Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1968, Side 52

Læknaneminn - 01.12.1968, Side 52
52 LÆKNANEMINN víðum stút, sem hægt er að loka tryggilega, eða glerílát með skrúfuðum tappa. Heppilegt er að taka þann hráka, sem kemur fyrst að morgni með hósta, og gildir þetta jafnt, hvort sem sýni er tekið til berklarannsókna eða fyr- ir almenna ræktun. Sýni fyrir al- menna ræktun þurfa að berast strax til rannsóknar. Hinsvegar þola sýni, sem eiga að fara í berklaræktun, nokkurra daga sendingartíma, einkum ef hitastig er lágt. Ræktanir úr hráka hafa einkum þýðingu við leit að M. tubercu- losis. Við almenna ræktun frá hráka eru eftirtaldir sýklar þýðingar- mestir: Strept. pneumoniae, strept. hœmólyticus, h. influenzae og staph. aureus. (coag. pos.). Einnig klebsiella pneumoniae og stundum b. coli, proteus, pseu- domonas pyocyanea, auk sveppa, mycoplasma pneumoniae og ann- arra sjaldgæfra sýkla. Ræktanir frá masopharynx eru einkum gerðar til þess að leita að bordetella pertussis, neisseria meningitidis og hæmophilus in- fluenzae. Sýnitaka úr saur. Sýklarannsóknir á saur-sýnum eru notaðar til þess að greina iðra- kvef og leita að smitberum. Þeir sýklar, sem einkum er leitað að, eru salmonella, enteropathogen b. coli, shigella og staph. aureus (coag. pos.), en stöku sinnum aðr- ar tegundir sýkla. Heppilegast er að taka sýni í plastílát með skrúf- uðu loki, þar sem skeið er áföst við lokið. Þegar leita skal að shigella, þarf að senda sýni mjög fljótt til rannsóknar eða nota ,,buffer“-upplausn til þess að hindra, að sýrustig breytist vegna gerjunar, en sýklar þessir eru mjög næmir fyrir sýrumyndun. Mikils er um vert, að sýni séu tekin strax í byrjun sjúkdóms, áður en sjúkl- ingar hafa fengið antibiotica. Stundum eru tekin útstrokssýni frá rectum við greiningu sýkla- og snýklasjúkdóma. Sýni úr greftri. Sýni af greftri úr sárum má taka með svipuðum hætti og áður var lýst um hálsstrok, en einnig má taka gröft í sprautu með grófri holnál, ef um er að ræða ígerð með mikilli graftarmyndun, og senda gröft í sterilu glasi eða plastíláti. Sýklar, sem einkum má vænta að finnist í greftri, eru Staph. aureus (coag. pos.), strept. hæmo- lyticus, strept pneumoniae, b. coli, strept. non-hæmolyticus, neisseria gonorrhoea, pseudom- onas pyocyanea, clostridia-teg- undir, bacillus anthracis, m. tuberculosis, candida albicans og hæmophilus. Að undanteknum neisseria gonorrhoea eru sýklar, sem helzt finnast í greftri, ekki sérlega viðkvæmir fyrir geymslu og þola því flest graftarsýni, önn- ur en þau, sem ætluð eru til gono- kokkaræktunar og h. influenzae- ræktunar, sendingartíma, sem skiptir klukkustundum eða jafnvel dögum, ef hitastig er lágt. Um út- strokssýni frá augum og eyrum gilda sömu reglur og um útstroks- sýni frá sárum. Þvagsýni. Sýklarannsókn úr þvagi er meðal annars mikilvæg rann- sókn við greiningu á einkenna- lausum pyelonephritis á byrj- unarstigi og hefur sérstöðu að því leyti, að oft er þörf á slíkum

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.