Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1968, Síða 61

Læknaneminn - 01.12.1968, Síða 61
LÆKNANEMINN 61 indaleitar. Ekið var í suðurátt og eigi stanzað fyrr en á Keflavikurflugvelli. Höfðu menn þá uppfyllzt slíkum vís- indaanda, að þeir hræddust eigi, þegar inn í bifreiðina sté dáti nokkur snurfus- aður og burstaður eftir öllum kúnstar- innar reglum. Átti sá að fylgja liðinu inn í hreinsunareldinn, sem fara þurfti í gegnum, áður en vísindanna mætti njóta. Leiddi dátinn flokkinn inn í sam- komusal einn, og stóðu þar upp aðrir dátar í ýmsum tegundum einkennisbún- inga, héldu tölur og sýndu myndir máli sínu til skýringar. Er þeir höfðu lokið sér af, buðust þeir til þess að svara spurningum hinna fróðleiksfúsu lækna- nema. Var þá ekki að sökum að spyrja, að spurningaflóð dundi yfir þá, og áttu þeir í vök að verjast og visuðu síðast hver á annan, þar til einum datt það snjallræði í hug að tilkynna, að lækn- ar vallarins biðu með öndina í hálsin- um eftir flokknum. Var þá hópurinn leiddur að sjúkrahúsi staðarins og var það því næst skoðað með aðstoð lækna staðarins undir stjórn yfirlæknisins, sem Rudinger nefnist. Var þar ýmislegt fróð- legt að sjá, og spurðu menn í sífellu um hitt og þetta. Að yfirlitsferð lokinni gafst mönnum svo kostur á að heyra af segulbandsspólum brot úr fyrirlestr- um færustu sérfræðinga Bandaríkjanna í læknisfræði. Þótti mönnum þetta fróð- legt mjög og ekki hvað sízt þótti mönn- um koma til ýmissa hljóða, sem heyra mátti af spólunum, t.d. hósta og soga barns með kíghósta og ýmissa hjarta- hljóða. Varð mönnum hugsað til kennslutækjaskorts læknadeildarinnar. Aðspurðir kváðust Rudinger og hans læknar fúsir til þess að spila þessar spólur í Reykjavík og flytja með þeim skýringar, ef þess væri beiðzt. Lauk svo sjúkrahúsvist þessari með diagnosu snjöllustu manna deildarinnar á einum lækninum, en hann reyndist að þeirra dómi haldinn thyrotoxicosis. Spunnust út af þessu nokkrar umræður, sem hinir fávísari hlustuðu á með lotningu og forundran yfir speki hinna vitru manna. Að lokum var hópurinn talinn orðinn nægilega þyrstur til þess að geta notið þess, sem á „útlenzku" er kallað ,,re- freshment". Samanstóð það af brauði með alls konar áleggi, sem skola átti niður með dýrum veigum. Þurfti ekki að segja mönnum tvisvar, hvað gera skyldi, og bar ekki á öðru en að menn yrðu „refreshed" eftir erfiði dagsins. Læknar staðarins gengu milli speking- anna, og voru þeir ósparir á upplýsingar um eitt og annað viðvíkjandi lækna- vísindunum. Er menn höfðu dvalizt þarna drykk- langa stund í góðum fagnaði, stóð upp „Commander" Russ og bað menn vel njóta þess, sem á borðum var, og þakk- aði komuna. Varla hafði hann sleppt orðinu, er upp stóð Edda Björnsdóttir, form. Fél. læknanema, og þakkaði mót- tökurnar. Mælti hún á tungu hins fyrr- nefnda og mátti vart á milli greina, hvort betur talaði málið. Var að þessu gerður góður rómur, og að því búnu var ráðizt til heimferðar. Kom í ljós, að menn höfðu nestað sig vel til heimferðarinnar og var því áð öðru hverju mönnum til hugarhægðar. Þess á milli sungu menn við raust og skemmtu sér. Var svo rennt í hlað laust eftir kvöldmatarleytið og fara spurnir af því, að andans gnægð margra hafi verið slik, að vísindaiðkunum hafi verið fram haldið fram að háttamáli. Ferð þessi var í flesta staði hin ánægjulegasta, en sá Ijóður var þó á ráði, að sumir yngri menn höfðu orðið of uppfullir af andanum, og gátu eigi hamið hann sem skyldi. Hlutust af þessu nokkrar skemmdir. Hinn 26. nóv. 1968 var svo haldið af stað með nær 60 manns af fyrsta ári og gekk sú ferð á flestan hátt mjög svipað fyrir sig og hin fyrri. Var það þó mjög áberandi, hve fyrsta árs menn voru á allan hátt jarðbundnari, eins og áður var getið, og minna fyrir það gefnir að gleyma sér við andlega iðju. Þrátt fyrir það reyndist ferðin hin skemmtilegasta á allan hátt og voru menn léttir í skapi, þegar heim var komið. P.E. LEIÐEÉTTINGAK 1 síðasta blaði urðu þau mistök, að fyrirsagnir við minningargreinar um próf. Guðmund Thoroddsen og Vigni Georgsson, stud. med. hljóðuðu „in memorian“ í stað „In memoriam“. Læknaneminn biður alla viðkomandi af- sökunar á þessum leiðu villum.

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.