Heimili og skóli - 01.04.1953, Side 24

Heimili og skóli - 01.04.1953, Side 24
44 HEIMILI OG SKÖLI vera ljóst að þau geti liaft bæði gagn og gaman af því að verða læs. Mun þeim tíma því aldrei vera illa varið, sem kennarinn notar til að lesa hátt fyrir börnin, sögur og ævintýri, því að á þann hátt heyra þau og sjá, hversu ánægjulegt það er að geta ráðið í strik þau og boga, sem mynda orð og eins eykst orðaforði þeirra ósjálfrátt við að hlusta á lestur kennarans. Af því, sem þegar hefur verið sagt, er augljóst, að sum börn hafa ekki lestrarnámsþroska 7 ára gömul, en til þess að fullvissá okkur um það enn frekar skulum við athuga örlítið nánar, hvernig börnin eru, sem koma í fyrsta bekk. Ég hef þegar bent á, hversu mis- munandi vitaldur þeirra er, og er það eitt út af fyrir sig nóg til þess að munurinn á þeim hlýtur að vera talsverður, en þó að sá munur sé einn út af fyrir sig meira elr nógur til þess, að ókleift sé að láta 30 börn í sama bekknum hafa fullt gagn af venju- legri bekkjarkennslu, kemur margt fleira til greina. Hvert barn er, þegar skólagangan hefst, að því leyti sjálf- stæður persónuleiki, að engin tvö börn eru eins, enda hafa börnin mótazt á mismunandi heimilum, við hin ólík- ustu skilyrði. Áhrif heimilanna á börnin eru margfalt meiri en áhrif skólanna geta nokkurn tíma orðið. Er þar um svo sjálfsagðan hlut að ræða, að þar þarf engar skýringar. Til þess að skilja, hversu mismunandi persón- ur 7 ára börn geta verið, er nóg að benda á litla snáðann, sem er aðeins fimm ára að vitaldri, á fimm til sex systkini, fátækan, ekki alveg reglusam- an föður og lítt gefna, hirðulitla móð- ur. Þessi snáði á nú að setjast við hlið sonar háskólaborgarans, sem hefur 9 ára vitaldur, á aðeins eina systur, nýtur umhyggju greindrar og ástríkr- ar móður allan daginn, auk leiðsagn- ar föðurs, sem leyst getur úr spurn- ingum hans af þekkingu og með þeirri innsýn í sálarlíf lítils barns, sem hlúir að frjóöngum þroskans, bæði á sviði vits og tilfinninga. Þetta er eitt dæmi af mörgum. Hver sem vill getur nefnd ótal mörg önnur, en öll hníga þau að sama marki, sem sé því, að öll rök mæli á móti því að ætla öllum bömum sama námsefni, það er álíka skynsamlegt og að ætla dvergi og trölli jafnmikla fæðu. Næsta spurning, sem eðlilega verð- ur á vegi okkar, er sú, hívernig eigi að kenna lestur. Ég skal strax taka það fram, að þeirri spurningu verður ekki svarað með því að skrifa ein- hvern almennan lestrarlyfseðil. Börn- in, sem á að kenna, eru ólík. Kenn- ararnir, sem kenna þeim, eru mismun- andi, daglegt umhverfi barnanna sömuleiðis, aðferðirnar, sem beitt eru, margar. Ein þeirra reynist einum vel, önnur hinum. í annað hefti tíunda árgangs Heimilis og skóla skrifaði ég grein um lestraraðferðir. Lýsti ég í þeirri greín nokkrum helztu aðferð- um 14 mismunandi lestraraðferða og mun ég ekki endurtaka hér það, sem þar er skráð, en aðeins benda á, að þótt ég lýsti aðferðunum hverri fyrir sig, þýðir það ekki, að ég telji heppi- legt að rígskorða sig við einhverja ákveðna aðferð, miklu fremur tel ég sjálfsagt, að taka það úr hverri þeirra, sem hver og einn telur, að gagni megi verða. (Framhald.)

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.