Læknaneminn - 01.07.1967, Blaðsíða 62
62
LÆKNANEMINN
mr
'3
eildiPGT]
Fuiulur í F.L. 7.3. ’67. Fundarefni:
Kennslumál. Fyrstur talaði Guðrnundur
Sigurðsson, en hann rakti sögu lækna-
kennslu á Islandi og endaði á ]:ví að
rifja upp komu dr. Arne Martlúnsens
hingað á árinu 1965. Næst talaði Karl
Proppé um tillögur Marthinsens og
sagði hann Kennslumálanefnd sammála
tillögunum í öllum aðalatriðum. Næst-
ur talaði Sigurður Friðjónsson og ræddi
málið á breiðum grundvelli. Hann taldi
mikilsvert að eftirtaldar breytingar
verði gerðar: 1. Minnka vinnuálag
prófessora og dósenta. 2. Veita meira fé
til kennslunnar. 3. Koma upp góðu
bókasafni. Eftir þetta urðu iangar og
skemmtilegar umræður urn málið og
tóku tii máis læknanemar úr öllum
hlutum. Kennslumálanefnd svaraði
fjölda fyrirspurna og athugasemda.
Fundinn sóttu um 60 manns.
Árshátíð F.L. var haidin 10.3. '67.
Fyrsti liður á dagskrá árshátíðar, var
fundur þar sem Ólafur Björnsson læknir
á Hellu flutti erindi, sem birt er á öðr-
um stað í þessu blaði. Fundur þessi var
vel sóttur að vanda og mjög góður
rómur gerður að erindinu. Næst á dag-
skránni var, að Jóhann Hafstein dóms-
málaráðherra, hélt læknanemum boð í
ráðherrabústað, en þar va.r spjallað
um heilbrigðismálin. Um kvöldið va.r
síðan samkoma i Þjóðleiiihúskjallaran-
um, og var hún mjög vel sótt af læima-
nemum úr öllum hlutum. Gestir féla.gs-
ins voru læknar þeir, sem tekið höfðu
þátt í fundum árið áður. Einnig voru
þar Páll Gíslason yfirlæknir, sem fiutti
ræðu kvöldsins og Ian Fraser, forseti
I.F.M.S.A. Matur og vín brögðuðust vel,
og dagskrá kvöldsins var vel heppnuð.
Árshátíð þessi var óvenju vel sótt og
þótti takast með ágætum.
Fundur í F.L. 12.3. ’67 í Doinus Medica
Gestur þessa fundar var Ian Fraser,
lraknanemi frá Edinborg, sem er nú
forseti Alþjóðasamtaka Læknanema,
I.F.M.S.A. Fund þennan sóttu aðeins 10
læknanemar og va.r skaði að fleiri
skyldu ekki sjá sér fært að mæta.
Fraser flutti erindi um málefni samtak-
anna og lýsti fyrst stofnun þeirra 1951
og þróun síðan. Þá talaði hann um
hina árlegu fundi samtakanna og nú-
verandi starfsemi sem er talsvert fjöl-
þætt. Fraser gaf mjög lifandi og skýra
lýsingu á I.F.M.S.A. og var sú lýsing
bæði fróðleg og skemmtileg. Frá heim-
sókn Frasers til Islands er sagt á öðr-
um stað i þessu blaði.
Fundur I F.L. 14.3. ’67. Efni fundar-
ins var „Antibiotika og infektionir á
sjúkrahúsum1', en flytjandi var Arin-
björn Kolbeinsson. Fyrst ræddi Arin-
björn um infektionir almennt, bakteríur
í greftri, hálsi, mænuvökva, þvagi og
hráka. Síðan ræddi hann um antibiotika
þau sem rnest eru notuð, en lýsti einnig
nýju, mikilvægu lyfi, cephaloridin. Að
lokum ræddi Arinbjörn um sjúkrahúsa-
infektionir, misnotkun lyfja og algeng-
ustu bakteríur á sjúkrahúsum. Á eftir
svaraði Arinbjörn fjölda fyrirspurna.
Stúdentai'áðskosningar fóru fram í
apríl og var sjálfkjörið. Aðalmenn eru
Edda Björnsdóttir og Guðjón Magnús-
son, en varamenn Björn Árdal, Ólafur
Guðmundsson, Hans Óiafsson og Árni
Þórsson.
Fundur í F.L. 21.4. ’67. Efni: Symposi-
um de morbi vasculosi cerebri. Revisor
fundarins var dr. Gunnar Guðmundsson.
Fundurinn hófst á því að Hjörtur Páls-
son stud. mag., las þrjú ljóð við mikinn