Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1973, Side 14

Læknaneminn - 01.07.1973, Side 14
KYNFERÐISFRÆÐSLA GEIMÐARVARMR Fóstureyðinfg sem getnaðarvörn Um það eru allir sammála, að fósiureyðing á aldrei að vera primer getnaðarvörn, enda yrðu víst fáar konur tilbúnar að fara í slíka aðgerð mánaðarlega. Þeir eru þó til, sem halda því frarn, að fóslureyðing geti verið hluti af getnaðarvarnaprógrammi. í bók sinni Free and Female rœðst höfundur Barbara Seaman, harkalega á pilluna, en telur hið ideala getnaðarvarnaprógram vera gömlu getnaðarvarnirnar „backed up by readily available medical abortiorí‘. Máli sínu til sönnunar birtir hún eftirfarandi töflu: Dánarlíkur konu per 100 þús. - konur „at risk“ per ár: a) Engcir verjur, ekki fóstur- eyðing: 8-12 dauðsföll. b) Engar verjur, lögleg fóstur- eyðing: 3 dauðsföll. c) Pillan: 3 dauðsföll. d) Gömlu getnaðarverjurnar og lögleg fóslureyðing þegar þœr bregðast: 0,4 dauðsföll. (Birt án ábyrgðar). 28 ára gift húsmóðir. Fer fram á vönun og fóstureyðingu. Tilefni: Inferioritas, sinnuleysi og vaxandi ómegð, mb.musculoskeletalis, mi- graine. Gravid x 8, eignazt 5 börn. - Úrskurður: Neitun vegna skorls á upplýsingum frá lækni. Kynferðisfræðsla hefur þann tilgang að vara fólk við hættum, sem geta stafað af samræði. Flestir unglingar vita, hvað getur hlotizt af samförum, en eru ekki eins vel heima um það, hvernig megi forðazt ótímabærar barneignir. Kemur þetta heim og saman við þá staðrevnd að ca. helmingur af fæðingum á Islandi eru börn mæðra á aldrinum 16- 19 ára. Þar sem það er fátítt, að svo ungt fólk óski beinlínis eftir barni, má segja, að það iðki kynlíf sér til skemmlunar eingöngu. Nefndin, sem endurskoðaði fóstureyðingarlöggjöíina, gerði það að tillögu sinni, að öll fræðsla um kynferðismál verði stóraukin í skólum landsins, en óhætt er að fullyrða, að sú kennsla er í dag kák eiít. Nefnd- in kannaði hvernig um þessi mál væri fjallað i núgildandi kennslubók- um, og komst að raun um, að erfitt væri að gera sér grein fyrir því, hvernig börn yrðu til útfrá því sem þar stæði, hvað þá heldur bvernig ætti að forðast tilkomu þeirra. En það er ekki nóg að fræða fólk um getnaðarvarnir, þær verða að vera aðgengilegar fólki. Ein af ástæðunum fyrir því að fólk notar ekki getnaðarverjur er sú, hversu erfitt er að nálgast þær (sbr. könnun sem nefndin gerðí). Þeir aðilar sem nú dreifa getnaðarverjum hérlendis eru: 1. Apótekin, í handkaupi smokkum, og útá lyfseðla pillunni. 2. Gynekologar, aðallega lykkjan. 3. Ráðleggingarstöðin í heilsuverndarstöðinni, aðallega hettur. 4. Verðir á almenningssalernum, smokkar. Enginn af þessum auglýsir vöru sína né reynir að halda henni að kaupandanum. Kaupandinn er því oft feimin við þessa verzlun og veigr- ar sér við að falast eftir kaupunum. Ung stúlka, sem biður lækni um pilluna, gelur átt á hættu að fá yfir sig langar ræður um það, að réttast væri nú fyrir hana að halda sig al- gjörlega frá kynlífi. Og ungur maður, sem snarast inní apótek til að kaupa sér smokka, hrökklast oft þaðan öfugur aftur, vegna þess að tómt kvenfólk er við afgreiðslu, og hann befur ekki uppburði í sér til að biðja um slíka feimnisvöru. Frumskilyrði fyrir því, að dreifingin verði eðlileg, er, að seljendur vörunnar auglýsi hana skilmerkilega, og hún verði sem allra víðast til sölu. Pillan er flokkuð sem lyf skv. íslenzkum lögum. Það er gert með þeirri hæpnu röksemdafærslu, að hana megi nota sem lyf. (Með sama rökstuðningi má flokka áfengi, nikotín og stryknin sem lyf.) Þetta er gert til að vernda konuna, þ. e. neyða hana til að leita til læknis, ef hún vill taka pilluna. (En eins og allir vita er piilan mögulega hættulegt efni.) Sjálfsagt færu margar konur til eftirlits hjá lækni sínum þótt pillan væri seld í snyrtivöruverzlunum, ekki hvað sízt vegna þess áróð- 10 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.