Læknaneminn - 01.12.1968, Síða 60
60
LÆKNANEMINN
á 10.-12. öld, en minnst á 17. öld og, að
mikil lengdaraukning- hefur orðið eftir
miðja 19. öld.
Að loknum flutningi erindisins svar-
aði prófessorinn mörgum spumingum
fundarmanna.
Itynningarkvöld.
1 síðustu viku nóvembermánaðar var
efnt til þriggja kynningarkvölaa með
fyrsta árs nemendum og ráðgefandi
mið- og síðasta hluta nemendum.
Fundasóknin var misgóð á báða bóga,
en vonandi hefur greið'zt úr mörgum
vandamálum og svör fengizt við mörg-
um brennandi spurningum og æskilegt
er, að þessir fundir verði upphaf meiri
kynna fyrsta árs nemenda og eldri
læknanema.
Fundur í F.L. 12. des. 1968.
Fundarefni: Symposium um sykur-
sýki.
Formaður félagsins setti fundinn og
bauð velkominn revisor fundarins, Þóri
Helgason, lækni.
Fyrstur ræðumanna var Guðmundur
Viggósson, sem skýrði frá anatomiu
briskirtilsins, en síðan ræddi Ingimund-
ur Gíslason um lífeðlis- og lífefnafræði
sjúkdómsins. Þá talaði Kristján Sigurðs-
son um hina meinafræðilegu hlið sykur-
sýkinnar, og að þvi loknu var gert
fundarhlé, sem notað var til kaupa á
nýútkominni Ijósprentun Læknanemans.
Þegar fundarmenn voru seztir aftur,
tók Jakob Hlfarsson til máls og ræddi
um einkenni og greiningu sykursýk-
innar og gat einnig um orsíikir, tíðni
og flokkun hennar.
Síðasti framsögumaður kvöldsins var
Magnús Jóhannsson, sem talaði um með-
ferð og horfur sykursýkisjúklinga.
Revisor lýsti ánægju sinni með val
á fundarefni og bar lof á framsöguer-
indin og ræddi um þau. Hann talaði
einnig um mikilvægi þess að greina
sjúkdóminn þegar á byrjunarstigi og
helztu rannsóknir til þess. Hann ræddi
síðan á myndríkan hátt tilgátur um
orsök sykursýkinnar og samband sykur-
og fituefnaskipta, sem fundarmönnum
þótti mjög athyglisvert. Að lokum svar-
aði revisor nokkrum fyrirspurnum.
V.Þ.
Iþróttir.
Iþróttalíf læknanema stendur með
miklum blóma, sérlega ef litið er nokk-
ur ár aftur í tímann til viðmiðunar.
Munu vera margir vaskir íþróttamenn
innan deildarinnar og sífcllt virðist
skilningur læknanema á gildi íþrótta
fara vaxandi.
Tvö skólamót hafa verið haldin á
haustinu. Annað í knattspyrnu og hitt
í handknattleik. Bjuggust margir við
sigri læknanema í þeim mótum, en svo
bregðast krosstré sem önnur tré, og
töpuðu bæði liðin í úrslitalcikjum með
litlum mun. Einkum urðu handknatt-
leiksmenn deildarinnar sárir yfir úr-
slitum, þar sem þeir höfðu bæði unnið
keppni þessa í tvö undanfarin ár, og
einnig sigrað lið verkfræðideildar, sem
varð sigurvegari, fyrr í keppninni með
yfirburðum. - Einnig hafði verið búizt
við miklu af köppum þeim, sem Glas-
gow gistu s.l. sumar, en þeir mynduðu
kjarna knattspyrnuliðs deildarinnar.
Höfðu menn heyrt og lesið af þeim
miklar fræknisögur, en allt kom fyrir
ekki. Þeir töpuðu fyrir lagakrókum í
úrslitaleik eftir sögulega viðureign.
Verðum við að vona, að betur gangi
á næstu árum að verja heiður deild-
arinnar. P.E.
Vísindaleiðangur 1968.
Félag læknanema hefur ávallt leitazt
við að aðstoða læknanema til þess að
svala fróðleiksfýsn sinni með ýmsu
móti. M.a. hefur félagið staðið fyrir vís-
indaleiðangri á hausti hverju og hafa
menn þá „visindazt" í grið og erg, hver
á sinn hátt. Áhugi læknanema á þessum
ferðum hefur þó hingað til verið mis-
jafn, og hefur ýmsu verið borið við. Ekki
er þó unnt að kvarta yfir áhugaleysi
læknanema á vísindum þetta árið, því
að milli 140 og 150 áhugasamir létu skrá
sig á lista, sem látnir voru ganga til
könnunar vísindaáhuga læknanema.
Varð því að skipta hópnum í tvennt,
til þess að unnt væri með góðu móti
að fylgjast með því, að vísindaiðkend-
urnir sökktu sér eklti svo djúpt niður
í tilraunir, að þeir gleymdu stað og
stund og yrðu „uppnumdir", eins og
komið hefur fyrir. Eftir japl og jaml
og fuður var ákveðið, að læknanemar á
fyrsta ári skyldu fara sér i hópi. Þótti
ekki ráðlegt að gefa svo stórum hópi
(60 manns) í einu innsýn í vísindaat-
hafnir eldri og reyndari manna deild-
arinnar. Enda kom í Ijós, að þeir reynd-
ust miklum mun jarðbundnari og síð-
ur hætt við aö gefa sig á vald „anda
vísindanna".
Hinn 22. nóv. 1968 kl. 13.30 var svo
haldið af stað frá háskólatröppum, og
voru þar á ferð eldri menn deildarinnar
uppfullir af vizku og nestaðir til vís-