Læknaneminn - 01.07.1967, Side 38
38
LÆKNANEMINN
og margskoðaðir, og er ríkt eftir
því gengið, að öll líffærakerfi séu
könnuð og grindarholsskoðun
rækilega lýst. Konurnar koma inn
kl. 10,00 að morgni, og á slaginu
kl. 16,00 birtast læknar þeir, sem
ætla að skera daginn eftir. Er nú
farinn nákvæmur stofugangur og
endanlega ákveðið, hvort og
hvernig á að skera. Kandidat á þá
að hafa á reiðum höndum allt það
helzta, er varðar hvern sjúkling,
og hafa bráðabirgða aðgerðarskrá
tilbúna. Algengt er, að 10—12
konur komi inn í senn, og getur
þetta því verið býsna erfitt, enda
sífelldar tafir frá skipulegri vinnu
af alls kyns kvabbi úr öllum átt-
um, og liggur þá stundum nærri,
að hátalarakerfi sjúkrahússins æri
óstöðugan.
Prófessor Morris viðurkenndi,
að vinna kandidats á kvensjúk-
dómadeildinni væri mjög erfið, og
má nefna það sem ágætt dæmi um
brezka háttvísi, að hann bauð
íslenzka nýgræðingnum að gera
tillögu um breytta starfstilhögun
á deildinni til þess að vinna
kandidatsins yrði viðráðanlegri. I
skurðstofunni er unnið látlaust
allan daginn og fram undir kvöld-
mat, þegar mest lætur. Kandidat
er jafnan fyrsti aðstoðarmaður,
en einfaldar aðgerðir fær hann að
gera sjálfur undir eftirliti. Auk
þess skrifar hann allar aðgerðar-
lýsingar að hverri aðgerð lokinni.
Vinnur hann það sjálfstætt. Eft-
irmeðferð skurðsjúklinga hvílir
að miklu leyti á kandidat, en vit-
anlega er ætlast til, að bakvakt sé
ætíð kvödd til ráða, þegar einhver
meiri háttar vandamál koma upp.
Fæðingardeildin er hreint
hvíldarheimili fyrir kandidat
miðað við kvensjúkdómadeild. Þar
er öll reglubundin (routine)
vinna í höndum ljósmæðra, en þœr
eru hjúkrunarkonur með fœðing-
arfrœði að sérgrein. Var ánægju-
legt að sjá, hvernig þær unnu.
Þær störfuðu eins og hjúkrunar-
konur, og viðhorf þeirra mótað-
ist af víðsýni og ekki sízt af raun-
hæfu mati á eigin takmörkunum.
Aðalstarf kandidats er að fylgj-
ast með vinnu læknanema og
kenna þeim, en einnig er hann
ávallt kallaður á vettvang, þegar
eitthvað óvenjulegt ber að hönd-
um. Fær hann þá að leggja flest-
ar tengur og taka á móti börnum
í afbrigðilegum stöðum. Fyrst er
þetta gert undir nákvæmu eftir-
liti reyndari lækna, en síðan
meira og minna sjálfstætt, eftir
því sem reynsla og kunnátta eykst.
Kandidat vinnur á ferlivistar-
deild einn til tvo daga í viku, og
er það góður skóli.
Einu sinni í viku er haldinn
fundur hjá yfirlækni. Þar mætast
læknar, yfirhjúkrunarkonur og
læknanemar deildanna beggja, og
eru tekin fyrir vandamál eða um-
talsverð efni af deildunum. Eftir
fundinn er jafnan boðið upp á
sherry og bjór og léttara hjal
tekið upp. Á einum slíkum síðdeg-
isfundi ræddi prófessorinn við
læknanema um námsskipan og
breytingar á kennslu. Hvatti hann
þá til þess að gagnrýna kennslu-
fyrirkomulag og koma með tillög-
ur til úrbóta, sem þeir og gerðu.
Starfsskilyrði hjúkrunarfólks,
lækna og læknanema eru mjög
erfið. Er þar mörgum ætlað að
vinna störf sín í litlu rými. Vakti
það furðu okkar, hve vel menn
sættu sig við sinn hlut og afköst-
uðu miklu við svo erfiðar aðstæð-
ur. Þrátt fyrir þrengslin ríkir
þarna rótgróinn og sjálfsagður
rannsóknar- og kennsluandi,
sem er mjög uppörvandi.
Það var nokkuð áberandi á