Læknaneminn - 01.07.1967, Side 53
LÆKNANEMINN
53
loka þau yfirborði húðarinnar og
minnka þannig vökvatap í gegn-
um húðina og koma með því í veg
fyrir að hún þorni um of. Algengt
er að blanda ýmiss konar efnum
út í smyrsli, t.d. phenoli, mentoli,
kamfóru, tjöru og salicylsýru.
Phenol verkar á taugaenda í húð-
inni og orsakar analgesiu, menthol
dregur úr kláða með því að verka
á kulda-receptora í húðinni, en
kuldatilfinning virðist draga úr
kláðatilfinningu. Salicylsýra í
ákveðinni koncentration eyðir
hornlaginu og getur þannig hjálp-
að til þess að önnur efni komast
betur inn í húðina. Tjara aftur á
móti örvar eðlilega hornmyndun
húðarinnar. Sé húðin of þurr fylg-
ir því oft kláðatilfinning, en of-
þurrkur í húð er mjög algengur
bæði hjá bömum og gamalmenn-
um. Ber meira á þessu á veturna,
þegar kappkynt er inni í húsum
og rakastigið fer niður úr öllu
valdi. Hefur gamalt fólk sérstak-
lega, oft mikil óþægindi af þessu,
en í mörgum tilfellum er auðvelt
að bæta úr þessu með einföldum
góðum mýkjandi áburði, eins og
t.d. ungv. aquosum, og er þá yfir-
leitt skrifað upp á nokkur hundruð
grömm í einu. Það getur forðað
gömlu fólki frá svæsnu eczema, að
þess sé gætt, að húðin þorni ekki
um of, en ofþurrkur í húðinni
virðist gera hana miklu næmari
fyrir allskonar útbrotum.
Mikilvægasta lyfið við útvortis
meðferð húðsjúkdóma síðari árin
er að sjálfsögðu hydrocortison.
Steroidar hafa að því er virðist
specifisk áhrif í þá átt að eyða
kláðatilfinningu og draga úr óeðli-
legri hornmyndun og þykknun í
húðinni, sem oft er samfara þrá-
látum kláða. Ef um infection er að
ræða í útbrotunum, þá þykir ráð-
legt að nota steroidasmyrsli, sem
einnig innihalda antibiotica, en
ekki ætti að nota þau nema ein-
hver einkenni infectionar sjáist,
þar sem alltaf er möguleiki á
sensitization. Af þeim sökum er
svo til alveg hætt að nota penicillin
og súlfa útvortis, en fremur notuð
lyf sem lítið eða ekki eru notuð per
os eins og t.d. neomycin og baci-
tracin og polymyxin. Þessi lyf
verka bæði á grampósitivar og
negativar bakteriur og valda sára-
sjaldan ofnæmi. Mjög gott antibio-
tica til útvortis notkunar, þótt það
sé einnig mikið notað per os, er
terramycin og kemur varla fvrir
að terramycinsmyrsli valdi ofnæmi
og gildir raunar sama um önnur
tetracyclin afbrigði.
Urmull steroida smyrsla er á
markaðnum og bætast stöðugt ný
við, bæði með og án antibiotica.
Gildir hér eins og um aðra lyfja-
meðferð að betra er að þekkja vel
tiltölulega fá lyf og vita hvernig
þau verka og halda sér að þeim,
heldur en hringla með f jölda mis-
munandi lyfja og breyta stöðugt
til.
Um tíma var óttast að mikil út-
vortis notkun á hydrocortisoni gæti
leitt til verulegrar absorptionar
gegnum húðina og haft þannig
systemisk áhrif. Þessi ótti hefur
reynzt ástæðulaus, þar sem aðeins
örlítill hluti lyfsins absorberast
gegnum normal húð, en sé húðin
skemmd af útbrotum og þannig
grundvöllur fyrir miklu meiri
absorption þá hefur reynslan orðið
sú, að lyfin bæta ástand húðarinn-
ar nægilega mikið og nægilega
fljótt til þess að absorption segir
mjög lítið til sín.
Triamcinolene acetonide og
fluorometholone henta mjög vel til
útvortis nota, þau verka bæði
lokalt sem mjög sterk antiinflam-