Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Blaðsíða 13

Læknaneminn - 01.07.1967, Blaðsíða 13
LÆKNANEMINN 13 verksvið almennra lækna ætti að vera innan sjúkrahúsanna, þar eð enn er eftir að rannsaka það nánar. Sjálfsgt má deila um framtíðarskipulag læknisþjónustu, bæði inn- an sjúkrahúsa og utan þeirra. Um hitt verður tæpast deilt, að hlutur almennra lækna verður að breytast, og til þess duga ekki lög né reglugerðir einvörðungu. Mikið veltur á viðhorfi læknanna sjálfra ■— og læknaefna. Fram til þessa hefir nám undir embættispróf í læknisfræði miðað að þekkingu á almennum undirstöðuatriðum, en þjálfun verið bundin við sjúkrahús og rannsóknarstofnanir. Stúdentar hafa vanizt samstarfi sérmenntaðra manna, vanizt að líta á það sem sjálfsagðan hlut. Þeir verða því síður undir það búnir að taka sjálfir viðurhlutamiklar ákvarð- anir, sem tíðum koma í hlut almennra lækna. Efalaust á þetta drjúgan þátt í því, að flestir líta á embættisprófið nánast sem áfanga á náms- ferlinum, og framhaldsnám sem imdirbúning að hinu eiginlega fram- tíðarstarfi. Fyrir sjónum almennings og jafnvel margra lækna virðast þeir, sem láta staðar numið við embættispróf, tæpast hafa unnið sér fullt hlutgengi til almennra lækninga til jafns við þá, sem stundað hafa framhaldsnám, þótt í sérgrein sé. Vissulega kemur það fyrir, að læknar snúi sér að heimihslækningum að loknu sérnámi, en tæp- lega getur það talizt eðlileg leið, nema sérstaklega standi á. Sérfræð- ingur hlýtur að takmarka þjálfun sína og reynslu við kjörsvið sitt sem mest hann má. Ekki veit ég, hvort þessir læknar njóta sérstaks fyrirframtrausts til almennra lækninga, þegar þeir hafa fallið frá sérgrein sinni. Þó á ég síður von á því. Allt ber að einum brunni um það, að almennar lækningar þyki ekki eftirsóknarvert starf, og að þeim fækki óðum, sem vilja leggja það fyrir sig. Ef til vill eru þó breytingar á næsta leiti. Smám saman er að glæðast skilningur á nauðsyn þess að gera almennar lækningar að viðurkenndri sérgrein. Tilkoma fræðigreina eins og atferlisfræði og epidemiologi, vaxandi áhugi fyrir rannsóknum á viðfangsefnum al- mennra lækninga og síauknar heilsuvarnir, allt rennir þetta stoðum undir slíka sérgrein, sem yrði þá haslaður völlur samhliða heilbrigðis- fræðinni („public health“). Fyrir þá, sem vildu snúa sér að þessari grein, yrði tilhögun þjálfunar og jafnvel náms væntanlega samræmd sérstökum þörfum. Þjálfun yrði að nokkru leyti eftir sem áður á sjúkrahúsum og rannsóknarstofnunum, en að verulegu leyti bundin við framvarðalínuna, sem ég kalla svo, þ.e.a.s. þá aðilja, sem fyrst taka við sjúklingunum. Þar ættu stúdentar þess kost að kynnast vanda- málum í samskiptum læknis og sjúklings, læknis og heimilis, læknis og samfélags — kynnast þeim vanda, að taka ábyrgar ákvarðanir við margvíslegar aðstæður. Úti í héruðum gæfist þeim sérstaklega kost- ur á að kynnast epidemiologiskum vandamálum. Á síðari árum hefir nokkuð verið rætt um breytt viðhorf í læknis- fræði vegna vaxandi sérhæfingar. Sú spurning vaknar, hvort kröfu- hörð sérþekking sé ekki á góðri leið með að marka þeim, sem helga sig henni, ískyggilega þröngan sjóndeildarhring, hvort hún leiði ekki m.a. til ofmats á hinu tæknilega, en vanmats á hinu mannlega. f því er fólgin hætta bæði fyrir lækna og sjúklinga. Fram undir þetta hefir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.