Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Page 35

Læknaneminn - 01.07.1967, Page 35
LÆKNANEMINN 35 Guðrún Agnarsdóttir stud. med. Helgi Þ. Valdimarsson cand. med.: LUNDÚNÁLEIÐANGUR Það var skömmu fyrir páska 1967, að greinarhöfundar lögðu leið sína til Lundúna. Megintil- gangur fararinnar var að kynnast læknisfræði og kennsluháttmn þar í landi. Þá var kalt í Reykjavík og snjóföl á jörðu, en við flugum beint í vor stórborgarinnar með sætan ilm gróðurs í lofti. 1 vinjum borgarinnar, skemmtigörðunum, skörtuðu prúðar páskaliljur, græn- gresi á bölum og brum á trjám. Það var dálítið undarlegt að fljúga svona beint inn í vorið í stað þess að finna það vakna og lifna dag frá degi. 1 Lundúnaborg búa um 11 milljón manns, og er borgin ein hin stærsta í heimi að flatarmáli. Eru því vegalengdir til vinnustaða oft ærið langar. Heyrðum við marga harma það, hve mikill tími færi til ónýtis í slíkar ferðir, eink- um ef þeir ækju sínum eigin bíl. 1 neðanjarðarlestum og strætis- vögnum nýtir fólk þó gjarnan tímann til lestrar. Flestir lesa dagblöð, sem jafnan eru svo stór í sniðum, að vonlaust virðist að blaða þeim í svo naumu rými. Allt virðist þó ganga átakalaust með nokkrum kurteislegum ,,sorry“ á báða bóga. Fólkið sýnist þjálfað í því að lifa í þrengslum, og rekist maður á einhvern vegfaranda snýr hann sér óðar við og biðst afsök- unar. Annars virtust okkur dag- blöð vera ein mesta nauðþurftar- vara einstaklingsins utan tesop- ans. Gat vart að líta svo auman og óhreinan flækingskarl, að hann ætti sér ekki dagblað, ef ekki til lestrar, þá sem kodda eða sólhlíf. Fyrstu dagana notuðum við til atvinnuleitar. Hún var árangurs- lítil lengi vel . Vorrnn við sem veg- laus í gini brezka ljónsins, flækt- umst á milli skrifstofa, þar sem starfsmenn voru kurteislega fá- fróðir um heildargang þeirra mála, sem fengu að hluta afgreiðslu hjá þeim. Er auðvelt að festast á færi- bandi milli skrifstofanna og borga þar sömu upphæð oftar en einu sinni. Skrifstofuveldið er hið mesta völundarhús, reist á gömlum merg. Er þar fleira gamalt en mergurinn, og rennur starfið í farvegi reglna, sem ógerningur eða helgispjöll er að hnika. Að lokum fengum við þó vinnu við gott kennslusjúkrahús í hjarta Lundúna. Var það annars vegar fyrir skort á starfskrafti til afleysingar um stuttan tíma og hins vegar vegna forvitni og vel- vilja prófessors Norman Morris, sem þar er yfirlæknir á fæðing- ar og kvensjúkdómadeildum. Helgi vann þar kandidatsvinnu, en Guð- rún vann sem læknanemi og naut kennslu. Vorum við þarna um mánaðartíma. Charing Cross sjúkrahús heitir það o g stendur steinsnar frá Trafalgartorgi, þar sem Nelson trónir einfættur, eineygður og einmanalegur í frægð sinni á há-

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.