Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1968, Síða 53

Læknaneminn - 01.12.1968, Síða 53
LÆKNANEMINN 53 Sýnitökuáhölcl og ílát fyrir sýni. 1. Þvagilát, 2. hrákaílát, 3. saurílát, 4., 5., 6. áhöld og- ílát fyrir strok úr sárum, koki o. fl. rannsóknum án ákveðinna sjúk- dómseinkenna. Hér gilda fleiri og flóknari reglur um sýnitöku held- ur en í flestum öðrum tilvikum, og allt veltur á því, að undirbún- ingur og sýnitaka sé rétt, að geymsla sýnis og sending til rann- sóknastofu sé gerð þannig, að sýklafjöldi breytist ekki frá sýni- töku til rannsóknar. Við sýklarannsóknir á þvagi eru tvenns konar sýni notuð, þ. e. ,,catheter-þvag“ og „miðbunu- þvag“, og hefur sú síðarnefnda nú að verulegu leyti leyst hina fyrrnefndu aðferð af hólmi. Bygg- ist þetta á því, að catheterisation felur ætíð í sér nokkra sýkingar- hættu, enda þótt fyllstu reglum um sótthreinsun og hreinlæti sé gætt. Þær bakteríur, sem menga að jafnaði þvag heilbrigðra, eru að verulegu leyti þær sömu og sjúkdómum (pyelonephritum) valda. En fjöldi sýkla ræður yfir- leitt úrslitum, hvort um sýkingu er að ræða eða ekki. Þess vegna verður sýklarannsóknin að fela í sér magnmælingu, þ. e. talningu sýkla í þvagi, til þess að hún gefi nauðsynlegar upplýsingar um heil- brigðisástand sjúklingsins. Reglur um undirbúning sýnitöku fyrir sýklatanlingu og ræktun úr þvagi, eru í meginatriðum þessar: 1) hreinlæti, fólgið í þvotti með sápu og vatni, 2) að þvagið hafi staðið ákveðinn tíma í blöðrunni (söfnunartími), 3) að sjúklingur hafi ekki neytt matar eða drykkjar á söfnunartímanum og helzt ekki drukkið mikið magn af vökva sól- arhring áður en sýni er tekið, 4) þvagsýni berist innan klukku- stundar til rannsóknastofu frá því það er tekið, eða að öðrum kosti kælt strax í + 4° C. Nánari skilgreining á þessum atriðum verður svo sem hér segir: a) Kvöldið áður en sýni er tekið

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.