Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1968, Qupperneq 57

Læknaneminn - 01.12.1968, Qupperneq 57
LÆKNANEMINN 57 Kvikmyndaþáttur 1 heiminum eru til tvö meginsýningar- kerfi kvikmynda. 1 fyrsta lagi almenn kvikmyndahús, í öðru lagi kvikmynda- klúbbar, sem gjarnan eru þá undirdeild- ir kvikmyndasafna. Helzti munur á þess- um tveimur kerfum er, að annað er rekið með ágóðavon fyrir augum, hitt eigi. Bæði kerfin sýna áhorfendum sín- um það, sem þeir vilja helzt sjá, að þessu leyti er munurinn enginn. Á Is- landi er seinna kerfið nýtt af nálinni. Menntaskólinn í Reykjavík hefur frá 1965 rekið kvikmyndaklúbb og sautj- ánda júní 1968 var stofnað íslenzkt kvikmyndasafn. Þegar þetta er ritað, eru allar líkur á, að sýningar þess verði í Norræna Húsinu á næsta ári. Undanfarna mánuði hefur sem sé ver- ið gott til fanga í höfuðstaðnum, hvað kvikmyndir áhrærir. Sjónvarpið hefur sýnt þrjár allgóðar myndir: You Can’t Take It With You eftir Frank Capra, Mr. Robert eftir John Ford og Toucher pas au Grisbie eftir Jacques Becer. Sú fyrsta og önnur bandarísk, hin þriðja frönsk. Kvikmyndahúsin hafa og sýnt slæðing ágætra mynda: Cat Ballou eftir Eliot Silverstein, bandarísk, Rauða eyði- mörkin eftir Anaonioni, ítölsk, Austan Eden eftir Elia Kazan, bandarísk, Aska eftir Andrzej Wajda, pólsk (íslenzkur titill akademiska bíósins „fram til or- ustu“). Að hrökkva eða stökkva (The Fortune Cookie) eftir Billy Wilder, Ég er forvitin blá eftir Vilgot Sjöman, sænsk,Mamma Roma eftir P. Pasolini, ítölsk og Tími úlfsins eftirlngmar Berg- man. Kvikmyndaklúbbarnir hafa að von- um sýnt jafnágætar myndir. Kvikmynda- klúbburinn í Litlabíói sýndi í haust Tékkana, þá þjóð, sem á undanförnum árum hefur hlotið heimsfrægð fyrir kvikmyndir sínar, og þáttur þeirra í formbyltingunni og trúverðugleikavið- leitninni í kvikmyndalist nútímans verð- ur seint fullmetinn. Brottflutningur úr paradís eftir Brynich, Svarti Pétur eft- ir Forman, Öpið eftir Jires, Annars kon- ar tilvera eftir Chytilova, Rómansa fyr- ir trompet eftir O. Vavra og síðasta sýn- ingin á starfsárinu var Þœttir úr banda- rískri kvikmyndasögu. Menntaskóla- klúbburinn hefur sýnt Ivan grimma eftir Eisenstein, Judex eftir Franju, frönsk, Þrúgur reiðinnar eftir John Ford, banda- rísk, og Metropolis eftir Fritz Lang, þýzk. Þar eð engin leið er að gera öllum þessum fjölda mynda skil, mun aðeins rætt um einstakar myndir, þótt þær séu ekki endilega betri en þær, sem útund- an verða. You Can’t Take It Witli You frá ’38 er kímnikvikmynd lítt sambærileg við það, sem nú gengur undir nafninu „amerísk gamanmynd“. Fjallað er um sérvitringa- fjölskyldu, þar sem allir eru náttúraðir fyrir eitthvað og gera það, sem þá lang- ar til. Dóttir aðal-sérvitringsins kynn- ist svo ríkum pabbadreng, syni stífa bankastjórans, sem vill ekki, að sonur hans taki niður fyrir sig. Auðvitað end- ar hann að lokum sem einn af sérvitring- unum, leikur á munnhörpu og lætur sem ,,businessinn“ sé ekki til. Hjóna- efnin eru hamingjusöm. — Capra, sem var ítalskur innflytjandi, hafði hið glögga gests auga fyrir einkennum og fyrirbærum staðarins. Myndin er rót- fyndin á btztu sprettunum, stöðugur húmor til staðar og hinn trausti al- þýðuvinur skín hvarvetna í gegn. Capra gerði líka myndina Blúndur og blásýra, sem sjónvarpið sýndi líka og margir kannast við. í Rauðu eyðimörkinni (1964) virðist mér Antonioni fatast tökin. Þótt með myndinni sé brotið blað, hvað snertir notkun lita, er efnisþurrðin svo átakan- leg, að snilldarhandbragðið dugir ekld til mótvægis. Cat Ballou frá 1966 er aðhláturssakn- aðarljóð til hinnar horfnu tíðar. Hún er með fyndnari myndum, utan að Nat King Cole var prýðilega leiðinlegur, þar sem hann kom fram. — Þá kom sýning á seinna hluta Ég er forvitin, sú bláa. Hún þótti mér betri en hin gula, öll miklu jafnari og um leið fyndnari. 1 báðum þessum myndum hefur Sjöman
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.