Læknaneminn - 01.12.1968, Qupperneq 26
26
LÆKNANEMINN
Þórir Dan Bjömsson, stud. med.:
Mengun andrúmslofts
Á síðari árum hafa menn vakn-
að til umhugsunar um þau áhrif,
sem maðurinn hefur á umhverfi
sitt, og þær afleiðingar, sem þau
kunna að hafa á framþróun lífs.
Þessi áhrif eru af mörgum ólíkum
toga spunnin, t.d. geislanir og efna-
mengun, ofveiði og skordýraeyð-
ing, svo eitthvað sé nefnt. Flest
þeirra standa á einhvern hátt í
sambandi við viðleitni mannsins til
betri efnalegrar afkomu og meiri
þæginda. Mönnum hættir til að
vanmeta hættur þessara áhrifa,
þar eð hinar ýmsu afleiðingar
koma iðulega ekki fram fyrr en
löngu seinna. „Maðurinn hefur
glatað hæfileikanum til að sjá
fyrir afleiðingar gerða sinna. Að
lokum mu'.i hann tortíma jörð-
inni“, sagði mannvinurinn Albert
Schweitzer. Þetta eru holl varnað-
arorð.
Síðustu fimmtíu árin eða svo
hefur mengun andrúmsloftsins
aukizt verulega. Höfuðástæðurnar
eru þrjár: vaxandi iðnaður, sér-
staklega efnaiðnaður, stækkun
borga og gífurleg fjölgun öku-
tækja. Náttúran sjálf orsakar
einnig mengun á andrúmslofti,
fyrst og fremst með hafúða, jarð-
efnaryki og gosgufum. I þessari
Mér finnst lífið nokkuð gott,
ef ekki er allt of mikið moldrok.
Steinn Steinarr, 1941.
grein verður megináherzla lögð
á þá mengun, sem maðurinn er
valdur að, og heilsuspillandi áhrif
hennar, en aðeins stuttlega verður
minnzt á mengun af völdum nátt-
úruíyrirbæra, enda hefur sá þátt-
ur langtum minni þýðingu frá
læknisfræðilegu sjónarmiði, en
einmitt út frá því sjónarmiði er
greinin skrifuð. Leitazt verður við
að gera grein fyrir því, hvaðan hin
mengandi efni eru einkum upp-
runnin og um hvaða efni er helzt
að ræða. Örlítið verður komið inn
á hugsanlegar varúðarráðstafanir
gegn mikilli mengun. Einnig verð-
ur nokkuð rætt um veðurfræðileg
viðhorf til frekari glöggvunar á
viðfangsefninu.
Það má vafalaust skilgreina hug-
takið mengun andrúmsloftsins á
ýmsa. vegu eftir því, hvaða sjón-
armið eru höfð í huga. Mesta þýð-
ingu hlýtur samt sú sldlgreining að
hafa, sem hefur til viðmiðunar
áhrifin á lifandi verur. Hér verð-
ur eftirfarandi skilgreining notuð:
Með mengun andrúmsloftsins er
átt við breytingar á efnasamsetn-
ingu þess, þ.e. tilkomu nýrra frum-
efna eða sameinda, eða þær breyt-
ingar á styrkleika fyrirverandi
efna, sem teljast hættulegar heilsu