Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1973, Qupperneq 19

Læknaneminn - 01.07.1973, Qupperneq 19
BARNAGÆZLA hafa verið settar starfsreglur, sem eru þannig, að giftar konur og kon- ur í sambúð við aðra en stúdenta fá einfaldlega ekki að nota dagheim- ilin. Slíkar umsóknir nefnast ,,óraunhæfar“ umsóknir, og er ógift stúlka, sem á barn á dagheimili, fer að búa með manni, stoppa ekki símarnir hjá Sumargjöf vegna upphringinga frá fólki, sem er á biðlistanum og klagar. Aðrar starfsreglur eru, að börn einstæðra foreldra eiga að hafa 85% af rými því, sem Sumargjöf úthlutar, en börn stúdenta 15%. Á síðasta ári voru auk þess 4 börn vistuð vegna veikinda og erfiðra heim- ilisástæðnaf!) Nú eru á biðlista ca. 170 manns, sem Sumargjöf viður- kennir sem raunhæfa umsækjendur, og biðtími er 1-1 Yi ár. Ráðamenn hafa hingað lii kærl sig kollótta um þetta neyðarástand og borið fyrir sig röksemdir eins og þær, að börnum sé hollast að al- ast upp hjá móður sinni. Það er reyndar alveg ósönnuð fullyrðing að börnum sé hollara að fylgjast með uppþvottinum hjá móður sinni en að leika sér með jafnöldrum sinum. En aðalatriðið er að það stuðlar ekki að aukinni móðurásl í landinu, að þær konur, sem þurfa og vilja koma börnum sínum á barnaheimili fái það ekki. Fólki er farið að skiljast, að barnaheimili eru uppeldisstofnanir á sama hátt og skólarnir, og fáir mundu sætta sig við að aðeins þriðjungi af barnaskólaþörfinni væri fullnægt. Með lögum um barnaheimili, sem sett voru í fyrra, er ríkis- valdið þó loks farið að viðurkenna uppeldisábyrgð sína, en ennþá er ekki að sjá neinn skilning ráðamanna á stærð vandamálsins. Kunnáttuleysi Síðast en ekki sízt má telja algjöra fávisku um meðferð og uppeldi barna. Á fæðingardeildunum eru hinar ungu mæður fóðraðar á mán- aðarritum eins og „Eros“ og „Sannar sögur“ í stað þess að halda uppi aklífri fræðslu um meðferð ungbarna, sem stúlkurnar eru þó flestar mjög móttækilegar fyrir. Það mun heldur ekki ofsagt, að helm- ingur þeirra barna, sem leitað er með til læknis á fyrstu æviárunum, þjáist af sjúkdómum, sem stafa af rangri fæðu og rangri meðferð. Fólk fær heldur engar leiðbeiningar um uppeldi barnanna, fyrr en um skóla- aldur þeirra, þegar skólasálfræðingar koma til. Þeir munu þó að mestu ætlaðir börnum, sem þegar eru orðin umhverfissködduð. Með nýju viðhorfi í barnaheimilismálum þyrfti að fylgja ráðning fjölskylduráðgjafa við hvert barnaheimili, sem stundaði öfluga preven- lífa psykiatri. Slíkir ráðgjafar mundu vita um hegðunarvandamál barn- anna og væntanlega fá innsýn í vandamál fjölskyldunnar gegnum viðtöl við foreldra. Þessir ráðgjafar væru líka tilvaldir aðilar til að aðstoða við fjölskylduáætlanir og getnaðarvarnir. Því hefur verið haldið fram að svona fyrirbyggjandi aðgerðir séu alltof dýrar í framkvæmd, hins vegar er auðvelt að sýna fram á að slíkt kerfi, sem nægja mundi öllum Reykvíkingum, kostar u. þ. b. 1% af verði væntanlegrar geðdeildar Landspítalans. Fyrr eða síðar hlýtur fólki að skiljast að það er ódýrara að koma í veg fyrir umhverfissköddun hjá börnum, en að byggja stór- hýsi til að geyma þau í þegar þau fullorðnast. Kona í vesturbænum eða unglingsstúlka, ekki þú yngri en 14 ára, óskast til að gæta tveggja drengja, eins og tveggja ára, frá 8,30 til 17 1. júli — 15. júli. Upplýsingar i sima 25306 kl. 21.00 — 23.00 fimmtudaginn 28. júni. Barngóð konaóskast til að gæta 8 mánaða stúlku hálfan daginn, sem næst Túnunum. Uppl. i sima 17991 eftir kl. 7. 12-15 árabarngóð stúlka óskast til að gæta ársgamals barns i Hliðunum i sumar. Uppl. i sima 33383 milli kl. 4 og 5 i dag. Tökum börn i daggæzlu. Góð skilyrði. Erum við Sogaveg. Uppl. i sima 85542. Get tekið börn i daggæzlu. Leik- aðstaða fjarri umferð. Uppl. i sima 84005 kl. 6-8 Barngóð og áreiðanleg unglings- stúlka óskast til að gæta eins árs barns fyrir hádegi, sem næst Bergþórugötu. Upplýsingar i sima 10623 41 árs gömul húsmóðir fer fram á vönun. Ástæða: Asthenia og fjöldi undangenginna fæðinga. Hypertensio. Gravid x 7, konan úttauguð og treystir sér ekki til að eignast fleiri börn. - Úrskurður: Synjun. Ekki virðist um að ræða langvarandi eða alvarlegan sjúk- dóm. 34 ára gift húsmóðir fer fram á vönun og abort. Ástæða: De- pressio mentis og neurosis. Tíðar barneignri og þreyta. Gravid x 10 (1 fósturlát). - Úrskurður: Synj- un. Læknisvottorð ófullnægjandi. Vantar sérfræðingsgreinargerð. læknaneminn 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.