Læknaneminn - 01.07.1967, Blaðsíða 22
ss
LÆKNANEMINN
bakteríulyf vinna því á þessum
sýklum. Margir aðhyllast nú þá
skoðun, að Psittacosis sýklar séu
sérstakur flokkm- baktería, og að
þeir eigi ekkert skylt við veirur.
Uppruni veira.
Til eru tvær höfuðkenningar um
uppruna veira. Önnur kenningin
er sú, að veirur hafi þróazt af
ákveðnum tegundum baktería,
sem smám saman hafi misst öll
líffæri og efnakerfi bakteríufrum-
unnar nema genin og eggjahvítu-
efni, sem þeim eru tengd. Þannig
hafi veirurnar smám saman orðið
algjörlega háðar hýsilfrumunum
um alla lífsstarfsemi. Það megi
þannig líta á þær sem kröfuhörð-
ustu og þar með sérhæfustu
bakteríur, sem til séu.
Hin kenningin, sem margir að-
hyllast nú, gerir ráð fyrir því, að
frumuhlutar, til dæmis hlutar af
litningaþráðum (DNA) eða þá
RNA þræðir, sem bera erfðaboð
frá genum kjarnans til frymisins,
geti losnað úr tenglsum við sína
upphaflegu frumu. I langflestum
tilvikum eyðileggjast þeir utan
frumunnar. En einstaka sinrnn má
gera ráð fyrir, að þeir komist inn
í frumur annarrar tegundar og
þá gefst þessum utanaðkomandi
kjarnasýruþráðum tækifæri til að
koma þar á framfæri þeim erfða-
boðum, sem í þeim eru falin. Oft-
ast anzar fruman ekki þessum
framandi boðum. En í örfáum til-
vikum má hugsa sér, að rétt skil-
yrði séu fyrir hendi til þess að
hin framandi kjarnasýra nái tök-
um á starfsemi frumunnar og
beini henni að einhverju leyti að
framleiðslu framandi eggjahvítu-
efna og kjarnasýru sem síðar
tengjast saman og verða upphaf að
veiru. Þegar nýrri veiru hefur
þannig tekizt að nema land er lík-
legt, að þróun hennar lúti sömu
lögmálum og þróun sjálfstæðra líf-
vera, þannig að smám saman velj-
ist úr þau afbrigði, sem spjara sig
bezt, bæði utan hýsilfrumunnar og
innan hennar.
HEIMILDASKRÁ:
Andrewes, C. H.: Classification of
Viruses of Vertebrates. Adv. Virus
Research 9, 271—296, 1962.
Andrewes, C. H.: Viruses of Vertebrates.
Bailliére, Tindall and Cox, London
1964.
Andrewes, C. H.: Viruses and Noah’s
Ark. Baeteriol. Rev. 29, 1—8, 1965.
Bang, F. B.: Effects of invading organ-
isms on cells and tissues in culture.
In: Cells and Tissues in Culture.
Methods, Biology and Physiology,
Vol. 3. Edited by E. N. Willmer.
Academic Press, London and New
York, 1966.
Lwoff, A., Horne, R. and Tournier, P.:
A System of Viruses. In: Basic
Mechanisms in Animal Virus Bio-
logy. Cold Spring Harbor Symposia
on Quantitative Biology, Vol.
XXVII, New York, 1962.
Lwoff, A. and Tournier, P.: The
classification of viruses. Ann. Rev.
Microbiol. 20, 45—74, 1966.
Moulder, J. W.: The relation of the
Psittacosis groups (Chlamydiae)
to bacteria and viruses. Ann. Rev.
Microbiol. 20, 107—130, 1966.
Smith, K. M.: Viruses. Cambridge Uni-
versiay Press, 1962.
Smith, W. (Editor): Mechanisms of
Virus Infection. Academic Press,
London and New York, 1963.
Wildy, P. and Horne, R. W.: Structure
of animal virus particles. Progr.
Med. Virol. 5, 1—42, 1963.