Læknaneminn - 01.12.1959, Page 10
10
LÆKN ANEMINN
Um læknisfræöinám í Engiandi.
Er vér læknastúdentar í mið-
hluta hófum nám síðastliðið
haust, urðum vér varir við, að nýr
félagi var kominn í vorn hóp. Var
maðurinn hinn torkennilegasti,
ífærður svörtum jakka, skreyttum
silfurlituðu útflúri og einkennis-
stöfum í barmi. Bersýnilega út-
lendingur, sögðu menn, en enginn
vissi nánar, hver maðurinn var.
Brátt kom þó í ljós, að hér var
kominn John Benedikz, sonur
Eiríks Benedikz, counsellors í
London, og merkið mystiska í
jakkabarminum var skólamerki
frá St. Bartolomew’s Hospital.
John fluttist utan 8 ára að aldri
og hefur því að mestu alizt upp
í London og stundað þar læknis-
fræðinám við St. Bartholomew’s
Hospital. Fluttist heim í fyrra-
haust og heldur nú áfram námi
hér við háskólann.
Þar sem vér vissum, að enskt
skólafyrirkomulag er harla ólíkt
því íslenzka, gengum vér á fund
Johns og báðum hann að fræða
oss lítillega um brezkt læknanám.
Brást hann vel við því.
Fullir af fróðleiksfýsn og ósegj-
anlegri bjartsýni báðum vér hann
þá að byrja að útskýra fyrir oss
skólagöngu barna og unglinga í
Englandi og þær kröfur, sem þar
eru gerðar til nemenda, er kom-
ast vilja í háskóla. En þetta
skyldum vér aldrei hafa gjört.
Eftir að hafa setið sveittir við
að hlusta í stundarfjórðung, með
blýantinn á lofti, báðum vér
manninn í guðsbænum að hætta
hið bráðasta. Virðist vera um ó-
teljandi tegundir skóla að ræða
og ógjörningur fyrir hvítan mann
að átta sig á allri þeirri kaos.
Hættum vér því að rannsaka mál-
ið af svo vísindalegri nákvæmni,
en báðum John að fylgja oss á
fjölförnustu leið nemenda til há-
skólanáms.
Algengast er, segir John, að
nemendur, sem hyggja á fram-
haldsnám, fari í svonefndan
Grammar-school eða Public-
school. Námsefnið í skólum þess-
um er hið sama, en sumum þykja
hinir síðarnefndu fínni (Eton og
Harrow eru t. d. public-schools),
enda þurfa nemendur þar að
borga allt að 400 £ á ári í skóla-
gjöld, en ekkert í þeim fyrrnefndu,
sem eru ríkisskólar. Um 15—16
ára aldur ljúka nemendur þessara
skóla O-level rófi í hinum marg-
víslegustu námsgreinum. Þá
breytist námið. Nemendur velja
sér ca. 4 námsgreinar, sem þeir
hafa áhuga á, og 18—19 ára
ljúka þeir svokölluðu G.C.E.A. og
S. level prófi í þessum greinum.
Próf þetta veitir inngöngu í há-
skóla.
Hvað um Jæknisfræðinám?
í London eru 9 stórir spítalar,
sem jafnframt annast lækna-
kennslu, hver útaf fyrir sig. Eru
þetta sjálfstæðar kennslustofnan-
ir, en nemendur við alla þessa
spítala eru þó innritaðir í Univ.
of London og teljast nemendur
þar. Mjög er erfitt að komast að
við spítala til náms. Sækja alltaf
miklu fleiri um námsvist, en tekn-
ir eru. Velur hver spítali sér því
nemendur og eiga prófessorarnir
viðtal við hvern umsækjanda, áð-
ur en valið fer fram.
Hvernig er námstilhögun ?