Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1968, Blaðsíða 41

Læknaneminn - 01.12.1968, Blaðsíða 41
LÆKNANEMINN U tönnina, sem taka skal, sé sem bezt. Tannlæknir stendur alla jafna fyrir framan sjúklinginn við allar aðgerðir á tönnum, hvar sem er í munni nema hægra megin í neðrí gómi. Þar hentar bezt að standa að nokkru hægra megin við sjúklinginn, leggja vinstri hand- legg aftur fyrir hnakka hans og fram með höfðinu vinstra megin og nota fingur vinstri handar til að grípa um góminn neðan tang- artaksins og fylgjast þannig með viðnámi beinsins og losun tann- anna. Það er góður siður, hvernig sem staðið er að sjúklingnum, að halda ætíð með vísifingri og þum- alfingri vinstri handar um góminn neðan tangartaksins. Þegar búið er að grípa um tönnina, er næsti þáttur að ná henni á sem auðveldastan og öruggastan hátt upp úr tannbeðn- um og til þess þarf tvenns konar átak. Annars vegar svo fast grip um handfangið, að töng og tönn hreyfist sem eitt, og svo á hinn bóginn ýmis konar átök, sem smátt og smátt losa tönnina í tannbeðn- um með því að slíta í sundur þræði þá, er tengja hana við bein. Jafnframt á með þessum sömu átökum að víkka nokkuð bein- tannbeðinn sjálfan, því rætur sumra tanna eru þannig í laginu, að hugsi maður sér rótabrodd- ana tengda saman með línu, er ummál þessarar línu meira en ummál tannbeðsins við brún beinsins, þar sem það lykur um tannhálsinn. Þess ber þó ávallt að gæta, að miða átak tangarinnar um tann- hálsinn — svo og þann kraft, sem beitt er til að losa um tönn- ina — við áætlaðan styrk tann- hálsins. Þessi atriði — að finna rétt jafnvægi milli styrkleika og átaka — eru talin vandasamasti Tannútdráttur í neðri g'ómi, hægra megin. þátturinn í tannútdráttum og for- senda þess, að tönnin náist óbrot- in. Því miður er það reynslan ein, sem getur fært mönnum heim sanninn um þessi atriði, en þeim mun viðaminni sem tannhálsinn virðist, þeim mun vægara verður átakið að vera og að sama skapi minni og hægari hreyfingar við losun tannarinnar. Af því, sem þegar hefur verið greint, má ráða, að skipta má tanntökunni í tvo meginþætti og varðar miklu, að hvor um sig sé rétt unninn. Fyrri þátturinn fjall- ar um, á hvern hátt leggja beri töngina á tönnina, hinn síðari um, á hvern hátt hreyfa skuli töng og tönn til að losa svo um tönnina, að lyfta megi henni með sem minnstu átaki upp úr tannbeðnum. Telja má þrjú atriði, sem hafa ber í huga, þegar töng er lögð á tönn. í fyrsta lagi, að gæta þess, að sá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.