Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Page 60

Læknaneminn - 01.07.1967, Page 60
60 LÆKNANEMINN Heimsókn lan Frasers til Islands Ian Fraser, forseti I.F.M.S.A., dvaldi hér á landi dagana 9. til 13. marz s.l., í boði Félags læknanema. Fraser er fyrsti forseti I.F.M.S.A., sem kemur til Islands, en hann hefur gert sér far um að heimsækja sem flest aðildarlönd samtakanna. Tilgangur þessara ferðalaga er að ræða persónulega við læknanema í sem flestum löndum, vekja áhuga á málefnum samtakanna og kynna hina fjölþættu starfsemi þeirra. Fraser átti hér samræður við fjölmarga læknanema, tók þátt í árs- hátíð félagsins og flutti á félagsfundi ítarlegt erindi um starfsemi Alþjóðasamtaka læknanema. Óhætt er að fullyrða að heimsókn Frasers til íslands hafi verið mjög gagnleg og þeir læknanemar, sem ræddu við hann, eru mun fróðari um starfsemi samtakanna. Læknanemar vita yfirleitt harla lítið um I.F.M.S.A., en þessi heimsókn bætti þar þó nokkuð úr. Eftirtaldir aðilar veittu aðstoð við móttöku forseta Alþjóðasam- taka læknastúdenta, Ian Frasers, er hann var gestur félagsins á árs- hátíð þess í marz s.l.: Læknafélag íslands, Læknafélag Reykjavíkur, G. Ólafsson h.f., Hermes h.f., Stefán Thorarensen h.f. Stjóm Félags læknanema færir þessum aðilum þakkir fyrir ágæt- an stuðning og vinsemd í garð félagsins. Ian Fraser og frú, ásamt þremur stjórnarmeðlimum F. L.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.