá væntingu, sem nauðsynleg er til þess, að barnið gangi með áhuga og krafti, að lausn við- fangsefna. Leyndardómar góðrar kennslu eiru einkum í því fólgnir að vekja áhuga barnanna fyrir því, sem gera skal, hvaða aðferðir kennari not- ar, til þess að skapa slíkan áhuga, verð- ur hann að miklu leyti að ákveða sjálfur, en yfirleitt mun happacjrjúgt að tala jöfnum höndum til skynsemi og tilfinninga, þó þannig, að tilfinn- ingunum sé gert heldur hærra undir höfði en skynseminni. Þegar lestrar- námið hefst, verður börnunum að

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.