Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1968, Page 51

Læknaneminn - 01.12.1968, Page 51
LÆKNANEMINN 51 monocytogenis, herellea-tegundir, streptobacillus moniliformis, bru- cella, candida albicans og aðrar tegundir sveppa, Blóðræktun bera að gera, þeg- ar sjúkdómsmynd gefur grun um sepsis, endocarditis lenta, sal- monellosis með almennum ein- kennum og yfirleitt má segja, að hiti af óþekktum orsökum, sem staðið hefur lengur en 7 daga, gefi tilefni til blóðræktunar. Við óvænt „postoperativt shock“ eða hita, eftir vissar aðgerðir, eins og t. d. catheterisation eða cystoscopi, getur blóðræktun verið jákvæð. Þegar sveiflur eru í sjúkdómn- um, er ráðlegt að gera blóðrækt- un um það leyti, sem sjúklingi er að versna. Þegar hitabreytingar eru reglulegar, er heppilegast að taka blóðræktun rétt áður en bú- ast má við hitahækkun. Þegar engar slíkar sveiflur eru, en sterkur grunur leikur á, að um „bakteræmi" sé að ræða, er ráð- legt að gera blóðræktanir á tveggja tíma fresti í einn sólar- hring. Þetta á einkum við um subacut bacterial endocarditis. Við ræktun sumra sjaldgæfra sýkla úr blóði þarf að nota sér- sitakar aðferðir, og þegar sjúkl- ingur hefur fengið fúkalyf, er auðsynlegt, að upplýsingar fvlgi um slíka lyfjanotkun. Náið sam- starf rannsóknastofu og sjúkra- húslækna þarf til þess að blóð- ræktanir komi að fullum notum. Sýnitaka úr koki. Sýkalsýni úr koki er heppileg- ast að taka með ,,dacron“ eða „calcium alginate“ útstrokspinna og æskilegt er að væta hann í ster- ilu broði, áður en sýni er tekið. Strokið er yfir báðar tonsillur og afturvegg pharynx og einnig önnur svæði í koki, ef sýnileg merki eru þar um sjúklegar breytingar. Varast ber að snerta með pinnanum aðra staði í munni sjúklings. TJtstrokspinna er síðan stungið í glas með ræktunaræti, skáagar eða sérstökum geymslu- vökva. Pinninn er brotinn við stút glassins og því lokað með skrúf- tappa. Hlutverk ætisins eða geymsluvökvans er að hindra, að sýnið þorni. en það er skaðlegt fyrir sýkla. Við ræktanir frá nasopharynx er heppilegt að nota ,,dacron“ eða „calcium alginate“ útstrokspinna, gerða úr álvír, sem hægt er að sveigja eft- ir vild, áður en umbúðir pinnans eru opnaðar. Ræktanir frá hálsi ætti a ð taka strax að morgni, áður en sjúklingur burstar tennur eða neytir nokkurs matar. Hálsrækt- anir ætti aldrei að taka fyrr en 4 klst,. frá því að matar var síðast neytt. Af þeim sýklum, sem gera má ráð fyrir, að fundizt geti í hálsi, hafa þessir mesta, almenna þýð- ingu: Strept. hæmolyticus, h. in- fluenzae, strept. pneumoniae, bordetella pertussis, neisseria meningitidis, staph. aureus, cand- ida albicans, corynebacterium diphtheriae. Til eðlilegrar háls- flóru teljast eftirfarandi tegundir: Neisseria pharyngis, staph. albus (coag. neg,), strept. viridans, strept non-hæmolyticus, diphther- oid bacilli. Sumar af þessum bakt- eríum geta haft þýðingu í sam- bandi við blandaðar sýkingar eða hjá sjúklingum með litla mótstöðu. Þá getur fundizt í koki svokölluð óeðlileg blönduð flóra, en það eru coliform bakteríur, subtilis, ger- sveppir, proteus, pyocyaneus o. fl. Sýnitaka úr hráka. Þegar taka skal hrákasýni, er heppilegast að nota plastílát með

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.